Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Síða 14
14 DV:MÁNUDAGUR 30. APRIL1984. UMBOÐSMENN VANTAR STRAX HAFIMIR Upplýsingar hjá Magnúsi B. Einars- syni, sími92-6958. BREIÐDALSVÍK Uppiýsingar hjá Steinunni Arnardóttur, sími97-5628. DJÚPIVOGUR Upplýsingar hjá Steinunni Jónsdóttur, sími97-8916. SAUÐÁRKRÓKUR Upplýsingar hjá Ingimar Pálssyni, sími95-5654. Einnig eru allar upplýsingar á af- greiðslu DV, Þverholti 11, sími27022. rr varta OFURKRAFTUR - ÓTRÚLEG ENDING : W. >1'J SAMAN VERDOG Eyðirðu stórfé í rafhlöður? Þá skiptir máli að velja þær sem endast best. Hafir þú reynt VARTA rafhlöður, veistu að þær endast ótrúlega lengi. i rafhlaðna og mest seldu, er verðið á VARTA rafhlöðum með því lægsta sem þekkist. Vertu viss um að velja VARTA rafhlöður - þú færð ofurkraft, fyrir lágt verð. Við erum óhræddir við samanburð - VARTA vestur þýsk háþróuð framleiðsla VARTA GÆÐIÁ GÓÐU VERÐI ávallt í leiðinni FJÁRLAGAGATIÐ OG BÆNDASTÉTTIN Þaö mun hafa verið í síðustu viku að í leiöara DV birtist grein sem fjallaði um fjárlagagatið margumtalaða og leiðir til að finna fjármagn til að fylla í það. Eins og vænta mátti átti ritstjóri blaðsins ekki í vandræðum með að finna fjármagn til aö fylla í það gat og meira en þaö. Nú var gulliö tækifæri tU aö fækka bændum svo um munaði. Hætt skyldi að greiða útflutningsupp- bætur á landbúnaöarafurðir. Niður- greiðslur skyldu afnumdar á land- búnaðarafurðir og fleiri heilræði nefnd í sama dúr. Ef fariö væri að þessum heilræðum ritstjórans mundi kaup bænda lækka um allt að helming. Því að þótt niöurgreiðslur séu fyrst og fremst ætlaðar til að lækka verð búsaf- urða til neytenda þá mundi kauþ þeirra v á búvörum sem greiddar eru niður stórminnka og þar með safnast upp birgöir sem flytja yrði út ef hægt yröi aö finna markaö fyrir þær. Þó að nú liti út fyrir að hægt sé að selja mikiö kjöt til Bandaríkjanna þá er veröiö fyrir það svo lágt ennþá að útilokaö er að nýta þann markað nema útflutnings- uppbætur haldist óbreyttar. Þarna er hins vegar um mjög stóran markað aö ræða og ef neytendum þar líkaði dilka- kjötið vel, eins og ástæða er til að ætla, gæti svo farið að verð á því stórhækk- aði á þeim markaði á fáum árum. Þess vegna er það stórmál fyrir sauðfjár- bændur, og reyndar þjóðina alla, ef takast mætti að vinna þar góðan ör- uggan markað. Þá kynni svo aö fara að innan fárra ára yröu útflutningsbætur á lambakjöti óþarfar. Eg vil benda á aö mér vitanlega hefur engin önnur stétt en bændur unnið skipulega að þvi á undanförnum árum að takmarka framleiöslu sína. Á nokkrum árum hefur sauðfé hér á landi verið fækkaö um nær 20%. Mjólkurframleiðsla hefur einnig minnkaö mikið, þótt því miður hafi orðiö nokkur aukning á henni á Noröurlandi síöastliðið ár. Þessi samdráttur hefur komið mjög illa við fjárhag bænda eins og kunnugt er. Eg fullyrði að engin stétt í landinu hefði sjálf haft frumkvæði að því aö rýra kjör sín á þennan hátt nema bændur. En þeir gerðu sér ljóst fyrir nokkrum árum að í óefni stefndi og grípa varð til róttækra ráðstafana ef ekki átti illa aö fara. Ef ríkisvaldið sviptir þá svo þeim stuðningi sem þeir hafa af útflutnings- bótum samkvæmt lögum má búast viö algeru hruni í landbúnaðinum, og það er einmitt það sem ritstjóri DV óskar eftir. Erfiðleikar þjóðarbúsins Allir þekkja þá erfiöleika sem steöja aö þjóðinni nú í efnahagsmálum og sem meöal annars stafa af minnkandi þorskveiði. Er sanngjamt að undir- stööuatvinnuvegimir, landbúnaöur og sjávarútvegur, taki á sig allan vanda þjóðarbúsins en ýmis annar atvinnu- rekstur og þjónusta græði fé á sama tíma? Ritstjórinn gerir sér ljóst aö ef farið væri að tillögum hans þá þyrfti fljótlega að flytja inn landbúnaðar- vömr í stórum stíl, en það er honum ekkert áhyggjuefni. Nógur er gjald- eyririnn hér á landi!!! Ef til vill hugsar hann sér að þjóðin bæti sér upp mjólkurskort með bjórframleiðslu. Gerum ráð fyrir að þessar tillögur rit- stjórans yrðu framkvæmdar, þá má búast við aö bændum fækki um allt að helming á næstu árum, og margar sveitir fari í eyði. Eg geri ráð fyrir að það yrði ritstjóranum mikið gleðiefni, miöaö við það hvaö hann hefur notaö mikið rúm í blaði sínu til aö níða niður og ófrægja bændastéttina síðustu árin. Þó má líklega undanskilja svína- og alifuglabændur, en þeim hefur hann verið vinveittur. Nýlega hafa komið fram upplýsingar um aö í svína- og ali- fuglafóöur sé blandaö fúkkalyfjum og