Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 23
23 P,y,.LAUPARPAGUH 5., MAl ,19M. Fáir rokktónlistarmenn hafa fengið meiri forgjöf en banda- ríski strákurinn sem gegnir nafninu Rodkwell. Flestir sem fremja rokktónlist þurfa að arka þymum stráðan veginn til frægðar og frama; obbinn af þeim gefet upp á leiðinni en þá fáu sem ná á leiðarenda hef jum við upp til skýjanna og köllum einu nafni pqppstjömur. Þser eru loðnar um lófana, aka um á fínustu drossium og geta eignast allt sem þær dreymir um. Eða næstum þvi ailt. Rockwell er ekki ennþá kominn í þennan útvalda hóp rokk- stjarnanna þó hann sé kominn inn fyrir þröskuld frægðarinnar. Hann hefur aðeins slegið í gegn með einu lagi, en hann á góða aö og vinir hans eru stórstjömur í rokkinu. Sjálfur hefur hann líka ýmislegt til brunns að bera eins og fyrsta breiðskífan hans vitnar glöggt um; Somebody’s Watching Me er ekki eina fína lagið á þeirri plötu. M^egar Somebody’s Watching Me fór fyrst að heyrast vakti það fyrst og fremst eftirtekt vegna þess að söngvarinn í viðlaginu hét Michael Jackson. Menn höfðu á orði að það væri sama hvar Michael kæmi við sögu — allt yröi að gulli í höndunum á honum. Um leið gáfu menn auðvitað í skyn að þetta lag væri óttalega lélegt en af því Michael Jackson léöi því rödd sína væru aödáendur hans ólmir að kaupa smáskifuna með laginu. Og það var spurt: hvaða óþekkti náungi fær Michael Jackson tU þess að syngja inn á sína fyrstu plötu? Lengi vel bólaði ekkert á svarinu og það er útbreiddur mis- skilningur í útvarpinu að RockweU sé hljómsveit. Eins og Led Zeppelin og félagar! En svo fór aö kvisast út aö Rockwell væri sonur Berry Gordy, eiganda Motown-hljómplötuútgáfunnar, en Gordy er þjóðsagnapersóna í lifanda lifi og fyrir hans tilverknað átti sóltónlistin sitt blómaskeið á sjöunda áratugnum. En það er önnursaga. inn var karl eða kona en textinn rekur ýmislegt sem Rockwell datt í hug vegna þessara hringinga, hvort hann ætti aö skipta um símanúmer, láta rekja simtaliö, en skemmtilegasta athuga- semdin er þessi: Ef Alexander Bell væri á lífi í dag væri ég ekki viss um að hann vUdi að uppfinning hans væri misnotuð með þessum hætti. Og þetta lag hans er sumsé nýkomið út en fari svo að það missi marks eru Qeiri lög á breiðskífunni Somebody’s Watching Me sem vænleg eru tU vinsælda. Raunar nefndi einhver gagnrýnandi að plötu Rockwell svipaöi á ýmsan hátt tU Thriller Michael Jack- sons, meöal annars af þeirri ástæðu að fimm laganna á plötunni gætu sómt sér vel á smáskífum. Þar er tU dæmis ein ballaða i anda Lionel Richie, heitir Knife, og rekur líka sögu úr raunveru- leikanum: ástarsorg. Itock o g enn má spyrja: Getur það verið nóg tU þess að koma lagi í efstu sæti vinsældalista að vera sonur Berry Gordy og vinur Michael Jackson? Svariö er: nei — en það hjálpar. Lagið sjálft reyndist nefnilega við nánari hlustun vera firnagott og textinn í hnyttnara lagi. Hún er þekkt þessi fælni; hafa það einlægt á tUfinningunni að einhver sé að góna á mann, einkanlega í sturtu, og geta ekki losnað undan þessum stöðuga ótta. Og RockweU gerði bráöskemmtUegt myndband við lagið sitt, skrapp í bað ótt og títt meðan ímyndaði óvinurinn stóð á gægjum og fylgdist meö hverjufótmáli. kwell er ungur maöur, nýorðinn tvitugur, og segir að það hafi frekar gert sér erfitt fyrir að vera sonur Berry Gordy. Hann heföi sannarlega þurft að hafa fyrir því að sanna hæfileika sína og raunar hefði þaö verið honum keppikefli aö njóta föðurins á engan hátt hvaö tónlistarframann áhrærði. Meðal annars tU þess að slíta sig frá Motown og Gordy nöfnunum hefði hann tekið sér listamannsnafniö Rockwell. Það er einföld skýring á nafngiftinni segir hann: Eg rokka vel, I rock weU. Þaö er ekki lítUlætinu fyrir að fara. Blaðamenn, sem hafa rætt við RockweU, segja að hann sé af ætt og kynstofni Muhammad AU og Jesse Jackson hvaö munnsöfnuð viðvikur: oröhákur hinn mesti. „Þegar ég var í menntaskóla var ég kallaður „Rock”, hafði þá á mínum snærum rokkhljómsveit sem lék óheflaö rokk, Rick Springfield, Led Zeppilin og tónUst af því tagi. En minn tími var ekki kominn. Ég fór að vinna í kvikmyndahúsi, seinna fékk ég mér niu-til-fimm vinnu á pósthúsi, langaði í skóla til þess að verða vísindamaður, en samdi lög í tómstundum. Ég vildi enga greiðasemi í minn garö og fór því fyrst með lögin mín til annarra fyrirtækja en Motown. Columbia sýndi mér áhuga. En ég fór loks til Motown eins og hver annar tónlistarmaöur og pabbi vissi ekki einu sinni af því að ég komst þar á samning sem lagasmiður.” R O g ekki tekur betra við: dónalegar símhringingar. Næsta lag á smáskífufráRockwellheitirnefnilega: (Obscene) PhoneCaUer, — og RockweU segir að textinn byggi á eigin reynslu. Einhver gerði sér það til dundurs að hringja í Rockwell og stynja í símann; samkvæmt textanum fékkst aldrei botn I það hvort dón- ockweU hljópst að heiman sautján ára, bjó fyrst með bróöur sínum en fékk sér síðan eigin íbúð. Hann vUdi viöskilnað viö f jöl- skylduna, losna undan fræga pabbanum og lifa sjálfstæðu Ufi þar sem eigin hæfileikar f engju að njóta sín. Mikið og náiö samband hefur einlægt verið á mUU Berry Gordy og Jackson f jölskyldunnar og Rockwell segir að Michael hafi frá upphafi sýnt áhuga á lögum hans. Einn dag lék hann Somebody’s Watching Me fyrir þrjá af bræðrunum, Jeremy, Randy og Micha- el. „Og Michael spurði aðfyrra bragöi: hver á aö syngja með þér viölagiö? Eg hafði ekki hugsað út í þaö og hann sagði þá: Við bræðurnir vildum gjarnan syngja.” Framhaldiö er öUum ljóst. -Gsal Hver er hann þessi Rockwell sem f ékk Michael Jackson tillidsvidsig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.