Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1984, Qupperneq 33
33'
Buffalo Wayne kántrikappi frá Lúxemborg tekur lagið i Stúdiói Stemmu ásamt aðstoðarmönnum sinum.
Frá vinstri: Sigurður Rúnar Jónsson, Björn Thoroddsen, Skúli Svavarsson, Buffalo Wayne og Pétur
Hjaltested. Ásgeir Óskarsson trommari sést ekki enda skyggir kántristjarnan á hann. o V-mynd EÓ.
Claude Weber alias Buffalo Wayne f rá Lúxemborg:
BRÉFTIL
ÞORÐAR FRÆNDA
— bók Úlfars Þormóðssonar komin út
Fáskrúðsfjörður:
Mikið um að vera
á sjómannadaginn
Kántrítónlist frá Lúixemborg tekin
upp á Islandi meö íslenskum hljóö-
færaleikurum. Hljómar ótrúlega.
Engu aö síöur satt.
Buffalo Wayne er hann kallaður,
heitir raunverulega Claude Weber en
eins og allir sjá gengur slíkt nafn ekki
á kántrísöngvara. Hann lítur út eins og
amerískur kántrísöngvari en vill samt
ekki stæla ameríska kántrísöngvara.
Hann talar ensku með amerískum
hreim.
— Eg hef mikiö verið í Bandaríkjun-
um og spilað víöa, er einmitt aö koma
þaðan eftir tveggja mánaöa dvöi, segir
hann.
Hingaö til lands er hann kominn til
að taka upp lög á sína fyrstu breið-
skífu.
— Ég kom fyrst hingaö til Islands í
fyrra og hélt hér nokkra tónleika í boöi
Flugleiöa og Feröamálaráös. I leiöinni
tók ég upp nokkur lög í Stúdíói Stemmu
og líkaði svo vel að ég ákvaö aö koma
aftur.
Og nú er hann aö taka upp fleiri lög í
Stúdíói Stemmu og nýtur aðstoöar
nokkurra valinkunnra íslenskra hljóö-
færaleikara. Það eru þeir Ásgeir
Oskarsson. trommuleikari, Bjöm
Thoroddsen gítarleikari, Pétur
Hjaltested hljómborösleikari, Skúli
Svavarsson bassaleikari og Siguröur
Rúnar Jónsson, alias Diddi fiöla, sem
leikur aö sjálfsögöu á fiölu en á ýmis-
legt fleira líka. Diddi sér aukinheldur
um upptökustjórn og útsetur lögin
ásamt Buffalo Wayne. Upptökumaöur
er Sveinn Ölafsson. Og fleiri koma viö
sögu, þær Jóhanna G. Linnet og Ing-
veldur Olafsdóttir syngja bakraddir á
plötunni.
— Ég hef verið í stúdíóum víöa um
heim en hvergi fundið jafngóöan og
hressan anda og hér hjá Didda, segir
Buffalo Wayne. — Drengurinn er
snillingur, þaö fer ekki á milli mála,
bætir hann viö.
Evrópskt kántrí
En þaö er fleira sem dregur Buffalo
Wayne hingaö. Hann er að reyna aö
gera kántrítónlist sem byggir á hefö-
bundinni amerískri kántrítónlist en á
samt aö hljóma öömvísi en sú
ameríska.
— Ég vil gera evrópska kántrítón-
list, segirhann.
Og aö þeirri reynslu fenginni vestan-
hafs aö öll kántrítónlist hljómaöi svo
Úlfar Þormóðsson hefur nú gefiö út
nýja bók, „Bréf til Þórðar frænda, meö
vinsamlegum ábendingum til saksókn-
arans”. „Viö erum báðir úr Skagafirði
og þar hefur ýmislegt gerst sem ekki
er skráð í kirkjubækur,” sagöi Ulfar
þegar hann var inntur eftir skyldleika
sínum viö Þórö Björnsson ríkissak-
sóknara.
„Þetta bréf á ekki eingöngu erindi
viö Þórö. Ef svo heföi verið heföi ég
stungiö því í umslag og sent honum,”
sagöi Ulfar. „Þetta eru vangaveltur
mínar meðan ég beið eftir dómi út af
Spegilsmálinu. Eg er aö velta fyrir
mér ýmsum málum sem hafa dottið
upp fyrir, ýmsum vandamálum, eins
og hálförvæntingarfullum klámhundi
og guölastara sæmir.
Ulfar er sjálfur útgefandi bókarinn-
ar og hyggst selja hana næstu daga á
torgum og þar sem menn eru líklegir
til aö safnast saman.
„Eg fékk ekki útgefanda aö bókinni
og varö aö f jármagna hana sjálfur. Ég
legg mikla áherslu á aö selja hana sem
fyrst því aö ég get búist viö aö frændi
geri hana upptæka þegar hann hefur
lesið hana. Ég hef þó dálítinn tíma til
stefnu, hann er ekki hraðlæs karlinn,
eins og dæmin sanna,” og þar meö
heldur Ulfar Þormóösson út til aö selja
bókinaá Lækjartorgi.
/ gær stóð Úlfar Þormóðsson á Lækjartorgi og seldi grimmt Bréf Þórðar
frænda og áritaði.
