Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Qupperneq 40
40 DV. MÁNUDAGUR-30, APRIL. 1984, • Andlát 1 Fundir Ragnar Kristjánsson, fyrrverandi vörubifreiöarstjóri, áöur til heimilis aö Reykjum viö Sundlaugaveg, andaðist 21. apríl. Hann var fæddur 18 . 3.1902 aö Kárastööum í Þingvallasveit. For- eldrar Þórarinn Kristján Ámundason og Gréta María Sveinbjamardóttir. Hann var kvæntur Önnu Margréti Olafsdóttur sem lést fyrir 11 árum. Utför hans veröur gerö frá Fossvogs- kirkju miövikudaginn 2. maí kl. 13.30. Halldóra Halldórsdóttir, Bárugötu 21, lést 27. apríl. Siguröur Guöbrandsson, fv. mjólkur- bússtjóri í Borgarnesi, lést í St. Jósefs- spítala í Hafnarfiröi aö morgni 25. apríl. Ingólfur Blöndal læknir lést í Japan 20. þ.m. Páll Guðjónsson frá Isafiröi, Hjalta- bakka 18, Reykjavík, verður jarösung- inn frá Fossvogskirkju í dag, mánu- daginn 30. apríl kl. 13.30. Anna Kr. Kristinsdóttir, Tjarnarflöt 7 Garðabæ, andaöist 27. apríl. Laufey Bryndís Jóhannesdóttir, Garðastræti 43, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni i Reykjavík miöviku- daginn2.maíkl. 13.30. Daníel Þorsteinsson klæöskeri frá Selfossi, Akraseli 33 Reykjavík, sem lést 19. apríl, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. mai kl. 15. Þór Hólmkelsson veröur jarösunginn frá Keflavíkurkirkju í dag mánudag- inn30. apríl kl. 14. Minningarathöfn um Símon Þorgeirs- son frá Lambastöðum, Garði, veröur miövikudaginn 2. maí í Fossvogskirkju kl. 10.30. Jarðsett veröur aö Utskálum, Garði, sama dag kl. 14. Tapað -fundið Rautt Copper hjól tapaöist i vesturbænum. Síöastliöinn þriðjudag hvarf frá Túngötu 31 rautt Copper reiðhjól, þriggja gira meö rauða framfelgu. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar hjólið er niðurkomið eru vinsamlega beðnir að láta vita í síma 11655. Þessi köttur fór frá heimili sinu að Urðar- bakka 20 í Breiðholti fyrir rúmum hálfum mánuði. Hún er svört og ljósbrún þar sem dökku fletirnir á myndinni eru en hvít annars. Hún er einnig með svarta háisól og er heima- símanúmer hennar merkt inn í. Þeir sem hugsanlega hafa oröið ferða hennar varir eru vinsamlega beðnir aö láta vita í síma 74721. Páfagaukur tapaðist I gær, sunnudag, slapp þessi guli páfagaukur frá Brautarlandi. Þeir sem einhverjar upp- lýsingar geta gefið eru vinsamlegast beönir að hafa samband við Hörö í sima 33263 eöa 20720. Aðalfundur Amnesty I kvöld, mánudagskvöldið 30. april, veröur aðalfundur Islandsdeildar Amensty international haldinn í Lögbergi, húsi Laga- deildar háskólans og hefst kl. 20.30. Formaður deildarinnar, sr. Bernharður Guðmundsson,, flytur skýrslu stjórnar og talsmenn starfshóp- anna greina frá vetrarstarfi. Stjórnarkosning ogönnurmál. Kvenfélag Langholtssóknar boðar fund þriðjudaginn 1. maí kl. 20.30. Venjuleg fundarstörf. Spjall um tré og runna. Framsöguerindi: Asgeir Svanbergsson frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Kaffiveiting- ar. Stjórnin. