Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Síða 2
2
DV.LAUGARDAGUR5.MAl 1984.
Mamma, hvad ert þú að gera? heitir þessi skemmtilega mgnd sem nglega var kosin
hesta mgndin í heimsins stœrstu Ijósmgndasamkeppni sem fram fór í Japan. Ljós-
mgndarinn er norskur og heitir Thorolf Karlsen.
Það er ekki að sjá að einn fulltrúi karlaveldisins á
Alþingi, Matthías Á. Mathiesen ráðherra, hafi áhyggj-
ur af vaxandi fjölda kvenna á þinginu. Nei, það er öðru
nær. Hann notaði tækifærið til að faðma nokkrar
þeirra þegar var verið að mynda kvenkostinn sem þá
var staddur á Alþingi. Þá voru konurnar alls 12 og
mun það vera mesti f jöldi sem hefur setið þing á sama
tíma. DV-mynd E.Ö.
JmuuESTunE
Öryggisins vegrta!
Nú eru fyrirliggjandi Bridgestone radial og diagonal sumar
hjólbarðar.
Óbreytt verð frá í fyrrasumar!
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99
GAMLA HJÓNABANDIÐ ÚRELT?
Aðrir möguleikar
eru fyrir hendi
Eruð þið orðin leið í hjónabandinu? Það er mögulegt að prófa
eitthvað nýtt. Þið getið t.d. reynt sérbýli, raðbýli eða jafnvel
stórbýli. Þessi nöfn eru fengin að láni frá frjálslyndum frændum
okkar, Svíum. Þeir eru alltaf svo framarlega á merinni og eru
komnir með tíu nöfn á mismunandi hætti að búa saman. Litum
nánar á þessa sambýlishætti, það gæti verið að eitthvað af þeim
hentaði ykkur betur en gamla hjónabandið.
SAMBÝLI
Það er orðið nokkuð sígilt og er pappírslaust samband milli
tveggja sjálfstæðra manneskja sem kjósa að hafa svefnher-
bergin aðskilin til að undirstrika sjálfstæði sitt enn frekar.
SÉRBÝLI
Parið býr hvort um sig í sinni íbúð. Þetta form þykir vera
nokkuð nútímalegt og undirstrikar rækilega sjálfstæði ein-
staklingsins. En þetta algjöra frelsi er oft dýru verði keypt því
pariö verður gjarnan að borga tvöfalda húsaleigu.
TVÍBÝLI
Aðalatriöið er aö parið hefur hvort sína íbúöina. En vegna
tillitssemi við börnin dvelja foreldrarnir með börnum sínum í
sömu íbúðinni á virkum dögum. Um helgar fara foreldrarnir
hvort frá öðru og dvelja í íbúðum sínum hvort í sínu lagi.
Börnunum er frjálst að velja um hjá hvoru foreldranna þau
kjósa að vera þennan tíma. Það getur farið eftir því á hvorum
staönum er betra aö vera og líka eftir því hvaöa skapi þau eru í.
HLUTABÝLI
Þegar mamma og pabbi finna sér nýja félaga verða börnin
þeirra eftir í íbúðinni en foreldrarnir flytja heim til nýju
félaganna. Foreldrarnir skiptast síðan á að búa með börnunum í
gömlu íbúðinni. Stöku sinnum fá börnin að vera ein og sjá um
sig sjálf.
EINBÝLI
Þetta er fremur óvinsælt búskaparform. Þaö hafa menn yfir-
leitt ekki valið sjálfir. Einbýli hefur oft í för með sér að ferðir í
sjoppur til að kaupa pulsu með öllu nema hráum verða nokkuö
tíðar.
HEIMBÝLI
Þetta kýs sá sem heldur áfram aö kunna vel við sig á æsku-
heimilinu og velur aö búa þar þó aö fullorðinn sé orðinn. Þessi
tegund hefur oft þær afleiðingar að mikill þrýstingur hvílir á
foreldrunum. Þeir sem fara þessa leið skreppa gjarnan út stöku
sinnum og þá annaðhvort á bíó eða bingó.
FLEIRBÝLI
Öðru nafni kommúna þar sem heimilistæki eru nýtt á mjög
skynsamlegan hátt. Bakhliðin á þessu líferni er sú að algengt er
að þeir sem búa í fleirbýli fari hver í taugarnar á öðrum.
VINBÝLI
Þetta er tilboð fyrir þá sem kunna ekki við að búa með hinu
gagnstæða kyni og kjósa að búa með öðrum af sama kyni. Af
svipuðum toga eru t.d. lesbýli og hommbýli sem geta reyndar
haft slæm áhrif á siðferðiskennd sumra.
RAÐBÝLI
Þetta er afleiöing af mjög tíðum skiptum á félaga og
stöðugum skiptum á íbúðum með þeim afleiðingum að sam-
bandiö við börnin verður nokkuð ruglingslegt.
STÓRBÝLI
Þetta er hugtak yfir alla þá aðra hugmyndaríku möguleika
sem enn hafa ekki veriö nefndir. Þar er meötalinn sá möguleiki
sem sumir velja sér. En hann er fyrir þá sem enn taka sjénsinn
á aö gifta sig meö hugsanlegt dánarbú í huga.
KRYDDARINN
Kryddarinn gengur manna á milli
og hverju sinni fáum viö að heyra
eitthvað skondið. Seinast var það
Albert Guðmundsson hinn eini og
sanni sem lét í sér heyra. Það hefur
líklega ekki komið neinum á óvart að
Albert skyldi vísa næsta Kryddara til
borgarstjórans okkar, Davíðs Odds-
sonar, enda sá kunnur fyrir gaman-
semi. Davíð brást vel við því aö taka
þátt í einum Kryddara.
Kryddari Davíðs er á þessa leið:
Tveir þingfréttaritarar horfðu og
hlustuðu á stjórnmálamann einn
flytja ræðu á Alþingi nýlega. Annar
þingfréttaritarinn spurði hinn:
„Veistu hvert er hans höfuðvanda-
mál?”
„Nei,” svaraðihinn.
„Höfuövandamál hans er höfuð-
málið,” var þá svarað.
Davíð skorar síðan á Magnús
Oskarsson borgarlögmann. Við
bíðum því spennt eftir að heyra hvað
hann hefur að segja og á hvern hann
ætlaraðskora.