Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Side 17
D VM ANUÐ AGW R ’W; MARS 1984. m
17 ..
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Flugleiðir lenda í f járlagagatinu
DC—8 vél hefur sig til flugs. Sams konar vél og Flugleiðir nota i
Atlantshafsfluginu eða lífæð félagsins eins og bréfritarikemstað orði.
Skattgreiðandi skriiar:
Það er ekki nema rúmur mánuður
síðan frétt birtist um það að Flugleiöir
væru nú endanlega hættar viö að taka
við ríkisstyrk. Því hefði lokið hinn 30.
sept. sl.
Forstjóri fyrirtækisins tjáði sig um
það í fréttinni að fjárhagsafkoma
Flugleiöa fyrir síðasta ár væri talin já-
kvæð. Skattgreiðendur mættu því
vænta þess að losna undan frekari
byrði þessa hlutafélags.
Þaö kemur því eins og þruma úr
heiðskíru lofti þegar nú er skyndilega
slegiö upp fréttum um aö enn á ný skuli
ríkið þurfa að gefa eftir greiðslur Flug-
leiða í formi lendingargjalda á Kefla-
víkurflugvelli.
En það er ekki einungis fréttin sem
slík heldur hvernig að henni er staðið.
Blöö stjórnmálaflokkanna birta hana
með lítt áberandi hætti eða alls ekki.
Þannig var ekkert um þetta birt í
Alþýðublaði og heldur ekki í Tímanum
daginn eftir að ríkisfjölmiðlar höfðu
f jallað um málið en þetta fylgist þó oft
að.
Morgunblaðið reynir að fela fréttina,
að því er virðist, með því að birta hana
inni í annarri um sama efni — og minn-
ist auövitað hvergi á aö ríkið hafi þurft
að greiða afborgun vegna Flugleiða og
sem er angi af vanda ríkisins í marg-
nefndu f járlagagati.
Blöð stjórnmálaflokkanna birta hins
vegar frétt með risafyrirsögn um
heimildarfrumvarp um ríkisábyrgð til
Amarflugs hf.
Það ætlar að verða djúpt á því að
fyrirgreiðslur ríkisins til handa Flug-
leiðum taki enda. Þær voru í formi
lengingargjalda og annarra skatta um
eða rúmar 70 milljónir króna árin 1981
og ’82.
Nú er það svo, að það er í hag Flug-
leiðum að setja upp sem flestar ferðir
á Atlantshafsfluginu og auka umsvif
þar þrátt fyrir tapið á því flugi, sem
látið er að liggja að þar sé, því að þeim
mun hærri verður stuðningur ríkisins
viö félagiö. Það má hins vegar spyrja
hvar Flugleiðir væru staddar ef
Atlantshaf sflugsins nyti ekki við.
Viö munum ekki betur en stjórn fé-
lagsins hafi gengið berserksgang fyrir
þremur árum til að fá að hætta
Atlantshafsfluginu. Fyrir orð sam-
gönguráðherra þáverandi var Flug-
leiðum þó gert kleift að halda því
áfram — með öllu tapinu!
Hvers vegna er yfirleitt veriö að
halda úti þessu flugi ef á því er millj-
ónatap? Er það til þess eins að skatt-
greiðendur fái að greiöa niður fargjöld
til erlendra ríkisborgara? — Auðvitað
ekki. Atlantshafsleiðin ein er lífæð
Flugleiöa.
Þetta vita allir sem fylgst hafa með
málunum. Hins vegar verður vandséð
hvaða leið ríkiö velur þegar kemur að
því að f jármagna endurnýjun flugvéla-
kosts Flugleiða vegna kröfu Banda-
ríkjanna um hávaðaminni flugvélar.
En stærstu vandamál félagsins eru
kannski þau að þar er um forystu-
vandamál að ræða, að því er virðist,
því ekkert hefur rofað til í málefnum
félagsins frá því uppstokkun var gerð
á rekstri þess síðla árs 1980.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
því hvemig ríkisstjórnin og einstaka
ráðherrar hennar taka á vanda Flug-
leiða á næstu vikum. Aðalfundur fé-
lagsins er framundan og því snör hand-
tök nauðsynleg af hálfu beggja aðila.
Lesendur
i Hríngið í \
! 86611 |
I millikl. 13ogl5;
eðaskrifið J
UOSRITUN
Getum boöiö allar
stæröir, allt frá A3 og
niður úr! Þaö er fátt sem
við ráöum ekki viö á þeim
vettvangi. Einnig bjóöum
viö offsetfjölritun,
vélritun, pappírssölu,
blokkir og minnismiða,
skurö og bókband,
silkiprent á ýmsa hluti,
litglærur fyrir myndvarpa
ofl.
Litiö viö og kynnið ykkur
þjónustu okkar.
Byggjum á reynslu og
þekkingu á þessu sviði.
VIÐ ERUM
MIOSVÆÐIS.
_ „ wöLmroNSF.
ÉsklpholU S,m>91-25
á frálwer^vcrdi 139.000
Nýi Skodinn er gjörbreyttur:
A — Nýtt og fallegra útlit. C — Ný kúpling.
B — Öruggara hemlakerfi. D — Tannstangarstýri, sem gefur enn bétri
aksturseiginleika.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
Auglýsingastofa Gunnars