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur fund á Hallveigarstöðum fimmtudag- inn 3. maí kl. 20.30. Spilað veröur bingó. Fundur Félags dönskukennara Félag dönskukennara heldur fund í Kennara- háskóla Islands, stofu 301, fimmtudaginn 3. maí, nk. kl. 20.30. Fundarefni: Kynning og. umræða um nýja viðmiðunarstundaskrá, samræmd próf og stöðu námsstjóra. Frum- mælendur verða Hörður Lárusson og Stelia Guðmundsdóttir. Stjórnin. Fyrirlestrar Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga Hádegisverðarfundur verður haldinn í Þing- holti 2. mai kl. 12.15—13.45. Efni: Starfs- mannamál, störf erlendis. Fyrirlesari: Mar- grét Guðmundsdóttir cand. merc. hag- fræðingur hjá Danske Esso. Þátttaka tilkynn- ist í síma 25544. Fyrirlestur á vegum Eðlisfræðifélags íslands Ari Olafsson, mag. scient., flytur fyrirlestur á vegum Eðlisfræðifélags Islands miðviku- daginn 2. maí kl. 17.00 í stofu 158 í húsi Verk- fræði- og raunvísindadeildar Háskólans við Hjaröarhaga. Fyrirlesturinn nefnist Kaos fyrir byrjendur og er öllum heimili aðgangur. Fyrirlestur í Arnagarði Siðasti fyrirlestur vetrarins á vegum Hins islenska náttúrufræðifélags verður nk. mánudag 30. apríl í stofu 201 í Ámagarði og hefstklukkan8.30. Gylfi Már Guðbergsson. landfræðingur talar um landslag og gróður á gervihnatta- myndum. Síðastliðin tólf ár hafa fimm jarð- könnunarhnettir (Landsat) verið sendir á braut umhverfis jörðu. Á þeim tíma hafa fengist um 500 myndir af Islandi, en aðeins á 80 myndum er skýjahula yfir landinu 5% eða minna. A þessum myndum sést landið frá nýjum sjónarhóli og á þeim má greina ýmis náttúrufyrirbæri á annan hátt en áður. Gylfi Már mun segja frá athugunum sínum á þessum myndum, hvernig má túlka þær og þeim notum sem af þeim má hafa. Hér verður því fjallað um nýtt svið sem án efa á eftir að koma miklu meira við sögu síðar. Nú þegar sumarið er á næstu grösum fara félagsmenn Hins islenska náttúrufræðifélags aö huga aö fræðsluferðum sem jafnan eru fjölmennar því að þar gefst almenningi kostur á fræðslu um hvaðeina er lýtur að náttúru landsins, svo sem gróðri, dýralífi og jarðfræði undir leiðsögn sérfróðra manna. A þessu vori er bryddað upp á því nýmæli aö efna til leiðbeininganámskeiða fyrir félags- menn eina eöa tvær kvöldstundir við að safna Vonandi verðurðu fljótlega út- skrifaður — það eru allt of margar kaloríur í þessu súkkulaði, sem ég kom með með mér. Um helgina Um helgina Er nú ekki nóg sungið? Þau eru ekki mörg erindin eða þáttaraöirnar sem maður leggur eyrun að í útvarpinu jafnaðarlega. En þó má telja til þessa hóps tvo þætti sem verið hafa á dagskrá út- varpsins á laugardögum aö undan- förnu, Nýjustu fréttir af Njálu í umsjón Einars Kars Haraldssonar og Bók vit Jóns Orms Halidórssonar. Ekki hef ég lengur tölu á hvað þættir Einars Karls hafa verið margir en sjálfsagt hafa þeir losað tuginn. Einari hefur tekist að skoða þetta magnaöa bókmenntaverk í margvíslegu ljósi, bæði skoplegu og fræðilegu, og væntanlega