Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Síða 6
6 DV. MÁNUDAGUR 30. APRlL 1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur VERÐMYNDUNARKERFI MJÓLKURVARA GALLAÐ — segir í skýrslu Hagvangs um vinnslu- og dreif ingarkostnað mjólkurvara Umrœður um kókómjólk, mango- sopa og jóga hafa verið linnulausar að undanförnu. Deilur um skattlagn- ingu á þessar mjólkurvörur hafa veriö uppi í ríkisstjóminni og þing- sölum. Svo hart hefur kveðið að deilur þessar hafa vikið öðmm stór- málum til hliðar. Þó að deiit sé einkum um þrjár mjólkurafurðir hangir líklega meira á spýtunni. Deilurnar eru angi af stærra máli eða standa jafnvel um allan vinnsiu- og dreifingarkostnaö mjólkuriönaöarins. Þessar deilur eru ekki nýjar af nálinni þótt með öðrum formerkjum séu í dag. Arið 1981 gerði Hagvangur athugun á vinnslu- og dreifingar- kostnaði mjólkurafurða að beiðni forsætisráðuneytisins. Var iögð fram mikil skýrsla um þessa athugun í nóvember 1981. Teljum við að skýrslan skýri ýmis mál sem tengjast mangodeilunni svokölluðu og því birtum við hér það helsta úr henni. I skýrslunni, sem við höfum undir höndum, segir að markmiðið með þessari athugun sé að fá gleggri og ítarlegri upplýsingar um þróun og myndun vinnslu- og dreifingarkostn- aðar mjólkurvara. I helstu niðurstööum og ályktunum segir: Dreifing mjólkurframleiöslu yfir árið er eitt af meiri háttar vanda- málum íslensks mjólkuriðnaðar. A árinu 1980 var hámarksfram- leiðsla hér á landi umfram meðallag um 32%, en í Noregi var hámarks- framleiðslan um 13% umfram meðallag. Allar fjárfestingar í mjólkur- vinnslunni hafa verið miðaðar við hámarksafköst hennar. Jöfnun mjólkurframleiðslunnar gæti þýtt allt að 20% sparnað í fjár- festingum eða sem nemur vinnslu- getu bús sem vinnur úr 20.000.000 lítrum af mjólk á ári. Jöfnun mjólkurframleiðslunnar hefur einnig í för með sér hag- kvæmari rekstur þar sem nýting vinnuafls yrði betri en nú er. Fram að þessu hefur verið beitt breytilegu útborgunarhlutfalli til að jafna framleiðsluna. Þetta hefur þó ekki borið tilætlaðan árangur og ekki er fylli- lega ljóst hvaða áhrif kjamfóður- gjaldið hefur á framleiðslu vetrar- mjólkur. Líklega má þó telja að þaö dragi frekar úr framleiöslu hennar en slíkt er ekki æskilegt. Augljóst er að taka verður upp nýjar aðferðir tii að jafna dreifingu mjólkurframleiðslunnar. Markvissar, skipulagöar aögerðir af hálfu bænda og víðtækt upplýs- inga- og stjórnunarkerfi af hálfu Framleiðsluráðs og/eða mjólkur- búanna eru nauðsynlegar. Auk þess er liklegt að beita þurfi breytilegri verðlagningu þannig að grundvallar- verð mjólkur verði hærra fyrir vetrarmjólk en fyrir sumarmjólk þannig að bændum sé tryggð ekki lakari útkoma úr framieiðslu vetrar- mjólkur. I skýrslunni er sagt aö búast megi við stöðnun í mjólkumeyslu á næstu ámm og líklegt sé að haida þurfi uppi sterkum áróðri fyrir mjólkur- neyslu til að halda uppi neyslunni. Rekstrarkostnaður Þróun rekstrarkostnaðar við mjólkurframieiðslu frá árinu 1975 hefur vaxið hraöar en almennar verölagshækkanir. Þessi þróun hefur verið hraðari í mjólkurbúum úti á landi en á svæði I. Orsök þessarar hröðu þróunar umfram almennt verðlag liggur meðal annars í meiri launahækk- unum í mjólkuriðnaði, vaxandi vaxtakostnaöi vegna fjárfestinga, afurðalána og vegna breyttra skatta- laga. Þessi þróun hefur þó verið breyti- leg milli búa og framleiðslukostn- aður í búunum á unninn mjóikurlitra er ótrúlega misjafn, eða frá því aö vera um 30% af meðalframleiðslu- kostnaði upp í aö vera um tvöfalt meðalframleiösluverö. Vegna þess hvernig bókhaldi er háttað og vegna vöntunar á kostnaðareftirliti er ekki unnt að ná fram ratmverulegum framleiðslu- kostnaði hverrar vöru í búunum. Raunverulegur samanburður á framieiöslukostnaöi og hagkvæmni einstakra vara og milli búa er því ekki fyrir hendi eins og til dæmis í Svíþjóð og Noregi. Af þessu leiðir aö stjórnendum búanna vantar nauðsynlegar upplýsingar um fram- leiöslukostnaö einstakra