Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Page 9
DV. MÁNUDAGUR 30. APRÍL1984.- . 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd L;... Breska lögreglan gaf sendiráöinu góðar gætur af nærliggjandi húsþökum. LEITA AÐ FOLDUM DAUÐAGILDRUM í SENDIRÁÐILÍBÝU Sendiráð Líbýu í London glataði diplómatískri friðhelgi sinni á mið- nætti í nótt en lögreglan leitar þar að leynisprengjum og dauðagildrum áður en hafin verður þar leit að vopnum. Aöallega gerir hún sér vonir um að finna vélbyssuna sem varð ungri lög- reglukonu að bana og særði tíu manns. Ur slíkri byssu var skotiö á mannsafnaö sem hélt uppi mótmæla- aðgerðum við sendiráðið 17. april. Starfsliö sendiráðsins fór heim til Líbýu á föstudag og þá sneri sendiráös- fólk Breta heim frá Líbýu. Einn umsjónarmaður var skilinn eftir í líbýska sendiráðinu til málamynda og yfirgaf hann ekki húsið fyrr en skömmu áður en fresturinn rann út á miðnætti. Skógareldar 1500 hektarar skóga og kjarrlendis eyðilögðust í eldi i Frakklandi um helgina. Mest tjón varð í Bretagne þar sem erfiðast gekk að hemja eldinn fyrir hvassviöri. Síðustu tvær vikur hefur verið þurrviðri, sólskin og hlý- indi í Frakklandi. — Litlu munaði að stórslys hlytist af þegar skógareldur hafði nær umlokið æfingarbúðir hers- ins í norðurhluta Frakklands. ÆTLA AÐ MYNDA ÞJÓDSTJÓRN Rashid Karami, sem tilnefndur hefur verið næsti forsætisráðherra Libanon, kom til höfuðborgarinnar í morgun frá Trípólí til skrafs og ráða- gerða við Gemayel forseta um myndun þjóðstjórnar. — En leiðtogar hægri- sinna kristinna manna koma um leið saman i dag til að ákveöa hvort þeir muni taka þátt í myndun þjóðstjórn- arinnar. Gemayel fól Karami að mynda þjóðstjóm með þátttöku allra fylkinga landsins en í viðtölum við fréttamenn vildi Karami ekkert um það segja hvenær hann mundi kynna ráðuneyti sitt. Karami, sem er Sunnita-múslimi, hefur um helgina átt viöræður við leiðtoga múhameöstrúarmanna þar sem einhver ágreiningur mun hafa verið um fyrirhugaða þjóðstjórn en enginn vafi þykir leika á því aö þeir muni taka þátt i stjórnarmynduninni. Aðalandstaðan gegn þjóðstjómar- myndun kemur frá CamiÚe Chamoun, fyrrum forseta, og samtökum hans og sömuleiöis falangistaflokki Pierre Geymayels, föður Gemayels forseta. Það er vitaö að hinn 84 ára gamli Chamoun er andstæður Karami en vonast til þess að hann muni þó fást til samstarfs. Pierre Gemayel mun hafa sagt syni sínum að hann gæti látið til- leiöast að taka sæti i stjóminni ef flokkur falangista legði blessun sína þar á en flokkurinn hefur ekki enn tekið afstöðu. Kristnir Líbanir eiga verst með að fella sig við Karmai sem forsætis- ráöherra vegna þess að valið á honum var gert í samráði við Sýrland. 3jafniríefstasæti Karpov og Polugayevsky gerðu jafn- tefli í innbyrðisskák í fjórðu umferð alþjóðaskákmótsins í London í gær og halda forystu með 3 vinninga. Einn stigalægsti keppandinn í mótinu, Murray Chandler frá Bret- landi, kom á óvart í gær þegar hann sigraði Ulf Anderson frá Svíþjóð og er Chandler einnig með 3 vinninga. Korchnoi og Ribli gerðu friðsamlegt jafntefli en Seirawan sigraði Vagani- an. — Hafa Ribli og Seirawan 2 1/2 vinninga, en Korchnoi, Timman og Mestel 2 vinninga hver. Anderson, Vaganian og Nunn hafa 1 1/2 hver, Miles hefur 1 vinning, Speel- man hefur 1 vinning og biðskák á móti Torre sem hefur 1/2 vinning. Reaigan Bandaríkjaforseti í Kína: Heimsóknin greiddi fyrir samningunum Heimsókn Bandarikjaforseta til Kína er senn komin að lokum, en í dag vom undirrituö fjögur samkomulags- atriði og sáttmáli um samstarf á sviði kjarnorku, en það síöasta er háð sam- þykki Bandaríkjaþings. Reagan forseti mun halda frá Peking til Shanghai í dag að loknum viðræðum við leiðtoga Kina en Zhao Ziyang, forsætisráðherra Kína, sagði honum viö undirskrift samninganna i morgun að sú athöfn markaöi merkilegan áfanga í samskiptum Kina og Bandaríkjanna. Reagah átti viðræður við Deng Ziaoping, aðalvaldamann Kína, og fleiri leiðtoga á laugardag og sagði Deng þá að Taiwan og þjóðemissinnar væri eftir sem áður efsta mál á dag- skrá í tengslum Kína og Bandaríkj- anna. Sagði Deng að Kína reyndi allt til þess að ná sáttum við þjóðemissinna og sameina eyjuna meginlandi Kína og vonaðist hann til þess að Bandaríkja- stjóm gerði ekkert sem spillt gæti því. Kínversku leiðtogarnir vom gagn- rýnir á stefnu Bandaríkjanna í Mið- Ameríku og tvívegis var sleppt í kínverska sjónvarpinu köflum úr ræðu Reagans þar sem hann í ööru tilvikinu veittist harkalega að Sovétríkjunum og í hinu tilvikinu fór orðum um ágæti kapitalismans og guðstrú. Heimsókninni lýkur á morgun, en á leiðinni heim mun Reagan hitta Jóhannes Pál páfa í Alaska. Tire$tonc V S-211 Nýbýlavegi 2 Sími 42600 Firestone S-211 radial hjólbarðarnir eru framleiddir undir ströngu gæðaeftirliti sem tryggir öryggi þitt og fjölskyldu þinnar. JÖFUR HF Kópavogi Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem utan. Firestone S-211 eru einu radial hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki. Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og endist og endist . . . UMBOÐSMENN UM LAND ALLT! •• + ER FJOLSKYLDA ÞIN J ekk' l . cí OÐRA HJÓLBARÐA VIRÐI ?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.