opnað mörgum nýja innsýn í margbreyti- leik þess. Eg vona að ekki verði fréttaþurrð hjá Einari á næstunni. Jón Ormur er mjög áheyrilegur lesari og getur dregið saman efni rita, sem oft fjalla um flókin mál, á mjög greinargóðan hátt. Því miöur kvaddi Jón Ormur hlustendur að sinni á laugardagskvöldið en þökk- um fyrir góð erindi er hér með komið áframfæri. Þá er ekki síður eftirsjá að Dave Alien. Jafnvel þeir þættir hans sem verið hafa endursýndir upp á síð- kastið hafa veriö hið besta efni. Skopskyn hans virðist að vísu ekki vera við allra hæfi en ég stórefast um að betri skemmtiþætti hafi verið sýndir hér á landi. Sama er því miður ekki hægt aö segja um þá þætti sem Kór Lang- holtskirkju hefur unnið fyrir sjón- varpið til að greiða auglýsinga- skuldir sínar viö þá stofnun. Er nú ekki bráðum nóg sungið. Olafur E. Friðriksson. og greina stein- og bergtegundir, taka ljós- myndir úti í náttúrunni, þekkja skordýr o. fl. Frá þessu verður nánar greint í næsta félags- bréfi sem kemur út í byrjun maí. Þeir sem hafa hug á að gerast félagar snúi sér til Erlings Olafssonar á Náttúrufræðistofnun Islands og þá munu þeir fá félagsbréfið og tímarit félagsins, Náttúrufræðinginn, en nýtt hefti kemur út um miðjan næsta mánuð. Feröalög Dagsferðir 1. maí (þriðjudag) 1. ki. 09.00 — Gönguferð á Skarðsheiði (1053 m). Fararstjóri: Þorsteinn Bjamar. Verð kr. 300,00 2. kl. 13.00 — Gengið umhverfis Elliðavatn. Létt ganga. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. Verðkr. 150,00 ' Brottför fráUmferðarmiðstöðinni, austan- megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafélag Islands. Tilkynningar Árshátíð Kvenstúdentafélagsins og Félags íslenskra háskólakvenna verður i Kvosinni fimmtudaginn 3. maí. 25.25 ára júbílantar MR skemmta. Aðgöngumiðar verða seldir í Kvosinni mánudaginn 30. apríl klukkan 14 til 18 og verður ekki unnt að fá miða við inngang. Kvennadeild Skagfirðinga- félagsins í Reykjavík veröur meö veislukaffi og hlutaveltu í Drang- 'ey, Síöumúla 25, 1. maí kl. 14. Þetta hefur veriö árlegur fjáröflunardagur kvennadeild- arinnar sl. 20 ár og rennur allur ágóöi til • líknar- og menningarmála bæöi heima í hér- aöi og hér syöra. Veislukaffi og skyndihappdrætti kvennadeildar Borgfirðingafélagsins verður 1. maí. Að þessu sinni er kaffisalan í Lindarbæ og hefst kl. 14.30. Kaffisala Kristniboðsfélags kvenna Hin árlega kaffisala Kristiniboðsfélags kvenna verður þriðjudaginn 1. maí í Betaníu, Laufásvegi 13. Að vanda verður nóg á könn- unni og gott meðlæti. Komið og gerið ykkur dagamun um leið og þið styrkið kristniboðið í' Konsó og Kenya. Opið frá kl. 14.30—22. Gamlir nemendur Verslunar- skóla íslands halda hátíð- legan sinn gamla skóladag I dag, mánudaginn 30. apríl, halda gamlir nemendur Verslunarskóla Islands hátíðlegan sinn gamla skóladag. Gengst Nemendasam- band Verslunarskólans þá fyrir hófi að Hótel Sögu, en til þess fjölmenna eldri nemar sem minnast heils eða hálfs tugar afmælis