vöru- tegunda og þar með vantar aðal- forsendur fyrir því að ná fram sem hagkvæmustum rekstri á búunum. Verðlagning mjólkurafurða Akvarðanir 6-mannanefndar varö- andi vinnslu- og dreifingarkostnaö mjólkur í verðlagningu mjólkurvara er þvi ekki byggður á upplýsingum um raunverulegan framleiðslu- kostnað einstakra vörutegunda, heldur er einvörðungu stuðst við upplýsingar Mjólkursamsölunnar um heildar vinnslu- og dreifingar- kostnað allrar innveginnar mjólkur á mjólkursölusvæði I. Framangreint hefur þvi í för meö sér aö sá vinnslu- og dreifingar- kostnaður mjólkur, sem 6-manna- nefnd ákveður hverju sinni, er látinn ganga hlutfallslega inn í verðlagn- ingu allra þeirra mjólkurafurða sem eru háðar verðlagsákvæðum. Af f ramangreindu má ljóst vera að verðlagning þeirra mjólkurvara, sem háðar eru verðlagsákvæðum, er ekki byggð á upplýsingum um raun- verulegan framleiðslukostnað einstakra mjólkurvara. Athygli skal vakin á því að inni í þeim vinnslu- og dreifingariiostnaði, sem fram er settur af hálfu Fram- leiðsluráðs landbúnaöarins á grund- velli upplýsinga Mjólkursamsöl- unnar, er innifalinn sá vinnslu- og dreifingarkostnaður sem tilheyrir sýrðum mjólkurvörum sem ekki eru háðar neinum verðlagsákvæðum. Verður ekki séð að vinnslu- og dreifingarkostnaöur sýrðra mjólkur- vara eigi heima á meðal þeirra vara sem háöar eru verðlagsákvæðum, nema þær mjólkurvörur falli einnig undir verðlagsákvæði, sem er í sjáif u sér langeðlilegast í núverandi verðmyndunarkerfi mjólkurvara. Af framansögðu er ljóst að það ákvörðunarkerfi vinnslu- og dreifingarkostnaðar sem við búum við í dag er veruiega gallað og þarfn- ast gagngerðrar endurskoðunar. Þá er sagt í skýrslunni að verð- lagning seldrar þjónustu á milli ein- stakra rekstrareininga hljóti ávailt að orka tvímælis og að það vakni spumingar við gerð hækkunar- beiöna um tiltekinn kostnað við vinnslu og dreifingu. í fyrsta lagi er útreikningur núgildishækkunar mjög vafasamur. í öðru lagi eru kröfur þær sem fram eru settar ársf jóröungslega, en þær eru ekkert annaö en áætlun um væntaniegan kostnaö við vinnslu og dreifingu mjólkurvara, ekki gerðar upp miðað við niðurstöður bókhalds Mjólkursamsölunnar. í þriðja lagi eru vextir gjaldfærðir í ársreikningum mjólkurbúanna á mjólkursölusvæði I, samkvæmt ákvæöum laga um tekjuskatt og eignarskatt nr. 40/1978. Sú breyting, sem þá varð, var í stórum dráttum sú að þá var í fýrsta skipti heimilt að færa gengistap af hvers konar skuldum í erlendum verðmæli á því ári sem gengisbreyting á sér stað til gjalda sem vaxtagjöld og miðast þau við sölugengi viðkomandi erlends gjaldeyris í árslok. I fjórða lagi vaknar sú spuming hvort þær %-tölur, sem notaður eru til að afskrifa fastafjármuni, séu réttar þ.e.a.s. meti eölilega árlega rýmun einstakra fastafjármuna sem notaðir eru í rekstri mjólkur- búa. Sérstakiega er rætt um verð- jöfnunargjaldið og þá breytingu með lögum frá 17. maí 1976 að samþykkt var að það kæmi inn í verðlagningu mjólkurvara. Verðjöfnunargjald greiða neytendur mjólkurvara. Vaknar sú spurning hvort engin takmörk séu fyrir því við núverandi aðstæður hversu langt er hægt að ganga í hækkun verðjöfnunar- gjaidsins í þeim tilgangi að standa undir rekstri óhagkvæmrar mjólkur- vinnslu. Afkastageta mjólkurbúa Nýting þess búnaöar, sem til er í landinu, miöað við heildarfram- ieiðsiu er nokkuð góð við fram- leiðslu neyslumjólkur, en ails ekki nægjanlega góð hvað varöar búnaö til framleiöslu annarra mjólkuraf- urða. Athygli vekur aðmikið af tækj- um til framleiðslu sérafurða fyrir- finnast í jafnvel minnstu búunum þar sem nýting þeirra er mjög slæm. Með skipulagðri sérhæfingu í bú- unum og samvinnu milli þeirra má tvimælalaust auka hagkvæmni í rekstri og jafnvel á þann hátt koma í veg fyrir lokun minnstu búanna í framtíðinni. Augljóst er að ekki er þörf á að auka heildarafkastagetu í mjólkuriðnaöinum á næstu árum, þannig að við endumýjun tækjakosts þarf að gera sér grein fyrir hugsan- legri jöfnun