litarefnum. Menn eru hins vegar stranglega varaðir við að drekka mjólk úr kúm, sem hafa fengiö fúkka- lyf, í fjóra sólarhringa frá því lyfjagjöf var hætt. Það er kannski í lagi að borða SIGURÐUR LÁRUSSON BÓNDI, GILSÁ, BREIÐDAL svinakjöt, kjúklinga og egg þó aö dýrunum hafi verið gefin fúkkalyf daginn áöur en þeim var slátraö? Ekki man ég eftir að DV hafi varað við því. Líklega er dilkakjötið okkar lausara viö mengun en flest önnur matvæli sem við borðum og áreiöanlega hoilara en svína- og kjúklingakjöt þó að DV reyni sífellt að níða það niður. Þýsku nasist- amir notuðu þá aðferð mikið i áróöri sínum að endurtaka lygina nógu oft þar til fólk trúði henni að lokum. Sömu aöferðum finnst mér aö DV hafi löngum beitt gegn hinum hefðbundnu greinum í landbúnaðinum og bændum. Útreikningar Ekki skal dregið í efa að Jónas rit- stjóri er vel greindur og töluglöggur maður. Þess vegna langar mig að biðja hann að reikna út hagkvæmni þess ef 2000 bændur, sem framleiða kindakjöt og mjólk, hættu búskap. Þá eru það einkum eftirfarandi atriði sem mig langar að fá svör viö. 1. Hverteigaþeiraðflytja? 2. Hvaða likur eru til að finna mætti störf við þeirra hæfi í því atvinnu- ástandisemnúer? 3. Hvaðkostaðiaðbyggjahúsyfir2000 fjölskyldur á þéttbýlissvæðunum? 4. Hvað yrði um þau verömæti sem þeir yrðu að skilja eftir á jörðum sínum, íbúöarhús, peningshús, ræktað land, girðingar, vélar varð- andi búreksturinn og fleiri verðmæti. Verðmæti þessi gætu hugsanlega verið á bilinu frá tveimur til tíu milljóna. Ætti þaö tap aö lenda á viðkomandi bónda eða á þjóöarbúinu? 5. Hver ætti að greiða stofnlánaskuldir bændanna við lánastofnanir. Ættu bankamir kannski að bera það bóta- laust? Margra fleiri spurninga gæti ég spurt en læt þessar nægja í bili. Frá mínu sjónarmiði eru öll skrif ritstjór- ans um landbúnaðarmál byggð á van- þekkingu eða illvilja í garð bænda. Mér finnst hann líta á bændur sem rétt- lausa menn sem hægt sé aö ráðstafa eftir þörfum annarra eins og taf lmönn- um á skákborði. Að lokum vil ég vekja athygli á þeim mikla áróðri sem DV hefur rekið fyrir svína- og alifuglarækt, en jafnframt benda á fjölda fjandsamlegra greina um kinda- og kúabúskap. En hvort er þjóðhagslega hagkvæmara ef grannt er skoðað? Eg bendi á, aö mestallt fóður svína og hænsna er innflutt en mikill meirihluti kinda- og nautgripa- fóðurs er innlent, þó alveg sérstaklega kindafóðriö. Eg vil líka leyfa mér að benda á þann fjölda fólks sem hefur sitt framfæri af sauðfjárframleiðsl- unni, einkum í ullar- og skinnaiðnaöi. Og þjóðarbúiö fær miklar gjaldeyris- tekjur af útflutningi ullar- og skinna- vara. Ef ég man rétt þá er það sá iönaður sem gefið hefur mestar útflutningstekjur hér á landi undan- farin ár að undanskildu álverinu í Straumsvík. Auk'þess er notað veru- legt magn af þessum vörum innan- lands. Þá má minna á að þessi fram- leiðsla skapar miklu fleiri atvinnutæki- færi en álverksmiðjan og það er mikil- vægt þegar þröngt er orðiö um vinnu. Loks má minna á að trúlega má enn stórauka þessa framleiösíu ef sauöfé fækkar ekki enn að miklum mun. Þess vegna finnst mér þessi stanslausi áróður í DV illskiljanlegur og greini- legt að þar er aðeins skoðuð ein hliðin á þessum málum. Það þjónar ekki hagsmunum landsmanna. Það er alkunna aö allar nágranna- þjóðir okkar styðja landbúnað sinn í stórum stíl, flestar miklu meira en Islendingar. Margar þeirra keppast við að áuká framleiöslu sína svo þær geti verið sjálfum sér nógar hvað bús- afurðir snertir. Má þar meðal annars minna á Noreg. Islenskir bændur hafa fengið að kenna á því í sambandi við útflutt dilkakjöt. Aö lokum vil ég hvetja alla islenska bændur til að standa saman gegn þeim niðurrifsöflum sem vilja landbúnað á Islandi feigan. Styrkið og fegrið líkamann DÖMUROG HERRAR! NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST 2. MAÍ. HINIR VINSÆLU HERRATÍMAR í HÁDEGINU Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ósamt megrandi æfingum. Sórtimar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértimar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar i baki eða þjóst af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufu- böð — kaffi — og hinir vinsælu sólaríurn-lampar. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Júdódeild Ármanns Á *! 99 Innritun og upplýsingar alla virka daga Armuia sz. kL 13-22 \ síma 83295.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.