Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Qupperneq 25
DV. MÁNUDAGUR 30. APRIL1984. 25 óttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Ásgeir skoraði tvívegis í Niirnberg. i STAÐAN Staðan i Bundesligunni þýsku eftir leiki helgarinnar er þessi: Stuttgart 30 17 9 4 70—28 43 Bayern 30 18 6 6 74—34 42 Hamborg 30 18 6 6 66—32 42 B. M. Gladbach 30 18 6 6 68—42 42 Werder 30 16 7 7 65-37 39 Leverkusen 30 13 8 9 48-43 34 Köln 30 13 5 12 55-49 31 Uerdingen 30 12 7 11 58—61 31 Diisseldorf 30 11 7 12 57—59 29 Bielefeld 30 10 8 12 36—45 28 Klautern 30 11 5 14 60—57 27 Braunschweig 30 11 5 14 47-65 27 Dortmund 30 9 7 14 45—58 25 Mannheim 30 7 11 12 36-54 25 Bochum 30 7 8 15 47—65 22 Frankfurt 30 4 12 14 35-58 20 Offenbach 30 7 5 18 42—86 19 Niirnberg 30 6 2 22 34—70 14 Fulham vann Tveír leikir voru í ensku knatt- spyrnunni í gær. t 2. deild tapaði Blackburn á heimavelli, 0—1, fyrir Fulham og í 4. deild gerðu Swindon og Mansfield jafntefli, 1—1. Lokaleikurinn hjá ióni Sig —tryggði Islandi sigur gegn Skotlandi í sínum 120. og síðasta landsleik Körfuknattleiksmaðurinn Jón Sig- urðsson iék i gærkvöldi sinn síðasta landsleik í körfu þegar íslendingar mættu Skotum á EM í Osló. Jón til- kynnti þetta fyrir leikinn og síðasti landsleikur hans á örugglega eftir að verða honum minnisstæöur um ókomin ár. Isiand sigraði í leiknum, 96—95, eftir framlengingu og það var Jón sem tryggði íslenska liðinu framlenginguna og svo sigur í leiknum. Hann jafnaði leikinn, 89—89, meö langskoti á síðustu sekúndu og í fram- lengingunni skoraði hann tvö stig úr vítum þegar 37 sek. voru til leiksloka og kom Islandi yfir, 96—95, og Skotum tókst ekki aö skora fleiri körfur. Leikurinn í gærkvöldi var 120, lands- leikur Jóns Sigurðssonar en hann var 17 ára þegar hann fyrst lék í lands- liðinu. Verður mikil eftirsjá í þessum snjalla leikmanni. Leikurinn í gærkvöldi var mjög jafn allan tímann og verður þaö aö teljast nokkuð óvænt miðað við önnur úrslit á mótinu. Reiknað var með stærri sigri hjá íslenska liðinu. Torfi Magnússon var mjög góður í þessum leik, skoraði 24 stig og hirti 11 fráköst. Valur Ingi- mundarson skoraði 18 stig, Kristján Ágústsson 17, Garöar Jóhannsson 16, Jón Sigurðsson 7, Sturlá Orlygsson 7 og Flosi Sigurðsson skoraði 7 stig. Loka- staðan í riðlinum fylgir hér á eftir. Norðmenn sigruðu og færast því í B- I Portúgal keppnina næsta ár. Island Noregur 4 4 0 362—291 8 Skotland Danmörk .4 3 1 332—227 6 4 2 2 287-280 4 4 1 3 296-324 2 4 0 4 299-352 0 -SK. Beveren þarf eitt stig — til að tryggja sér meistaratitilinn í Belgíu Frá Kristjáni Berndburg, fréttaritara DVíBelgíu: Ekkert nema kraftaverk virðist nú geta komið í-veg fyrir að Beveren verði belgískur meistari í knattspyrnu í ár. Liðiö hefur fjögurra stiga forskot á Anderlecht þegar tvær umferðir cru eftir og á eftir að leika gegn frekar slökum liðum. Liðinu nægir því aðeins eitt stig út úr þessum tveimur leikjum. Beveren sigraði Lokeren á útivelli á laugardag, 0—1, á meðan Anderlecht