Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 4
I Hin hliðin á íþróttamanninum: „Það fer gífurlega mikill tími í íþróttirnar og þar af leiðir að ég hef ekki mikinn tíma fyrir önnur áhuga- mál,” sagði júdómaðurinn Bjarni Ásgeir Friðriksson en hann er viðmælandi okkar að þessu sinni. Bjarni hefur um nokkurt skeið verið okkar sterkasti júdómaður og hefur verið ósigrandi hér á landi undan- farin ár. Hann hefur náð gífurlega góðum árangri á stórmótum erlendis og hvarvetna sem hann hefur keppt hefur hann getið sér gott orð. „Ég og félagi minn Bragi Sveins- son höfum frá haustinu 1981 rekið Bókabúö Suöurvers en erum að hætta í þeim bransa. Þetta er svo aö segja glataður business. Það er sala í bókum 10 síöustu dagana fyrir jól og síðan ekki söguna meir. Það sér það hver maður að slíkt gengur ekki. Samhliða bókabúðinni höfum við rekið videoleigu og hún gengur mjög vel. Og svo er ég ásamt fjórum vin- um mínum að opna sólbaðsstofu í Hamraborg í Kópavogi. Það er hrikalegur kostnaöur sem fylgir því og sem dæmi get ég nefnt að einn lampi kostar um 200 þúsund. Við verðum með fimmtán lampa þegar starfsemin verður ■ komin í fullan gang enbyrjummeðfimm.” Með einkaflugmannspróf og dellu fyrir fjarstýrðum flugvélamódelum „Ég lauk einkaflugmannsprófi og Peter Sellers heitinn er og var í uppáhaldi miklu hjá Bjarna. „Mestan áhuga á flugvélamódelum” Bjarni Ásgeir Friðriksson júdómaður ásamt konu sinni Önnu Guðnýju Ásgeirsdóttur og sonum þeirra hjóna, Frið- geiri Daða og Tryggva Sveini. DV-mynd Óskar Örn Jónsson. „Hann vildi aldrei dansaviðmig” — létt spjall við eiginkonu Bjarna Friörikssonar, ðnnu Guðnýju Ásgeirsdóttur „Ég hitti Bjarna fyrst á skemmti- stað eins og gerist og gengur með mann og konu. Hann hét Cesar í þá daga,” sagði Anna Guðný Ásgeirs- dóttir, eiginkona júdómannsins Bjarna Friðrikssonar. „Síðan eru liðin átta ár. Hann tók mér nú ekki mjög vel í fyrsta skiptið sem ég bað hann að dansa við mig og var greinilega ekki mikið fyrir dans- inn. Hann vildi aldrei dansa við mig, hvernig sem ég baö hann. I stað þess ræddum við málin vítt og breitt. Ég vissi alveg hvað ég vildi og þrátt fyrir að hann hafi ekki viljað dansa haföi það ekki þau áhrif á mig að ég hætti að pæla í honum. ” Hvernig er Bjarni til heimilis? „Hann hefur reynst vel í sambúö,” sagði Anna Guöný og glottir viö. „Hann er þó ekki mikið fyrir hús- verkin enda maöurinn afar sjaldan heima hjá sér. Það er mjög mikið aö ‘gera hjá honum í vinnunni og svo er það blessaö júdóið. Ég get ekki neitaö því aö ég er orðin mjög þreytt á þessum sífelldu æfingum og keppni. Börnin eru orðin tvö og þetta er svolítið erfitt. Ég veit ekki hvenær hann hættir en hann sagði við mig um daginn að hann yrði ekki nema 32 ára þegar OL-leikarnir 1988 færu fram,” sagði Anna Guðný Ásgeirs- dóttir en hún er líffræöingur að mennt en hefur ekki enn sem komið er unnið sem slíkur. -SK. — Bjarni Friðriksson júdómaður sýnirásér hina hliðina hef lengi haft mikinn áhuga fyrir fluginu. Mestan áhuga hef ég á f jar- stýrðum módelum. Ég smíða vélarn- ar sjálfur og svo fer maöur með gripina upp á Sandskeið til dæmis og reynir gripinn. Þessar vélar eru mjög mismunandi að allri gerð en