Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Page 24
DV. MANUDAGUR 30. APRIL1984. íþróttir Iþróttir fiþróttir Enn sigraði MagnúsJónsson — á opna golfmótinu á Strandarvelli Magnús Jónsson, GS, varð sigurvegari á fyrsta opna golfmótinu í ár á Strandarvelli á RangárvöUum. Lék á 75 höggum cn par vailarsins cr 70 högg. Þetta er í þriöja sinn sem þetta mót er háð og Magnús hefur alltaf sigrað. Golfklúbbur HeUu sá um mótið. Keppendur voru 96 frá Reykjavíkurklúbbunum, Suöur- ncsjum, Akranesi, Borgarnesi og af Suður- landi. Annar i keppni án forgjafar var Hilmar Björgvinsson, GS, og þriðji Öskar Sæmunds- son, GR, einnig á 77 höggum en með iakari árangur á lokaholunum. I keppni með forgjöf sigraði Friðrik Andrésson, GR, á 68 höggum nettó. Smári Jóhannsson, GOS, annar á 69 höggum og Sigurjón Amarson, GR, þriðji með 71 högg. hsim. Sá ítalski ók hraðast — íbelgíska grand prix kappakstrinum Itaiinn Miehele Aiboreto sigraði í belgíska grand prix kappakstrinum í Zolder í Belgíu í gær. Ok Ferrari-bíl stnum á 1 klst. 36.32,048 og var mcðalhraði hans 185,430 km. Derek Warwick, Bretlandi, varð annar á Renault á 1:37.14,434. Rene Araoux, Frakklandi, varð þriðji á Ferrari á 1:37.41,851 og heimsmeistar- inn, Kekc Rosberg, Finnlandi, fjórði á Williams, einum hring á eftir. I stigakeppninni er Alain Prost, Frakk-, landi, cfstur með 15 stig. Warwick annar með 10 stíg en síðan koma Alboreto, Niki Lauda, Austurríki, og Rosberg með 9 stig. hsím. Ovett stakk af á lokasprettinum Stcve Ovett frá Brighton, heimsmethafinn í 1500 m hlaupi, vann auöveldan sigur í milu- hlaupi í París á laugardag. Hljóp frá keppinautum sínum þegar 250 metrar voru í mark en margir frægir hlauparar tóku þátt i hlaupinu. Þeir réðu ekkert við lokasprett Ovetts og þar á meðal voru Thomas Wessinghagc, V-Þýskalandi, og Steve Maree, USA. Tími Ovett var 3:56.12 mín. Jose-Luis Gonzales, Spáni, varð annar á 3:56.80 mín. Jose Abascal, Spáni, varð þriðji á 3:57.35 min. og Pasca. Thiebaut, Frakklandi, fjórði á 3:58.34 mín. hsím. Iþróttir Mörkin komu á færífijandi ogStuttgart þokast nær Ásgeir skoradi tvö mörk í 6-0 sigri Stuttgart gegn Niimberg Frá Hilmari Oddssyni, fréttamanni DV i Þýskaiandi. Stuttgart vann stærsta útisigur sinn frá 1963 um helgina er Asgeir og félagar heimsóttu botnliðið Niiraberg og hreinlega rúlluðu þeim upp eins og sagt er og þegar flautað var til leiks- loka hafði Stuttgart skorað sex mörk en Niimberg ekkert. Asgeir Sigurvinsson átti mjög góöan leik og hann skoraði tvö mörk í leikn- um, þriðja og f jórða markiö. Hin mörk-1 in skoruöu þeir Allgöwer, Olicher, Miiller og Reichert skoraði síöasta markið. Stuttgart er því enn efst í Bundesligunni en keppnin á toppi hennar er æsispennandi. „Þetta var góður sigur hjá okkur og mjög mikilvægt að skora svona mörg mörk. Þaö kæmi mér ekki á óvart þótt markahlutfall réði úrslitum í lokin,” sagði Benthaus, þjálfari Stuttgart, eftir leikinn og var hinn hressasti með sína menn, enda varla annaö hægt. Auðvelt hjá Bayern Bayem Múnchen vann næsta auð- veldan sigur á Frankfurt og var snill- ingurinn Karl Heinz Rummenigge í essinu sínu í leiknum. Hann skoraöi tvö af mörkum Bayern en lokatölur uröu 3—0. Matthi skoraði þriöja markiö. Leikmenn Frankfurt fengu tækifæri til aö jafna leikinn á 33. mínútu þegar dæmd var vítaspyrna á Bayem. En þeim tókst ekki aö skora úr spymunni. Skotiö var hátt yf ir markiö. Jafntefli KR ogVíkings Staðan á Reykjavíkurmótinu í knatt- spyran eftir leiki helgarinnar er þessi: Fylkir—Armann 3—2 Víkingur—KR 2—2 KR 4 2 2 0 11-7 8 Fram 3 2 1 0 7—0 7 Fylkir 4 2 0 2 8-13 6 Þróttur 3 111 4—1 4 Valur 10 10 3—3 2 Víkingur 2 0 11 4—5 1 Armann 3 0 0 3 2—10 0 