Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Qupperneq 9
9
i^O’ lYcrrr f m * f'TT ' t un
DV. LAUGARDAGUR7. APR1L1984.
Lada Lux.:
Lengd: 4145 mm.
Breidd: 1680 mm.
Hæð: 1435 mm.
Bil á milli öxla: 2424 mm.
Vél: fjögurra strokka, 1458 rúmsm, 77
hestöfl (56,6 kW) við 5600 sn. á mín.
Gírkassi: fjögurra gíra. Bremsur:
diskar framan/skálar aftan með
hjálparafli.
Hjói: 175/70 P—13.
Bifreiðar og Landbúnaðar-
vélar hf. — nokkur verð-
dæmi:
Lada 1300 163.000
Lada 1300 Saf ir 183.000
Lada 1500 station 196.500
Lada LUX 213.489
Lada Sport 298.500
UAZ 452, framb. 298.100
Verð miðað við 14. mars ’84.
Bilarnir ryðvarðir og tilb. til skráning-
ar.
Frá Bifreiðum og Landbúnaðar-
vélum hf. verða sýndir fjórir Lada-
bíiar, Lada Sport-jeppinn, Lada 1300,
Lada Safír og hinn nýi Lada Lux sem
nýlega kom á markaðinn.
Ladabílarnir eru meðal þeirra bila
sem selst hafa i miklum mæli hér á
landi. Bæði ræður þar um verðið og
eins að bílamir hafa þótt henta vel
okkar grófa vegakerfi.
Lada Lux mætir
auknum kröfum
Margir hafa fundiö Ladabilunum
það til foráttu að þeir hafi lítið fylgt
þeirri þróun sem orðið hefur í bíla-
iðnaðinum síðustu árin. Að vísu hefur
frést að á leiðinni sé algjörlega ný
Lada, hönnuð af sjálfum Porsche fyrir
Sovét.
Til að mæta hluta af þessum kröfum
kom nýlega á markaö ný gerð af Lada.
Sá bíll fékk nafnið Lada Lux og þar
hefur verið komið nokkuð til móts við
kröfur um aukin þægindi og ýmislegt
verið gert til að mæta þessum auknu
kröfum, þar á meðal hefur mælaborðið
verið fært til þess horfs sem algengast
er á vestrænum bílum og öll skýr-
ingartákn eftir þeim staðli.
I útliti ber mest á nýjum framenda
með nýju „grilli” sem gefur bílnum
breyttan svip.
LadaLUX— með þessum bíl hafa
Ladaverksmiðjurnar svarað aukn-
um kröfum um útlit og þægindi.
Aldrei fyrr jafn
góöir bílar
Við erum mjög hróðugir af sýningarbásnum okkar á bílasýningunni Auto 84, sem hefst
um helgina. Auðvitað höfum við reynt að gera sjálfan sýningarbásinn vel úr garði, en
það eru þó bílarnir, sem við erum stoltir af. Við fullyrðum, að Sveinn Egilsson hf. hefur
aldrei getað boðið upp á jafn góða bíla og nú. Við erum ekki einir um þá skoðun. Það
sannar sú staðreynd, að við höfum þegar selt fleiri bíla, en allt árið í fyrra. Þegar mikil
gæði og góð verð fara saman er það eðlileg afleiðing.
Bílar fyrir alla
Sveinn Egilsson — í fararbroddi í 58 ár
Skeifan 17-Sími: 85100
Ford Escort LX sérbúinn fyrir Norðurlönd á frábæru verði
Ford Escort XR-3Í virkilegur sportbíll
Ford Sierra „besti Fordinn frá upphafi" 15 verðlaun á rúmu ári
Ford Sierra station „einfaldlega stórkostlegur bíll“
Ford Sierra XR-4i þú finnur ekki slíkan lúxus sportbíl fyrir sama verð
Ford Fiesta kjörinn „bíll skynseminnar" 4 sinnum í V-Þýzkalandi.
Suzuki SA 310 nýi rúmgóði, kraftmikli „súpersparibaukurinn" frá Suzuki
Suzuki Alto margfaldur Islandsmeistari í sparakstri
Suzuki Alto ódýrasti og sparneytnasti sjálfskipti bíllinn
Suzuki Fox de luxe ódýri jeppinn - eyðir eins og sparneytinn fólksbíll
Suzuki sendibíll mest seldi sendibíllinn á íslandi og Japan undanfarin ár
Suzuki Fox pick up 57 cm lengri en jeppinn, rúmgóður ferðabíll /
vinnuhestur