sumar hverjar geta náð 100 km hraöa á klukkustund og vænghafið er yfir tveir metrar. Þetta er ekki mjög dýrt sport miöað viö margt annaö. Fjarstýringin kostar á bilinu 10 til 20 þúsund. Vélin sjálf kostar um 1500 kr„ mótorinn á bilinu 700—2000 og á þessu sést að þetta er ekki mjög dýrt. Svo ef maður eyðileggur eitthvert módelið þá er hægt að bæta við efnið sem vélarnar eru úr þannig að tjónið við hvert „slys” þarf ekki aö vera svo mikiö. Svifdrekar næstir á dagskrá „Næst á dagskrá hjá mér eru svif- drekar. Ég stefni að því að fá mér einn slíkan ef ég fæ leyfi „réttra yfir- valda”. Þegar maöur flýgur á þessum drekum kemst maður næst þvíaðfljúga.” Hvað ert þú lærður, Bjarni? „Ég er svo að segja útvarps- og sjónvarpsvirki. Ég átti aðeins tvö próf eftir í skólanum þegar ég varö að fara utan til að keppa í júdó. Ég sá ekki né sé eftir því. Ég get alltaf k lárað þetta og stefni aö því að gera þaðfljótlega.” Og nú eru það OL hjá þér framund- an að öllum líkindum? „Já, ég á von á því. Ég er sem stendur í mjög erfiöu æfingapró- grammi og verö í því fram að leikun- um. Ég hef sjaldan æft meira. Ég lyfti þrisvar til f jórum sinnum á viku og tek svo tækniæfingar með, við förum inn í brögð eins og sagt er á júdómáli.” Er alltaf jafngaman að þessu? „Þetta er mismunandi gaman. Stundum leiðinlegt, stundum mjög skemmtilegt og þá sérstaklega þegar vel gengur. Ég veit ekki hvort ég verð í þessu mikið lengur. Ég er 28 ára gamall og júdómenn eru yfirleitt á toppnum um þrítugt. En það getur verið að maður geti veriö eitthvaö lengur í þessu hér heima,” sagöi Bjarni Friðriksson. -SK. FULLT NAFN: Bjarni Ásgeir Friðriksson. HÆÐ OG ÞYNGD: 1,90 m og 95 kg. BIFREIÐ: Volvo. GÆLUNAFN: Ekkert. VERSTU MEIÐSLI: Engin alvarleg. UPPÁHALDSÍÞRÓTTAMAÐUR, ÍSLENSKUR: Öskar Jakobsson. UPPÁHALDSÍÞRÓTTAMAÐUR, ERLENDUR: Larry Holmes hnela- leikari. MiNNISSTÆÐASTA GLÍMA: ’82 þegar ég tapaði úrslitaglimu á Norðurlandamótinu gegn mun létt- ari manni. ÖNNUR UPPÁHALDSÍÞRÖTT: Körfuknattleikur. UPPÁHALDSMATUR: Nætursöltuð ýsa. UPPÁHALDSDRYKKUR: Mjólk. UPPÁHALDSSJÓNVARPSÞÁTT- UR: Dave Allen. UPPÁHALDSLEIKARI, ÍSLENSK- UR: Laddi. UPPÁHALDSLEIKARI, ERLEND- UR: PeterSellers. SKEMMTILEGASTA BLAÐ: Andrés önd. UPPÁHALDSHLJÖMSVEIT: Queen og Mezzoforte. BESTIVINUR: Kouan mín. ERFIÐASTI ANDSTÆÐINGUR: Kolbeinn Gíslason. HELSTA METNAÐARMÁL í LlFINU: Að vera svo snöggur að ég geti lokað hurð og læst henni utan frá áður en hún lokast. HVAÐA PERSÖNU LANGAR ÞIG MEST TIL AÐ HITTA? Mikka mús. EITTHVAÐ SÉRSTAKT SEM ÞIG LANGAR TIL AÐ GERA EFTIR AÐ IÞRÓTTAMANNSFERLINUM LYKUR: Þjálfa. STÆRSTIVEIKLEIKI: Veikur fyrir; tölvuspilum. STÆRSTIKOSTUR: Ég er stærstur, bestur og gáfaðastur. UPPÁHALDSLIÐIENSKU KNATT- SPYRNUNNI: Ekkert. BESTI ÞJÁLFARISEM ÞÚ HEFUR HAFT: Gísli Þorsteinsson. YRIR ÞÚ HELSTI RÁÐAMAÐUR ÞJÖÐARINNAR, HVERT YRDI ÞITT FYRSTA VERK? Hækka allt áfengi upp úr öllu valdi. ANNAÐ VERK: Leggja til að allt fólk sem reykir verði skikkað til að ganga með glerhylki um hausinn þannig að þeir sem ekki reykja geti fengið að vera í friði fyrir þessum ófögnuði. Bjarna langar mest til að ræða málin við Mikka mús. Texti: Stefán Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.