Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1984, Qupperneq 44
44 DV. MÁNUDAGUR 30. APRIL1984. Dæmalaus VERðLD Dæmalaus VerOlp Dæmalaus VerOlp LEIÐARLJÓS Heimsborg- aríog kennari Hún lætur ekki mikið yfir sér, fréttin um Andrés önd og 'fyrsta kinverska hamborg- arastaðinn sem birtist hér tU hliðar. En hún er allrar athygli verð. Sérstaklega fyrir okkur Islendinga. Þjóð sem staðsett er miðja vegu á milli Moskvu og New York á mikið undir góðri tungumálakunnáttu, á þvi er enginn vafi. Einhvern veginn varð það nú samt þannig að aldrei ætlaði okkur að lærast að tala dönsku almennilega þrátt fyrir aldalanga þrælkun Dana og voru vitsmunir þjóðarinnar jafnvel dregnir í efa víðs vegar úti í hinum stóra heimi fyrir bragðið. Þá kom Andrés önd eins og frelsandi engill. Fyllti hiUur Máls og menningar og tsafoldar og fyrr en varði voru börnin farin að segja „Davse Du Gamle” við foreldra sína. Síðan hefur hagur okkur skánað og áUt út á við auklst. Því hljótum við að gleðjast með ielaga okkar og kennara við lestur fréttarinnar um hamborgaratáknlð í Kína, Andrés önd. Fjölmennasta þjóð veraldar tekur ákvörðun um að hefja skyndibitaát og vantar einkennismerki fyrir nýjungina. Úr nógu var að velja: dreki, ormur, nætur- gaU, John Wayne, Júmbó, Maó, Sjú-en-lai, deGauUe eða guð má vita hvað. En Andrés önd varð fyrir valinu. Vinur okkar og kenn- ari hefur haslað sér vöU í Kína. Fjölmennasta þjóð veraldar og sú hin minnsta eiga nú loks eitthvað sameiginlegt á menningar- sviðinu. Andrés önd. Dæmalauststarf: ÞRÆÐA SPOTTA í 100 ÞÚSUND SEKTARMIDA Stöðumælasektarmiöar ó Islandi eru meö sérstöku sniöi og frábrugðnir þvi sem gerist í öðrum þjóðlöndum. I þeim er spotti, eins og allir kannast við, og hann er ekki þangað kominn af sjálfsdáðum: „Við reyndum að hafa miðana spottalausa til að byrja með en þá vildi þaö brenna við aö þeir fykju af bílun- um, eöa svo sögöu að minnsta kosti margir sem grunaöir voru um að leggja ólöglega,” sagði Guttormur Þormar hjá borgarverkfræðingi í sam- tali við DæVe. „Því var brugðið á það ráð að festa við j)á spotta sem síðan eru bundnir við rúöuþurrkumar. Eftir þaö hafa f áir getað afsakaö sig. ” Á hverju ári eru notaðir ó bilinu frá 80—100 þúsund stööumælasektarmiðar í Reykjavík og því er þaö ærið starf að þræða spotta í þá alla. Þaö verk hafa með höndum hjón á miðjum aldri hér í Reykjavík en ekki reyndist unnt að fá upplýsingar um hversu iangan tíma þræðingamar á 100 þúsund miðunum tæki. 1 „Þetta eru ekki neinir sérstakir spottar,” sagði Guttormur Þormar, „heldur band sem keypt er í rúllum hjá Ellingsen. Hjónin klippa þetta svo nið- ur í hentugar stærðir.” -EIR. John Hinckley sem skaut á Reagan: VILL KVÆNAST John Hinckley, sá er skaut á Ronald Reagan fyrir 2 árum og dvelur nú á geðsjúkrahúsi, hefur fariö fram á það við yfirstjórn stofnunarinnar að hann fái leyfi til að kvænast Lesley Deveau sem er fertug og 12 árum eldri en Hinckley. Lesley Deveau dvelur sém sjúkl- ingur á sama geðsjúkrahúsi og til- ræðismaður Reagans en þangaö kom hún fyrir 5 ámm eftir að hafa banaö 10 ára gömlu barni sínu í æðiskasti. John Hinckley vill kvænast Lesley Deveau. BARNAMORÐINGJA Andrés önd hefur lent í ýmsu; nú er hann orðinn einkennismerki kin- verskra hamborgarastaða. Hamborgarar íKína Lögreglan þurfti að halda fon/itnum vegfarendum í mátulegri fjarlægð þegar fyrsti hamborgara- og skyndi- bitastaðurinn var opnaður í Peking fyrir skömmu. Borgarstjórinn var mættur og klippti á rauðan borða óður en fyrirfólki var hleypt í krásimar, hamborgara, pylsur, franskar svo og kínverska sérrétti sem látnir eru fljóta með í súrsætum sósum o.s.frv. Athyglisvert þykir að einkennis- merki þessa fyrsta skyndibitastaðar í Peking er iitskrúðug teikning af Andrési önd og trónir kappinn í fuUri líkamsstærö yfir dyrum. Ráögert er að opna fleiri hamborgarastaði í Peking og víðar í Kína en þar í landi er tilfinn- anlegur skortur á veitingastöðum. Einn af 100 þúsund stöðumælasektarmiðum sem notaðir eru í Reykjavík á ári hverju. Takið eftir spottanum, hann er frá Ellingsen. DV-mynd e.l. Fuglarnir fljúga, bridge í staðinn Tvisvar í viku koma þær saman og gangi. spila bridge, á þriðjudagskvöld- Erla sagði að þær heföu farið á um og sunnudagseftirmiðdögum. bridge-námskeið hjá starfsmanna- .Euglarnir eru að fljúga úr hreiðrinu félaginu í verksmiðjum Sambands- og þó verður að finna nýtt áhuga- ins í vetur. Þær tengdust þeim vinnu- mál,” sagði Erla Asmundsdóttir. stað allar á einhvem hátt. Síðan Hún var vinningshafi Neytendasíðu hefði spilabakterían gjörsamlega DV í janúar. Þegar blaðamaður DV heltekið þær og þaö væri spilað langt ó Akureyri leit heim til hennar kvöld Iram a nótt. „Oskaplega gaman,” eitt til að smella af henni mynd af því sagði hún og hinar samþykktu það. tilefni var bridge-spilið í fullum JBH/Akureyri Námskeið í bridge varð kveikjan að óslökkvandi spilaþrá þessara fjögurra kvenna á Akureyri. Þær eru Margrét Emilsdóttir, Jóna B. Sigurðardóttir, Erla Ásmundsdóttir og Soffía Ottesen. DV-mynd: JBH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.