Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Qupperneq 7
DV. MÁNUDAGUR19. MARS1984.
7
Neytendur Neytendur
Kristján Sverrisson heldur hér á tveimur reyktum álum. Hver áll vegur um 600
grömm.
DV-mynd E.O.
Nýreyktur
danskur áll
—fáanlegur
„Reyktur áll er sælkera fæði. Hann
er þó líklega of dýr sem álegg, en getur
verið fyrirtaks forréttur,” sagði
Kristján Sverrisson, eigandi
verslunarinnar Dalvers, í viðtali við
DV. Kristján hefur nú hafið sölu á
reyktum áli í verslun sinni. Þennan ál
fær hann sendan með flugi frá Dan-
mörku. Allinn kemur hingað pakkaöur
í lofttæmdar umbúðir og er þá nýreykt-
ur. Kristján sagði að fyrir u.þ.b. 10
árum hefði verið fluttur inn hingað
reyktur áll, en þá þótti hann vera of
dýr. Þótt veröið sé í efra laginu nú er
hann samt ekki eins dýr og hann var
þá. Kílóið kostar 790 krónur þegar áll-
inn er keyptur í heilu lagi. En hver áll
er í lofttæmdum umbúðum og vegur
um 600 grömm. I lausu er kílóverðið
aöeins hærra eða 820 krónur. Að sögn
Kristjáns hefur állinn mælst vel fyrir
hjá viðskiptavinunum og hefur hann
þegar selt um 60 kíló og önnur pöntun
er á leiðinni.
Kristján sagði að íslenski állinn væri
of smár til reykingar. Þaö hefur verið
reynt að reykja hann en ekki gefist vel.
-APH
PÓSTSENDUM.
hattar
NYSENDING
Filthattar - angóruhattar - Alpahúf
ur, 3 stærðir - angóruhúfur, 15 litir -
Fashionhúfur, 11 litir.
Höfuðklútar - fermingarslæður -
krep- og leðurhanskar - beitinga-
hanskar.
HATTABÚÐIN
Frakkastíg 13, sími 29560.
SPORT-
SKÚR
ÚR HVÍTU
FYRIR
BÖRN,
DÖMUR
OG
HERRA
Nr. 28-33kr. 494,-
Nr. 34-39kr. 546,-
Nr. 40-45kr. 598,-
Póstsendum
SKÓVERSLUN
ÞÓRÐAR
PÉTURSSONAR
Kirkjustræti 8 — sími 14181.
Laugavegi 95 — sími 13570
„O g hver ætlar að borga
mína
IBM PC einkatölvu? ”