frá út- skrift úr skólanum. I þessu hófi verður meðal gesta nemandi sem brautskráðist fyrir sjötíu árum og margir sem minnast þess að hálf öld er liðin frá því þeir brautskráðust. Fjölmennastir eru hins vegar yngri afmælisárgangarnir. Formaður Nemendasambands skólans, Kristinn Hallsson óperusöngvari stýrir hófinu, en þar verður fagnað fulltrúum þeirra nemenda er nú þreyta lokapróf við Verslunar- skóiann. Aögöngumiöar að hófinu eru afhentir i skrifstofu Verslunarmannafélags Reykja- víkur í Húsi verslunarinnar og þar fást allar nánari upplýsingar um það. Kays-boðsmót í goifi Sveiflumar hjá golfklúbbnum Keili bjóða golfurum til keppni á Hvaleyrinni í Kays- boðskeppnina 1. mai nk. Keppnisfyrirkomulag: tvím./stableford (punktakeppni). Þeir sem ætla að taka þátt f keppninni þurfa að tilkynna þátttöku í síma 53360 sunnudaginn 29. april milli kl. 13 og 20. Góð verðlaun eru í boði. Athugið: takmarka verðurfjölda þátttakenda. Hátíð á Seltjarnarnesi Þriðjudaglnn 1. maí verður mikið um að vera á Seitjaraaraesi. Kvenféiagið verður með sina árlegu kaffisölu, sölusýning verður á handavinnu eidri bæjarbúa og mlnnst 10 afmælis Valhúsaskóla. Þann 1. maí verður hin árlega kaffisala kvenfélagsins Seltjamar í Félagsheimilinu á Seltjarnamesi. Húsið verður opnaö kl. 14.30. A þessu 16. starfsári félagsins hefur það látið mjög til sín taka i bænum. 1 janúar sl. afhentu konurnar kr. 200.000 til kirkju- byggingarinnar. Þá vom bæjarstjóm Sel- tjamarness afhentar innréttingar og tæki í hár- og snyrtistofu fyrir aldraða bæjarbúa sem er tii húsa að Melabraut 5—7. Þá hafa félagskonur aðstoðað við skemmtanir fyrir aldraða í vetur. Störfum félagsins er ekki alveg lokið ennþá því að haldinn verður há- tíðlegur 100. f undur félagsins þann 15. maí nk. Sölusýningin á handavinnu aldraöra verður á jarðhæðinni að Melabraut 5—7 og hún verður opnuð kl. 14. Þetta er fyrsta sýningin af þessu tagi á Seltjarnamesi. Þá verður formlega opnuð 10 ára afmælis- hátið Valhúsaskóla kl. 13.30. Sýning verður á vinnu nemenda skólans. Lúðrasveitin á Seltjamarnesi mun leika bæði í félagsheimilinu fyrir kaffigesti og í Valhúsaskóla. Vonast er til að sem flestir sjái sér fært að koma í kaffið og skoða sýningamar. Sumarbúðir þjóðkirkjunnar, Laugargerðisskóla I sumar verða starfræktar sumarbúðir þjóð- kirkjunnar í Laugargerðisskóla á Snæfells- nesi. Þar verða 12 daga Qokkar, fyrir telpur og drengi samtímis, og hefst hinn fyrsti 18. júní og verður hann fyrir 7—9 ára börn en hins vegar verða hinir Qokkamir fyrir 10—12 ára börn. Við Laugargerðisskóla er sundlaug og góö aðstaða til leikja en i sumarbúðunum verða einnig helgistundir og uppfræðsla í kristinni trú. Lögð verður áhersla á að hvert barn njóti sín og þroskist í ömggu umhverfi. I sumarbúðunum starfa vanir sumarbúöar- stjórar ásamt unglingum sem aöstoða þá. Innritun í búðimar hefst fimmtudaginn 26. apríl og fer hún fram hjá æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar, Klapparstíg 