Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Page 5
DV. MÁNUDAGUR 30. APRIL1984.
5
Guðmundur Kjærnested kveður um leið og hann gengur frá borði í síðasta sinn
sem skipherra Landhelgisgæslunnar. DV-mynd GVA.
Tilboösverö
Svalahuróir úr oregonpine með
i| lœsingu, húnum og þéttilistum.
Verö frá kr. 5.654,-
Útihuröir úr oregonpine.
Verö írá kr. 6.390,-
Bílskúrshuróir,
fTlTlTfl 9lu99ar °9 giuggaíog-
Gildir til 1.05.84.
TRESMIÐJAN MOSFELL H.F
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06
Hversdags-
legirhlutir
imanm
— segirGuðmundur
Kjæmested
Guðmundur Kjærnested skipherra
kom úr sinni síðustu sjóferð sl. iaugar-
dag af miöunum kringum landið. Bauð
hann f jölskyldu sinni, börnum, tengda-
börnum og barnabörnum að snæða
kvöldverð um borð í varðskipinu Tý af
þessu tilefni.
Guðmundur varð sextugur sl. sumar
og sagði í samtab við DV að sam-
kvæmt reglum um lífeyrissjóð sjó-
manna og lífeyrissjóð ríkisstarfs-
manna gætu menn hætt störfum þegar
þeir hefðu náð samanlagt 95 árum í
starfi og aldri. „Eg hef starfaö í fjöru-
tíu ár hjá Landhelgisgæslunni, bæði á
sjó og í lofti, og vil hætta áður en ég
verð svo kalkaöur að ég hef ekki vit á
aö hætta,” sagði hann hlæjandi.
„Nu fer maður í sundlaugarnar og
glápir út i loftiö,” sagði hann aö-
spurður hvað tæki nú við og bætti við:
„Miklar fjarvistir í gegnum árin hafa
gert það að verkum að maður hefur
farið á mis við margt í f jölskyldulífinu
og vonast ég til að geta bætt það upp
héðanífrá.”
Aðspurður hvað væri minnisstæöast
frá ferli hans í Landheigisgæslunni
svaraði Guðmundur Kjæmested:
„Gömul kona á Vopnafirði, sem er
mjög afskekkt byggðarlag eins og
menn vita, sagði eitt sinn við mig að
enginn utanaðkomandi gæti gert sér í
hugarlund hve mikilvægt væri að vita
af svona varöskipi fyrir utan þegar
aðrar samgönguleiðir væru lokaöar —
á okkur væri alltaf hægt að treysta.
Það er þessi hugur landsbyggðar-
fólksins til okkar í gæslunni sem er og
verður mér minnisstæðastur. Það
hefur oft verið spennandi, þegar
maöur hefur t.d. flutt konu i bams-
nauð, aö vita hvort yröi á undan skipið
eða barnið. Þaö eru þessir hversdags-
legu atburðir úr lífsbasli fólks sem
sit ja lengst í manni.
Margt úr landhelgisdeilunni situr í
manni að sjálfsögöu þótt ég ylji mér
frekar við þær minningar þegar okkur
tókst að bjarga fólki úr verulegum
hættum Varðandi landhelgisdeiluna er
mér minnisstæöast þegar Bretar
sigldu út úr iandhelginni og kvöddu
okkur með að vitna í MacArthur hers-
höfðingja og þau fleygu orð „We shall
retum”.
Svölukaffi
— á morgun
Svölumar, félag fyrrverandi og
núverandi flugfreyja, halda sína
árlegu kaffisölu 1. maí. Auk kaffisöl-
unnar og meðlætis, en kökur og með-
læti Svalanna er löngu landsfrægt,
verður tískusýning og skyndihapp-
drætti.
Svölumar hafa verið iðnar við f jár-
öflun frá stofnun félagsins en þaö er tiu
ára um þessar mundir.
Safnað hefur verið til góðgerðar-
starfsemi og víða lagt af mörkum. Nú-
verandi formaður félagsins er
Jóhanna Bjömsdóttir, eða fram aö
aöalfundi 12. maí nk. I tilefni 10 ára af-
mælisins gefa Svölumar út veglegt
afmælisrit sem kemur út 1. maí. Svölu-
kaffiö á morgun verður að Hótel Sögu,
Súlnasal, og hefst klukkan tvö. -ÞG.
Sar
Cfl t íIh V'
OUIili T
EYÐIR MINNA EN CITROÉN 2 CV OG
SAMT SNEGGRI OG HRAÐSKREIÐARI EN BMW.
....NGSKE
L-TEST
Mere okonomisk end 2 CV
Hinn þekkti bílamaður Finn Knudstup á
Berlinske Tidende varð mjög hrifinn af
NISSA SUNNY. Hann skrifaði:
„Sunny getur við fyrstu sýn litið út fyrir að vera hefðbundinn
bíll en hin háþróaða tækni og nákvæmni í framleiðslu kemui
manni sannanlega á óvart. Þú kemst lengra á hverjum bensín
lítra á Sunny en á Citroén 2 CV. Engu að síður er Nissan Sunny
sneggri og hraðskreiðari en BMW 315. Og ekki er Sunny dýr. I
stuttu máli þrjú atriði sem eiga eftir að gera Sunny að stór
vinsælum bíl — bíl sem veitir manni meiri og meiri ánægju við
hvern kílómetra."
Verð á Nissan Sunny, 4 dyra fólksbíl, 5 gíra, 1500 cc, 84 hestöfl og ríkulega útbúinn, kr. 311.000.
Við látum þér eftir að bera saman verð þeirra bíla sem Finn Knudstup minntist á í grein sinni.
Tökum allar gerðir eldri bifreiða upp í nýjar.— Munið bflasýningar okkar um helgar kl. 2-5.
NISSAN
LANG-LANGMEST
FYRIR PENINGANA.
INGVAR HELGASON HF,
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.