Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Side 2
S/mS&SE.
Hestamenn Fáks héldu i árlega hópreið sina frá Viðivöllum upp i Hlégarð á laugardag. Um 300 manns og 500 hestar logou ar stao Ki. £
siðdegis og þegar komið var í Hlógarð tók kvenfélagið i Mosfellssveit á móti hestamönnunum með mikilli veisiu, að sögn eins félagsmanna
Fáks. DV-mynd: Sveinn Þormóðsson.
Elduríhúsi við Holtsgötu:
Húsið mjög illa faríð
— og innbú að heita má ónýtt
Timburhús við Holtsgötu í Reykja-
vík er mjög mikið skemmt eftir aö
eldur kom upp í húsinu skömmu eftir
hádegiígær.
Það var rétt fyrir klukkan tvö í
gærdag að tilkynnt var að reyk
mikinn legöi út úr íbúð í húsinu
númer fimm við Holtsgötu en það er
tvær hæðir og ris. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang logaöi eldur út,um
anddyri á austurgafli hússins og
mikinn reyk lagði út um gluggana.
Tveir reykkafarar fóru inn í húsið.
Var þar töluverður eldur sem hafði
komist á milli þilja. Tók tæpan
klukkutíma að ráða niðurlögum
eldsins.
Húsráðendur voru ekki heima er
eldurinn kom upp, en ein fjölskylda
býr í húsinu. Var reynt aö bjarga því
af innbúinu sem bjargaö varð. Það
mun þó mjög skemmt, ef ekki ónýtt.
Þá er húsiö mjög illa farið.
Eldsupptök eru ókunn og vinnur
rannsóknarlögreglan aö þeim þætti
málsins.
-KÞ.
Teknirviðað draga
ólöglega björgibyrgið
Tveir menn voru handteknir á
Miklatorgi á sunnudagsmorgun
þar sem þeir roguðust með tvo
stóra kassa af ýmiss konar
varningi áleiöis aö heimili sinu í
Oskjuhh'ð. Þar búa þeir í
neðanjarðarbyrgi.
Höfðu mennirnir brotist inn í
kjallara nýju geðdeildar Land-
spítalans og stohð þar varningn-
um, sem var í kössunum, svo sem
videospólum, sloppum og fleiru.
DV. MÁNUDAGUR 30. APRlL 1984.
Bjama Benediktssyni RE
gengurvelá
djúprækjuveiðum:
Fimmtonn
ádagí
fyrstatúr
Skuttogaranum Bjama Benedikts-
syni RE, sem Rækjuver á Bíldudal tók
nýverið á leigu til djúprækjuveiöa fyrú-
sig, virðist ætla aö ganga bærilega vel
á þessum nýju veiöum. BUR á tog-
arann og leigði hann meö 12 manna
áhöfn tiiveiðanna.
Á miðvikudaginn landaöi hann 25
tonnum af rækju á Bíldudal eftir fimm
daga veiðiferð en það þykir allgott úr
fyrstu ferð á nýjum veiðum. Hann er
nú í annarri veiðiferð og á að landa á
miðvikudag. Aflrnn er allur ísaður í
kassa þannig að togarinn er yfirleitt
ekki nema fimm daga á sjó í hverri
ferð.
Miðað við leigukjör á skipinu og
aörar almennar forsendur reikna
Rækjuversmenn með að rekstur
Bjama gangi upp ef hann aflar 100
tonna á mánuði.
Verður Réttarholts-
skóli lagður niður?
Beiðni hef ur borist um það frá
menntamálaráðuneytinu
„Þaö hefur komið bréf frá mennta-
málaráöuneyti til borgarinnar. Þeir
em að fara fram á að fá þennan skóla
fyrir einhverja starfsemi hjá sér.
Þetta bréf verður væntanlega lagt
fyrir hjá fræðsluráði á morgun. Við
ætlum að ræða okkar mál á f undi í skól-
anum fyrir hádegi og ég reikna með að
ég fari með einhverja punkta um
okkar skoðanir á fund hjá fræðsluráði
þegar þetta mál verður rætt þar,”
sagði Haraldur Finnsson, skólastjóri
Réttarholtsskólans í gær.
Fundinn í skólanum munu kennarar
og skólastjóri skólans sitja auk þess
sem fulltrúa foreldrafélagsms hefur
verið boðiö á hann. Áformaö er að
halda hann efth- morgunkaffi og senda
þánemendurheim.
„Þetta mál hefur komið upp áður.
Við viljum ræða saman um þær for-
sendur sem eru fyru- hendi. Þetta mál
er tiltölulega nýkomið og við vitum í
raun og veru lítið um það. Nemendum
hefur fækkaö í skóianum erns og gerist
í þessum eldri hverfum,” sagði
Haraldur ennfremur.
Davíð Oddsson borgarstjóri sagði að
hann hefði fengið bréf frá mennta-
málaráðherra þar sem óskað væri eftir
afnotum af húsi skólans fyrir aðra
starfsemi en væri í því núna. I
framhaldi af því myndi málið verða
athugað gaumgæfilega. Það væri
kostur ef hægt væri að koma málum
þannig fyrir að skólinn yrði losaður og
borgin seldi þá ríkinu sinn helming af
skólanum ef niðurstaðan yrði að þaö
væri hægt. Meira væri ekki um málið
að segja. -SGV.
Dömur og herrar. Nýr Ijósabekkur með Bellaríum super-
perum og andlitsljósum.
Só/baðsstofan Ströndin
Noatúni 17 Sími27 7 76
Rekstrarfélag Ölfusborga:
Halldór endur
kjörinn formaður
Halldór Björnsson var endurkjörinn
formaður á framhaldsaðalfundi
Rekstrarfélags Ölfusborga sem
haldinn var á laugardag.
,,Stjórn rekstrarfélagsms hafði veriö
gagnrýnd meðal annars fyrir að halda
ekki aðalfundi og fyrir aö hafa byggt
baðhúsm í trássi við samþykkt.
Haldinn var fundur í haust þess vegna.
Á þeún fundi var talið rétt að veita frá-
farandi stjórn tíma til að skipa málum
til betri vegar,” sagði Magnús Gísla-
son, formaður Verslunarmannafélags
Suöumesja, sem var emn þeirra sem
á smurn tíma gagnrýndi stjóm
rekstrarfélagsins.
„Þessi tími hefur verið notaöur. Það
er greinilegt að stjórnm tók sig á og
hefur unnið rösklega. Margir ætluðu að
væri verið að vega að stjórninni til aö
feila hana eða slíkt. Það var aldrei
ætlunrn heldur það að stjórnin ynni
eftir samþykktum,” sagöi Magnús
ennfremur.
A fundinum urðu breytingar á
samstarfssamnmgi þannig aö nú er
formaður kosinn til tveggja ára, tveU í
stjórn til tveggja ára og aörir tveir til
eins árs. Til tveggja ára vom kosnar
Guöríður Elíasdóttir og Ragna Berg-
mann. Til eins árs Sigurður Hallvarös-
son og Þórir Guöjónsson.
-SGV.
ssi mynd vartekm skommu eftir að eldurínn braust út.
Halldór Bjömsson, til hægrl, formaður rekstrarfélags Ölfusborga, tekur í hönd
Magnúsar Gislasonar, formanns Verslunarmannafélags Suöurnesja. Magnús var
ritari á fundinum. DV-mynd KEi.
BENCO
SERKLEFA
'T\\