mjólkurframleiðslunnar og sérhæfingu búanna. Þróun framleiðni í mjólkuriðnaði Athygli vekur að á tímabilinu 1970 ,til 1980 hefur framleiöni í mjólkur- iönaöi ekkert aukist þrátt fyrir þær f járfestingar sem átt hafa sér stað á þessutímabili. Einnig kemur í ljós að fjöigun hefur átt sér stað á starfsfólki árin 1979 og 1980 þrátt fyrri minnkandi mjólkurmagn. Miðað við fyrirsjáanlega þróun í mjólkurframleiðslu og neyslu, er nauðsynlegt fyrir búin að aölaga sig ■ þessum breyttu aðstæðum og endurskoöa starfsmannahald sitt. Otjöfnun á mjólkurframleiðslu bænda gæti einnig haft veruleg áhrif til aukinnar hagræðingar og fram- leiðni. Samanburður við önnurlönd Samanburður á vinnslu- og dreifingarkostnaði var gerður við Noreg, Svíþjóð og Danmörku. Augljóst er að bæði Norðmenn og Svíar hafa komið sér upp samræmd- um kostnaðareftirlits- og bókhalds- kerfum sem öll búinnota. Þetta gerir þeim kleift að bera saman niðurstöður hinna einstöku búa og fá yfirlit yfir framleiðslu- kostnað. Þessar niðurstöður nýtast síðan sem grundvöllur verðlagningar vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Samanburður á þessum verð- myndunarkerfum og því verð- myndunarkerfi, sem við búum við, undirstrikar nauðsyn þess að taka núverandi verðmyndunarkerfi hér á landi til endurskoöunar, ekki síst þegar tekið er tillit til þeirrar þróun- ar sem átt hefur sér stað í mjólkur- framleiöslu og framleiðni í mjólkur- iönaöi. Upplýsingar um raunverulegan vinnslu- og dreifingarkostnað ein- stakra mjólkurafurða hér á landi liggja ekki fyrir og ráðstafanir virðast ekki hafa verið gerðar til að sundurliða og safna upplýsingum fyrir slíkan útreikning. Athygli vekur hve hár vinnslu- og dreifingarkostnaður fyrir neyslu- mjóik er ákvarðaður af 6-manna- nefnd og hve lágt grunnverð rjóma og smjörs er. Með þessu er mjólkurbúunum verulega mismunað, því að umfram- fjármagn fæst inn í reksturinn gegn- um neyslumjólkurframleiðslu, en greiðslur fyrir rjóma og smjör nægja ekki fyrir greiðslum til bænda. Þetta leiöir til þess að neyslu- mjólkurframleiðendur, sem fá fram- leiðslu sína nánast staðgreidda, hafa umframfjármagn í rekstrinum og jafnframt möguleika á vaxtatekjum eins og rekstrarreikningar bera með sér. Vinnslubúin, sem fá ekki fulla greiðslu fyrir vörur sínar, liggja auk þess oft með birgðir í langan tíma og þurfa því á afturðalánum aö halda og bera af þeim há vaxtag jöld. Niðurlag I niöurlagi athugunar Hagvangs er komist að þeirri niðurstööu að veru- legt átak þurfi að gera í mjólkur- iðnaöinum til að endurskipuleggja framleiðslu bænda, vinnslu búanna og dreifingu mjólkurvara, svo að meiri hagkvæmni náist og einnig þurfi að halda áfram áróðri fyrir mjólkurneyslu, svo að hún minnki ekki, svo sem áöur er getið. Jafnframt er bent á að það þurfi að koma á nýju verðmyndunarkerfi sem byggi á reynslutölum mjólkur- vinnslunnar sem flokkaðar eru eftir 'afurðnm. Bent er á kostnaðareftirlitskerfið í nágrannalöndum okkar og áður er vikiðað. Aðsíðustusegir: Eölilegt er að mjólkuriðnaðurinn fái nægan tíma til að koma þessari endurskipulagningu á (skrifað 1981) en ekkert ætti að vera því til fyrir- stöðu að grundvöliur aö nýju verð- myndunarkerfi með haldgóðum upp- lýsingum frá búunum sjálfum liggi fyrir í ársbyrjun 1984, það er þegar, árið 1983 hefur verið gert upp. Fram að þeim tíma er eðlilegast aö styðjast við svipaö kerfi og nú er í gangi með nauðsynlegum endurbót- um. Nú eru þessi tímamót runnin upp. Aðalfundir aUra mjóUrurbúa á sölu- svæði I tU dæmis nýafstaðnir. Rekstrarreikningar ársins 1983 Uggja fýrir. Að sögn Guðlaugs Björgvinssonar, forstjóra Mjólkur- samsölunnar, hafa engin tilmæli borist hans fyrirtæki um breytingar á núverandi skipulagi. En nefnd hefur verið skipuð sem vinnur að endurskoðun framleiðsluráöslag- anna. -ÞG.' "TTTrr” Ms- 1 skýrslu Hagvangs segir að fjölgun hafi átt sér stað á starfsfólki árin 1979 og 1980, þrátt fyrir minnkandi mjólkurmagn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.