Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Blaðsíða 16
16
DV. MÁNUDAGUR 30. APRIL1984.
Spurningin
Hvenær feröu að sofa?
Jóna Jónsdóttir: Eg fer aö sofa
klukkan 10 en það er misjafnt hvenær
ég sofna. Svo vakna ég aftur átta á
morgnana.
Guðrún Jörgensen: Eg sofna yfirleitt
um miðnætti þó að það geti dregist.
Það fer eftir því hvemig skapið er.
Hjördis Ingvarsdóttir: Eg fer að sofa
klukkan 12. Nei, ég les aldrei í rúminu.
Svo vakna ég oftast um áttaleytið.
Klara Frimannsdóttir: Eg fer aö sofa
klukkan 10, en sofna ekki alltaf strax.
Eg fer alltaf á fætur klukkan átta á
morgnana.
Hálfdán Jónsson: Eg sofna á miðnætti
og er svo rokinn upp klukkan 7 um:
morguninn.
Halldór Sigurðsson sendibílstjóri:
Sofna hálftvö og vakna níu. Það er yfir-
drifið.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Frá Bergþórshvoli.
Deilur prests og þingmanns
Athugasemd við skrif Snorra Þorvaldssonar
Sveitungl skrifar:
Enn geysist Snorri Þorvaldsson
fram á ritvöllinn í DV til að halda
áfram skrifum fyrir skjólstæðing sinn,
séra Pál. Það er furðulegt að Snorri
skuli halda áfram þeirri iðju sem hann
hóf í DV um daginn með miður falleg-
um lýsingum á sveitungum sínum. Og
að vera aö lýsa fyrir alþjóð hversu
mikill „lýðræðissinni” hann hafi verið
á fundinum aö reyna að varna tengda-
móöur sinni að greiða atkvæði. Þetta
er jafnvel meira en menn bjuggust við
af honum, en eru þó ýmsu vanir.
Allir heimamenn í Vestur-Landeyj-
um þekkja fleyg þann sem er á milli
Snorra og tengdamóður hans og vita
jafnframt að sá fleygur er frá Snorra
kominn. Ekki þýðir fyrir hann að koma
bví á aðra. Fundarmenn á safnaðar-
fundinum í Akurey þekkja og háreystinai
er frá Snorra kom er hann var að mót-
mæla veru hennar, að hún heföi ekki
kosningarétt og væri raunar ekki í
sóknamefnd, eins og sumir sögöu á
fundinum, án þess að nöfn séu nefnd,
en Snorra eru þau kunnug. Hafði hún
þó veriö kölluö á sóknamefndarfundi
er þeir vom haldnir og biskup lýsti því
yfir á fundinum að hún væri í sóknar-
nefnd þar til nýr maöur yröi kosinn á
fundinum og jafnframt aö hún heföi at-
kvæðisrétt.
Varöandi lögregluskýrslu sem lesin
var upp á fundinum er þaö aö segja aö
hún er kæra séra Páls á eitt sóknar-
barn sitt. Snorri segir að fólkinu hafi
ekki ofboðlð kæran heldur aö hún skuli
lesin upp í kirkju. Sem sagt, Snorri er
bara ánægður meö kæruna frá prestin-
um, má lesa út úr þessum orðum hans.
En hljóta ekki samskipti prests og
saf naðar aö vera eitt höfuðumræðuefni
á safnaöarfundi?
Þaö er alþjóö kunnugt, af blaöa-
skrifum Snorra, að messan í Akurey
var óvenjustutt, stóð aðeins hálfan
tíma, og því flutti séra Páll stutta
ræðu. (Að vísu má deila um hvort
messan stendur enn því ekki er búiö
að hringja út.) Upplestur á skýrslunni
var viðbótarræða frá séra Páli. Því
það voru orð hans sjálfs sem lesln
voru. Eiga þau ekkl erindl til safnaðar-
ins?
Og hefði verið nokkuð athugavert
þótt lesiö heföi verið meira af svo góöu
frá séra Páli, bæöi kærubréf og blaða-
skrif? Það hefðu þá verið orð séra Páls
sem lesin voru, viðbótarræður frá hon-
um.
Lætur sóknarprestur nokkuð frá sér
fara á rituðu máli sem ekki má lesa í
kirkju?
Eða eru stuðningsmenn séra Páls
svo gramir yfir upplestrinum vegna
þess að þeir vilja fela það sem séra
Pálleraðgera?
Snorri er enn að tala um að menn
vilji flæma séra Pál í burtu. Hann bara
athugar ekki hverjir eru raunverulega
að því. Hverjir eru það?
Fyrst skal frægan telja séra Pél
sjálfan sem með sinni stöðugu fram-
göngu er duglegastur við að koma
sjálfum sér í burtu. En einnig, og ekki
síður, eru hinir svokölluðu stuðnings-
menn séra Páls duglegir aö kynda
hann upp og hleypa aukinni úlfúö í
málið. Með sinni stööugu iðju tekst
þeim að flýta för séra Páls í burtu.