tapaði á útivelli gegn Lierse, 2—1. Arnór kom inn á sem varamaður þegar 15 mínútur voru til leiksloka en eftir leikinn sagðist hann ekki reikna meö því að leika meira með Anderlecht á þessu keppnistímabili. Pétur lagði Jón á klofbragði — tryggði sér sigur í úrslitaglímu þeirra og nafnbótina glímukóngur íslands 1984 Pétur Ingvasón tryggði sér um helg- ina sigur í Islandsglimunni í fjórða sinn. Hann keppir fyrir HSÞ og sigraði Jón Unndórsson, Leikni, í úrslitum á glæsilegu klofbragði. Pétur vann allar sínar glímur og hlaut 4 vinninga, Jón 3, Kristján Yngvason, HSÞ, 2, Ami Þór Bjarnason, KR, 1 og Marteinn Magnússon, KR, nældi sér ekki vinn- ing. Upphaflega áttu keppendur í þessari 73. Islandsglímu að vera 10 talsins en fimm boðuðu forföll. Glimt var að Laugum í Þingeyjarsýslu og voru aðstandendur og áhugamenn glím- unnar mjög ánægðir með keppnina.-SK, Lárus Guðmundsson náði ekki aö skora fyrir Waterschei gegn Searing en leiknum lauk með jafntefli, 1—1. Pétur Pétursson lék með Antwerpen gegn Standard Liege og tapaði iiö hans, 1—2. Pétur skoraði ekki. Belgíski landsliðsmaöurinn Meeuws var seldur um helgina frá Standard Liege tii Ajax en þessi sterki varnarmaður lenti í mútumálinu fræga hér fyrir nokkru. Pétur Ingvason, tslands 1984. HSÞ, glímukóngur Sigurður Grétarsson. Fjórtánda mark — en það nægði ekki og Tennis Borussia tapaði „Eg held að möguieikar okkar tli að komast í úrslitakeppnina um sæti í 2. deUd séu nú úr sögunni eftir tap gegn efsta liðinu í Oberlíg- unni hér í Berlín, 2—3, í gær,” sagði Siguröur Grétarsson, miðherjinn snjalli úr Kópavogi, sem nú leikur með Tennis Borussia Bcrlín. Það var Blau Weiss 90 sem sigraði Tennis Borussia, 3—2, í gær og hefur nú 51 stig í Oberligunni. Tennis Borussia hefur 47 stig og hefur leikið einum leik minna. Tvær umferöir eftir og Blau Weiss verður að tapa til þess að Sigurður og félagar hans komist í úrslita- keppnina. „Það voru 7000 áhorfendur hér á leikveUi Tennis Borussia og stemmning mikU. Leikur- inn mjög harður, 0—0 í hálfleik, en síðan skoraöi Blau Weiss tvívegis. Mér tókst aö minnka muninn í 1—2 með skalla cftir horn- spyrnu. Blau Weiss komst síðan í 1—3 og vann 2—3. Eg þarf nú að athuga mín mál hér í Berlín. Þaö brcytir miklu ef Tennis Borussia kemst ekki í úrslitakcppnina og nú aUs ekki útilokað að ég komi heim í sumar. Þó best að segja sem minnst um það,” sagði Sigurður. Hann hefur skorað 14 mörk með Tennis Borussia í tíu leikjum, eða frá því hann byrjaði að ieika með liöinu 5. febrúar sl. -hsim. Sveit Vogaskóia sigraði — íbridgekeppni grunnskólanna Bridgesveit Vogaskóians sigraði í bridge- keppni grunnskólanna sem háð var í Breið- holtsskóia á föstudag. Sveitin hlaut 43 stig og í henni spUuðu Olafur Þröstur Olafsson, Jón Garðar Guömundsson, Gunnar Þorri Þorieifs- son, Guðmundur H. Harðarson og Helgi Bogason. A-sveit Brelðholtsskóla varð í öðru sæti með 35 stig og sveit Laugalækjarskóla i þriðjasætimcð32stig. hsím. íþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.