Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Qupperneq 6
6
DV. LAUGARDAGUR 5. MAl 1984.
Litid nánar á gamla höfuðstaðinn:
H mtpma n nahiifn
er ehhi hara
„Kaupmannahötn er með
stærri bæjum á íslandi,” varð
vini mínum að orði þegar hann
komst að því að í þessari gömlu
höfuðborg okkar búa yfir tvö
þúsund íslendingar, flestir
náttúrlega námsmenn en
einnig mikið af fólki sem búið
hefur í Danmörku árum saman,
íslenskar konur sem giftar eru
Dönum, fólk sem hefur hér at-
vinuu og þó nokkur fjöldi sem
lifir á dönskmn atvinnuleysis-
bótum.
Þeir eru iíka inargir
íslendingnrnir sem heimsækja
Strihið
Kaupmannahöfn á hverju ári.
Fyrir marga sem eru að fara
lengra er tilvalið að byrja á
Kaupmannahöfn. Lestar- og
flugsamgöngur eru greiðar í
allar áttir og ef maður er
heppinn er hægt að kaupa ierðir
til allra heimshorna fyrir sára-
lítið fé.
Það fólk sem heldur áfram
gefur sér sjaldan tíma til að
skoða Kaupmannahöfn að
nokkru gagni. Það tyllir sér
aðeins niður eins og fuglar sem
eru að fljúga lengra. En það er
samt ótalmargt sem er þess
virði að líta nánar á í Kaup-
mannahöfn. Kaupmannahöfn er
nefnilega ekki bara Strikið og
Nýhöfnin. -DS.
Texti: Döra Stefánsdóttir
ÖTRÚLEGA
DÝRMÆTIR
HLUTIR
finnast á dönskum söfnum
Olaf Ussing og Jorgen Reenberg i Faust.
LeikhúsíKaupin:
Ánamaðkar
Þaö eru mjög mörg söfn í Kaup-
mannahöfn sem eru þess viröi aö
þau séu skoöuö. Hér veröur hins veg-
ar aöeins drepiö á tvö þau frægustu.
Glyptoteket er safn sem Carls-
berg bjórverksmiöjurnar hafa gefið
þjóöinni. Engin smágjöf, því þarna
hefur Dönum tekist að safna saman
ótrúlega dýrmætum listaverkum
frá Forn-Egyptum, Rómaveldi,
Grikklandi og öörum löndum okkur
fjær. Þarna er líka eitt skemmtileg-
asta safn af málverkum franskra
impressionista sem nokkurs staöar
finnst utan Frakklands.
Hitt safniö er Statens Museum for
Kunst, fullt af afar fallegum og
sumum geysilega dýrmætum mál-
verkum og höggmyndum.
Fyrir þá sem vilja sjá svolítiö af
danskri náttúru um leiö og þeir njóta
listar er tilvaliö aö skreppa til
Humlebæk. Þar er safniö Louisiana.
Feröin tekur aöeins um hálftíma
meö lest og síöan er fimm mínútna
göngutúr í afar fallegu landslagi.
Á Louisiana stendur núna yfir
sýning á írskri list frá fyrri tímum.
Þessi sýning hefur veriö send um
þveran og endilegan heiminn og er
þetta síðasti viðkomustaöur hennar.
og hórur
í Berlín
Danir eiga fjöldann allan af veru-
lega góöum leikurum. Góð leikhús og
langa hefö í að setja á svið. Urvaliö
af því sem boðið er upp á er þaö mik-
iö aö fyrir Islending nýkominn aö
heiman er erfitt aö átta sig.
Konunglega leikhúsiö þykir mörg-
um fínast. Þó að sumir gagnrýnend-
ur í dönskum blöðum leggi til í fullri
alvöru aö þaö verði lagt niður. Sú til-
laga byggist á því aö þetta sé orðiö
allt of mikiö bákn til aö gegna sínu
hlutverki. Konunglega leikhúsiö lifir
líka erfiöa tíma núna. Verið er aö
breyta gamla góða leikhúsinu viö
Kóngsins nýjatorg, verk sem mun
taka einhver ár. Því er leikið víöa um
borgina, stærstu verkin eins og ball-
ettar og óperur í Tívolíkonsertsaln-
um, leikverk á nýja sviöi leikhússins
og önnur minni á lánssviði viö Grá-
bræöratorg. Þann 10. apríl hættir
starfsemin í Tívolísalnum. Ballettar
verða því engir sýndir hér fyrr en
næsta haust og aðeins ein ópera, Cosi
van Tutti, veröur frumsýnd þann 25.
apríl á sviði í Hofteatrinu. Þrjú leik-
rit eru í gangi um þessar mundir og
veröa það áfram, Ur lífi ánamaðk-
anna, sýning sem hefur hlotiö
óhemju góöar viðtökur, Mutter Cour-
age og Faust eftir Goethe.
Þaö leikrit sem tvímælalaust hef-
ur fengið mest umtal hér í vetur er
hins vegar sýnt á sviöi Tre Falke hót-
elsins. Það er Miraklet eða Krafta-
verkið sem gagnrýnendur hafa hafiö
upp til skýjanna. Berlin 84, sem sýnt
er í Bellevue leikhúsinu, hefur einnig
hlotiö mikiö umtal. Þetta er söngleik-
ur um hórur í Berlín og er víst ekki
allt fallegt sem á sviðinu er sýnt.
BAKKINN
ER OPINN
Þaö er búiö aö opna Bakkann,
það er að segja Dyrehavsbakken
Þar er hægt aö komast í ýmis
tívolítæki, hringekjur, rússíbana
og fleiri tæki sem fólk borgar
stórfé fyrir aö láta hræöa úr sér
lífiðí.
Til þess að komast á Bakkann
tekur fólk lest frá Kaupmanna-
höfn til Klampenborgar. Þetta
er kortérs til tuttugu mín.
ferö. Síðan er örstuttur göngutúr
útá Bakkann.
Mörg ný tæki hafa verið sett
upp á síðustu árum. Frægust
þeirra eru vatnsrússíbani og
persneskt teppi. A kvöldin eru
skemmtanir á Bakkanum:
sirkusrevían, sem er nánast aö
segja óskiljanleg öllum öðrum
en Dönum, og söngkonur sem
troða upp í sérstöku tjaldi. Þær
eru feitar og gamlar og syngja
dapurlega söngva. Fólk hendir
til þeirra peningum fyrir.
Dyrehavsbakken er draumaheimur barnanna.