Þeir skyldu því sem fyrst fara að líta í
eigin barm, og þó fyrr hefði verið.
Lesendabréf
Eyjó skrifar:
Lengi hefur það hvarflað aö mér
að senda ykkur bréfkorn en ekki hef-
ur orðið af því ennþá. Veit ég þó um
f jölda manna sem hefur létt af sér
þungum byrðum með því að skrifa
ykkur harðorð bréf. Eg hef oft verið
kominn að ritvéiarboröinu en þegar
á hefur reynt hef ég brugðist. Er ég
allajafnan svo æstur að meiöyrða-
mál hefði oröið úr öllu saman. En
alltaf þegar ég opna dagblöðin og les
þaö sem þar er ritað verð ég bálillur.
Minnst einu sinni á dag verð ég trítil-
óður. Þaö eru ýmis mál, sitt af
hverju tagi, sem ergja mig. Nú finn
ég að æsingurinn er að yfirtaka mig
þannig að ég læt þessu lokið. Skrifa
kannskiseinna.
Jörðin flöt
Tvær að uorðan skrif a:
Þriöjudaginn 3.4. rákumst við á
grein í DV um Flat Earth Society.
Þetta vakti mikla undrun hjá okkur
og langar okkur þess vegna að biðja
ykkur að fá svör við nokkrum spurn-
ingum. Kannski vill reykvíski lög-
maöurinn, sem þiö sögöuð frá, svara
þeim?
Hvaða lönd eru í miðjunni og hver
eruviðjaöarinn?
Hvaö er hinum megin á jörðinni?
Af hverju er sjóndeiidarhringur-
inn boginn?
Hvers vegna rennur sjórinn ekki
útaf jörðinni?
Hvaðerjörðinþykk?
Við vonum að lögmaðurinn geti
svaraö þessum spumingum.
Kenna
öðrum um
Gunnar Sigurðsson skrifar:
Það er einkennilegt með þessa at-
vinnuknattspymumenn. Alltaf þegar
eitthvaö fer úrskeiðis hjá þeim þá er
skuldinni skellt á þjálfarann.
lslensku atvinnumennimir okkar
eru talandi dæmi um þetta. Sævar
Jónsson kenndi þjálfaranum um
stórtap sem lið hans lenti i í vetur.
Láms Guðmundsson lenti í útistöð-
um við þjálfarann sinn, eins og allir
muna, og kenndi honum um allt sam-
an.
Og nú er Pétur Pétursson enn einu
sinni farinn af stað. Nú vill hann fá
sig lækkaöan í verði og fara til
Feyenoord. Mig minnir að hann hafi
sagst alfarinn þaðan er hann var
seidur frá þeim til Anderlecht fyrir
nokkrum árum.
Þessir menn ættu að hugsa sinn
gang.
Enginn
hundaskítur
áNesinu
Göngugarpur skrifar:
Eg bý á Sejtjamarnesi og hef gert
svoiitið að því aö undanfómu aö kíkja
eftir hundaskít sem á víst að vera
svo mikillíbænum.
Eg hef lítið séö af honum en aftur
á móti hef ég gengið fram á mikið af
hestaskít. Hann er eins og allir vita
mun fyrirferðarmeiri en kúkur hund-
anna og óþægilegri að stíga í.
Vírðist mér svo sem eitt heista
vígi hundaandstæðinga hafi verið á
sandi byggt.
Svæfandi
spenna
Jón Axelskrifar:
Eg hélt nú aldrei aö það ætti eftir
aö koma upp sú staöa að ég sofnaði
viö aö horfa á sakamálamynd. En
það varð nú samt raunin meö Snák-
inn í sjónvarpinu í þriðjudaginn var.
Jæja, þetta er nú bara annar mis-
heppnaði sakamálamyndaflokkur-
inn í röð sem sjónvarpið festir kaup
á. Það hef ur svo sem verið verra.
Úr Þýskaland, föla móðir.
Þýskaland,
föla móðir
Ellen Larsen hringdi:
Mig langar bara til að þakka sjón-
varpinu fyrir hina ágætu mynd,
Þýskaland, föla móðir, sem sýnd var
i sjónvarpinu á föstudaginn langa.
Þetta var stórgóö mynd og ég
vona bara að sjónvarpiö haldi áfram
ásvipaðri línu.
Knapp bjargar
málunum
Baldur skrifar:
Nú fara góðir tímar í hönd í knatt-
spymumálum okkar Islendinga. Með
tilkomu Tony Knapp í landsliðsþjálf-
arasætið getum við búist viö að boltinn
hækki jafnhratt og sól á lofti þessa dag-
ana. Knappurinn bjargar þessu.
SnarirSVR-
menn
Gáriskrifar:
Ég skrifaði í.lesendur’DV fyrir um
hálfum mánuði og kvartaði þá yfir
ómerktri strætóstoppistöð i Armúlan-
um.
Menn hjá SVR brugöust fljótt og vel
við og nú er risinn fagur og vel merkt-
ur staur.
Þakka snarræðið.