27, þar sem allar frekari upplýsingar era veittar. Sími þar er 12445. Út er komin 42. bókin í bókaflokknum um Morgan Kane og heitir hún „Fyrlr hnefafylll af peningum”. Tuttugu fátækir og aðframkomnir bændur höfðu staulast yfir Apachaland — til að sár- bæna mexíkönsk yfirvöld um að frelsa börn sem Indíánamir höfðu rænt. Kvemstöfum þeirra var svarað með byssu- stingjum og þeim engin samúð sýnd. Hermennirnir hröktu þá vonlausa á brott. Ungur gringo, pistoléro-inn Morgan Kane, var sá eini sem gat hjálpað þeim. Hann var fús til að fylgja þeim yfir auðnina fyrir hnefa- fylli af pesos — kannski þó fyrst og fremst vegna þess að foringi bændanna var Pauline Trenton, dóttir hvíts trúboða og einstaklega velvaxin.. . Út er komið 1. tölubl. 3. árgangs af FISKVINNSL- UNNI, fagblaði fiskiðnaðarins. Blaðið hefst á athyglisverðu ritstjórnarspjalli um kvóta- kerfið o.fl. Meðal annars efnis er viðtal við Karl Ágústsson, framkvæmdastjóra Baader þjón- ustunnar hf. Ferðasaga til Kína eftir Pétur Bjamason, kennara á Hólum í HjaltadaL Fiskiljósfræði og hringormaleit nefnist grein eftir dr. Jón Pétursson, eðlisfræðing við Raunvísindasto&iun Háskólans. Grein eftir Svavar Svavarsson, deildarstj. hjá BUR, um gæði sjávarafuröa. Grein um bónus i frystihúsum eftir Má Sveinbjörnsson rekstrartæknifræðing. Að lokum er sagt frá nýútskrífuðum fiskiðnaðar- mönnum úr Fiskvinnsluskólanum. Utgefandi FISKVINNSLUNNAR er Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins, Skipholti 3,105 Reykjavík. Siglingar Skipadeild Sambandsins Hull/Goole: Gautaborg: Jan .17/4 Francop.... .24/4 Jan .30/4 Francop.... . 8/5 Jan .14/5 Francop.... .22/5 Jan .28/5 Francop.... . 5/6 Rotterdam: Kaupmannahöfn: Jan .18/4 Francop.... .25/4 Jan . 1/5 Francop.... . 9/5 Jan .15/5 Francop.... .23/5 Jan .29/5 Francop.... . 6/6 Antwerpen: Svendborg: Jan .19/4 Francop.... .26/4 Jan . 2/5 Francop.... .10/5 Jan .16/5 Francop.... .24/5 Jan .30/5 Francop.... . 7/6 Hamburg: Arhus: Jan .21/4 Francop.... .27/4 Jan . 4/5 Francop.... .11/5 Jan .18/5 Francop.... .25/5 Jan . 1/6 Francop.... . 8/6 Helsinki/Turku: Falkenberg: Hvassafell.. .28/4 Mælifell.... . 2/5 Hvassafell.. .23/5 Helgafell... .11/5 Larvik: Gloucester, Francop.... .23/4 Mass.: Francop.... . 7/5 Skaftafell... .25/4 Francop.... .21/5 Skaftafell... .24/5 Francop.... . 4/6 Halifax, Canada: Skaftafell... .26/4 Skaftafell... .25/5 Sexinnbrot Rannsóknarlögregla ríkisins fékk óvenjumargar tilkynningar um inn- brot á höfuðborgarsvæðinu um helg- ina. Brotist var inn í Kvennahúsið við Hallærisplanið, Þinghólsskóla í Kópa- vogi, Blómaval við Sigtún, rútubíl við Skemmuveg, ibúðarhús í Fossvogi og geðdeild Landspítalans. Aðeins inn- brotið í geðdeildina er upplýst en þar voru tveir menn staðnir að verki. Stolin verðmæti voru -yfirleitt ekki umtalsverð. Ur íbúðarhúsinu var þó tekið sjónvarp og myndsegulband og úr rútunni útvarp og segulband. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.