Næsti leikur er á morgun en þá Ieika Fram og Valur. Á miðvikudag leika síðan Armann og Víkingur. -SK. Stórsigur hjá Hamborg 34 þúsund áhorfendur urðu vitni aö því þegar Hamborg tók Köln í kennslu- stund á heimavelli, Köln. Lokatölur 1— 4 og aldrei nein spurning hver úrslit leiksins yrðu. Þaö voru þeir Kaltz, Schapzschneider, Schröder og Rolff sem skoruðu fyrir Hamborg en Klaus Allofs skoraöi eina mark Kölnar- liðsins. Stórkostleg heppni hjá Gladbach Þaö var alveg meö ólíkindum hve heppnin lék viö leikmenn Borussia Mönchengladbach í leik liösins gegn Kaiserslautern. Gladbach sigraöi 3—2 og skoraði Frantszek sigurmarkiö á síðustu sekúndu leiksins. Og ekki nóg meö það. Knötturinn fór í gegnum klof- iö á markveröinum snjalla, Ronnie Hellström. Úll toppliðinn unnu því leiki sina í Bundesligunni um helgina og er staöan því óbreytt frá síðustu helgi. Urslit í öðrum leikjum: K. Offenbach—F. Diisseldorf 5—1 W.Bremen—Billfeld 3-0 Brunsweig—Leverkusen 0-0 Bochum—Dortmund 2-2 Mannheim—Uerdingen 1-4 -SK Kúlan f laug yf ir 21 metra markið Frá Jóni Þór Gunnarssyni, frétta- manni DVÍUSA. Það var mikið um frjálsíþróttamót í Bandaríkjunum um helgina og viða náðist góður árangur. Á móti í Phila- delphíu sigraði Augie Wolf í kúluvarpi. Varpaði 21,22 m og hefur stórbætt árangur sinn að undanförau. Gamli garpurinn Brian Oldfield, sem varpaði 22,86 m sem atvinnumaður 1975, varð annar með 20,89 m og þriðji Michael Carter með 20,06 m. Bretinn Roald Bradstock, sem stundar háskólanám í USA, kastaöi spjóti 84,32 m og hefur góöa möguleika á aö komast í breska ólympíuliðið. Adam Dixon, USA, náði besta tíma ársins í 1500 m hlaupi í USA þegar hann sigraöi á 3:36,71 min. Landar hans, Chuck Aragon og Ross Donoghue, hlupu á 3:36,80 og 3:36,95 mín. Kanadamaðurinn Mark McKoy sigraöi í 110 m grindahlaupi á 13,78 sek. eftir aö Roger Kingdom, USA, hafði komið fyrstur í mark á 13,8 sek., en var dæmdur úr leik. A móti í Des Moines í Iowa sigraöi besti millivegalengdahlaupari USA, Steve Scott, í 1500 m á 3:38,27 mín. William Wuyke frá Venezúela, sem stundar háskólanám í Alabama eins og margir Islendingar, sigraöi í 800 m hlaupi á 1:47,0 mín. Heimsmeistarinn Calvin Smith, USA, sigraði í 200 m hlaupi á 20,55 sek. en varö aö láta sér nægja annað sæti í 100 m á 10,34 sek. Rod Richardson, USA, sigraöi þar á 10,32 sek. -JÞG/hsím. „Möguleikar mjög góðir” Alf reð og félagar unnu um helgina „Þetta var mjög mikilvægur sigur hjá okkur og nú er bara að duga eða drepast um næstu helgi en þá leikum við siðasta lcikinn í deildinni,” sagði Alfreð Gíslason, handknattleiks- maður hjá Essen, í samtali við DV í gærkvöldi. Essen vann Dankersen á heima- velli um helgina með 14 mörkum gegn 7 eftir að staðan hafði verið 5—4 íleikhléi Essenívil. „Viö hreinlega uröum aö vinna þennan leik og það var nokkur tauga- spenna í þessu hjá okkur í byrjun. En þetta lagaöist allt saman þegar líöa tók á leikinn og ég er sáttur viö mína frammistöðu. Eg skoraöi þrjú mörk í leiknum,” sagöi Alfreö. Essen mætir Schwabing á útivelli í síöasta leiknum í Bundesligunni um næstu helgi og Grosswaldstadt, keppinautur Essen um titilinn, leikur gegn Gummersbach á útivelli. Grosswaldstadt vann Húítenberg á útivelli úm helgina meö 24 mörkum gegn 16. Þaö er því ljóst aö úrslitin ráöast ekki fyrr en að loknum síöasta leikn- um. Essen stendur vel aö vígi, er með mun betra markahlutfall en Grosswaldstadt. Munurinn 17 mörk þannig að Essen verður Þýskalands- meistari hafi liöin jafnmörg stig aö keppni lokinni. Þau eru jöfn aö stigum fyrir lokaátökin. -SK. íþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir íþró

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.