Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Side 11
Í«9X 1AM .8H1JOAOHAOUAJ. VO DV.LAUGARDAGUR5.MA1 1984. ,jSjáiö nú til, sagöi ég. „Þegar um skegg mitt er aö ræða finnst mér aðeins ein kona hafa álitsréttindin og þaö er eiginkonan min. Ef þið viljiö telja mér hughvarf veröiö þið aö snúa ykkur til hennar. Og þær létu ekki á því standa. Frúin í símanum hringdi í konuna mina og þuldi yfir henni. Þaö fór nákvæmlega eins og mig hafði grunaö. Konan min sagði nákvæmlega viö þá talglööu þaö, sem hún átti skilið, en ég haföi hlífst við aö segja.” — Eg hygg að fáir muni þig skegg- lausan. Hvenær fórstu aö safna skeggi og hvers vegna? „Astæðan fyrir ööru eins og þessu er oftast nær óræö og erfitt aö gefa svar. Vera má að skemmtileg andlitsmynd afa míns hafi átt þátt í því. Ef til vill var þaö mynd Hognestads biskups í Björgvin, en hann er fyrsti biskupinn sem ég man. Þegar ég var fjögurra ára teiknaði ég mynd af biskupi með kraga, krossa og skegg og skrifaöi nafn mitt, Per, undir. Annars hef ég fyrir löngu fundið svar varöandi mitt tólf ára gamla skegg: Þaö varöar menninguna. Kenningin er ræktun. Þaö er aö segja aö menn eiga hvorki aö láta vöxtinn ganga út í öfgar (en það gera sumir skeggræktendur) né varpa honum meö öllu fyrir borö.” — Hefur þú reynslu af því aö skeggiö geti bent á stööu mannsins? „Eg er ekki frá þvi. Og því til sönnunar ætla ég aö segja stutta sögu. Viö skólaguðsþjónustu í Rádekirkju hóf ég mál mitt með því aö spyrja bömin: Vitið þiö hver ég er? Þaö stóö ekki á svarinu: Biskup. Onnur spuming: Af hverju getið þið séð þaö? Svarið kom um hæl úr næstaftasta bekk: Skegginu.” ir^ekkt skegg á andliti hefur rit- höfundurinn Karsten Isachsen. Hann segist hafa manna minnst skegg. Þaö minnir helst á aö hann sé aðeins órak- aður.” — Hversvegnaertuþámeöþaö? „Noti ég rakvél, fæ ég kláöa, grípi ég til rakhnífsins fæ ég skeinur. Eftir aö hafa reynt hvort tveggja lengi ákvaö ég að losa mig við þessar þjáningar. Nú klippi ég stutt skegg með skærum einu sinni í viku. Þaö ber við aö fólk segir viö mig aö ég veröi að losa mig viö skeggið. En þegar ég hef gert það, kemur annað hljóö í strokkinn. Og þá er viðkvæðið: Safnaöu þvi aftur. Maöur verður búlduleitari meö árum — aö minnsta kosti ég — og skeggið skerpir vangamyndina og þekur feitar kinnarnar.” — Svo að nú gengurðu stöðugt með skegg og ætlar aö gera um alla fram- tíð? „Nei, ég hef þaö fyrir siö aö vera skegglaus þriðja hvert ár. Eg held aö hörandið hafi gott af því aö anda dálítið. Fá aukna sól og loft. Markmiöiö fyrir áriö 1984 er aö megra sig svo aö um munar og vera skegg- laus í nokkra mánuöi.” H vaö hafa sérfræöingar aö seg ja um skeggið? — Hvaö kemur þaö oft fyrir, Finn Ame Bækken, að til þín komi viðskiptavinir varöandi skegg og barta? „Sá dagur liöur ekki að við klippum ekki skegg. Við seljum líka tilbúiö skegg, gerviskegg og barta. Ahugi fyrir skeggi fer vaxandi og hefur þaö í för með sér að nú viljum viö innleiða skeggklippingu og bartameöferö á ný í fagi okkar og krefjast sveinsprófs í þeim. Og þaö verður um mörg sviö aö ræða, þaö eitt er víst.” — Svo að skeggið er aftur aö komast í tísku? „Einmitt, en allt tekur sinn tíma.” — Era margir sem leita ráða hjá hárskeranum er þeir hafa ákveöið aö fara aö safna skeggi? ,Jú, margir grennslast um álit okkar og hvernig skegg muni fara þeim. Við grandskoðum andlitslögun- ina og leitumst viö aö fela hugsanleg lýti og legg jum áherslu á sérkenni and- litsins. Eftir því sem skeggið vex skerpum við útlínurnar, gerum mörkin gleggri og rökum öll óþörf hár. Því oftar sem skeggsafnandinn lítur inn til okkar á byrjunarstigum, því betri verður árangurinn. Og ef einhverjum finnst skeggið of ljóst eöa of grátt, litum viö þaö til þess aö það sómi sér betur. Hví skyldu karímenn ekki vera dálítiö hégómagjamir?" — Getaallirkarlmennfengiöþokka- legt alskegg ef þá langar til? „Nei. Ef skeggvöxturinn er of gisinn, þá nýtur skeggið sín ekki og verður hýjungslegt. Og þá er nú betra aö vera skegglaus og láta sér nægja bartana. Það gera lika margir. Þeir leita ráða hjá okkur, fagmönnunum. Viö seljum mikiö af bartavaxi þessa dagana.” Aftenposten. SKILAFRESTUR ER TIL 10. MAÍ DRAGIÐ EKKI AÐ SENDA GETRAUNASEDLANA, SENDIÐ ÞÁ NÚNA! 24. MAÍ HEFST SÍÐASTI HLUTI GETRAUNARINNAR AÐEINS FYRIR SKULDLAUSA ÁSKRIFENDUR - OG VINNINGURINN ER TOYOTA TERCEL 4WD ÁRGERÐ 1984 HVER VILL MISSA AF HONUM? MISSTU EKKI VIKU ÚR LÍFI ÞÍNU - VERTU MED ÞEGAR . VIÐ DRÚGUM UM TERCELINN í FARARBRODDI I « .___._. AR ^ 17. MAI % ÁSKRIFTARSÍMINN ER (9D-27022 DRÚGUM VIÐ ÚT FJÖLSKYLDUFERÐ OG DVÖL í SUMAR- HÚSI í HOLLANDI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.