Frá Ægi Kristinssyni, fréttaritara DV
á Fáskrúðsfirði:
Hátíðardagskrá sjómannadagsins á
Fáskrúösfiröi hófst kl. 9 á sjómanna-
dag meö siglingu skipa um fjöröinn og
var þar margt um manninn.
Kl. 11 messaði sóknarpresturinn í
Fáskrúösfjaröarkirkju. Eftir messu
var afhjúpaður minnisvaröi um
drukknaöa Fáskrúösfirðinga. Minnis-
varöann afhjúpaöi Svanhvít Guö-
mundsdóttir frá Þórshamri. Aöal-
hvatamaður aö byggingu minnisvarö-
ans var séra Þorleifur Kjartan Krist-
mundsson, sóknarprestur á Kolfreyju-
staö. Fé til byggingar minnisvaröans,
sem er úr austfirskum gabbrósteini úr
Hornafirði, en krossmynd og tákn úr
blágrýti, var gefiö af áhöfnum Hoffells
SU—80, LjósafellsSU—70; Lionsklúbbi
Fáskrúðsfjarðar, varasjóði sparisjóös
Fáskrúösf jaröar, UMF: Leikni,
Verkalýös- og sjómannafélagi Fá-
skrúösfjarðar og Birgi Ágústssyni frá
Biæðraborg sem gaf álitlega upphæö.
Var minnisvarðanum valinn staöur viö
suðurhlið Fáskrúösfjaröarkirkju.
Minnisvarðinn er gerður af Steiniöj-
unni í Kópavogi en er ekki alveg fullbú-
inn.
Eftir hádegi hófst skemmtun viö
höfnina. Þar flutti Agnar Jónsson há-
tíöarræðu, síöan hófst kappróöur og
hinn vinsæli plankaslagur og skemmtu
menn sér vel þegar ein hetjan sem i
sjónum lenti kom meö nærbuxurnar á
hælunum úr sjónum.
I kappróöri sigraði sveit Kára Jóns-
sonar aö venju og hlaut bikarinn sem
nú er keppt uin í annað sinn, en sveitin
hefur veriö nær ósigrandi á undanförn-
um árum, hefur sigraö alls átta sinn-
um og unnið sér til eignar tvo bikara og
ætlar að tryggja sér bikarinn til eignar
á næsta ári.
I kappróðri kvenna sigraði sveit Pól-
arsíldar h/f. A íþróttavellinum var
keppt í knattspyrnu, landsmenn unnu
sjómenn, ógiftar konur unnu giftar.
Síðan var kaffisala i Skrúö. Unglinga-
dansleikur hófst í Skrúö kl. 18 og sá
hljómsveitin Upplyfting um aö allir
skemmtu sér.
Um kvöldið buðu áhafnir Ljósafells
og Hoffells eiginkonum og kærustum
til matarveislu í félagsheimilinu
Skrúö. Þar var ýmislegt sér til gainans
gert sagðir brandarar og togarakvart-
ettinn söng viö góöar undirtektir
veislugesta. Kl. 22 hófst almennur
dansleikur í félagsheimilinu og sóttu
liann um 300 manns. Hljómsveitin
Upplyfting lék á dansleiknum sem var
hinn fjörugasti. Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráöherra flutti ræöu á
dansleiknum og afhenti síöan verðlaun
þau sem unnið var til fyrr um daginn.
D.V. Ægir Kristinsson, Fáskrúösfirði
Svanhvit Guðmundsdóttir afhjúpar minnisvarða um drukknaða
Fáskrúðsfirðinga á sjómannadaginn.
Buffalo „strýkur"hálsinn og Ásgeir er úti undir vegg.
aö segja eins og amerískir kántrítón-
listarmenn lentu ósjálfrátt í sama
gamla farinu ákvaö Buffalo Wayne aö
taka plötu sína upp þar sem kántrítón-
list á sér engar heföir og tónlistarmenn
ekki fastir í gömlum töktum.
— Mér likar alveg geysilega vel aö
starfa meö þessu fólki hérna og ég er
viss um aö ég finn hvergi betri staö til
að taka plötuna upp en hér í Stemmu.
Munurinn á því að taka upp hér og í
Bandaríkjunum er sá aö hér ræö ég
meira yfir hljóðfæraleikurunum og
þeir hlusta meira á mig. Og þannig er
auðveldara aö fá þann blæ á tónlistina
semégvil hafa.
Tískuteiknari
Buffalo Wayne hefur leikið kántrí-
tónlist frá unga aldri. Hún er þó ekki
hans eina lifibrauö því hann er jafn-
framt tískuteiknari og stundar þá
vinnu í París. Tónlistin hefur á undan-
fömum árum sífellt tekiö meira af
tíma tískuteiknarans en með fullu
samþykki hans.
— Eftir aö mér tókst aö skapa mér
nafn sem kántrísöngvari bæði heima í
Lúxemborg og í Belgíu og Þýskalandi
var það engin spuming aö leggja meiri
áherslu á tónlistina. Ég hef þó alls ekki
sagt skilið viö tískuteiknarann.
Er þú, lesandi góöur, lest þetta, er
Buffalo Wayne horfinn af landi brott í
þetta sinn en hann hefurhug áaökoma
aftur einn góöan veðurdag. Næst á
dagskránni hjá honum er hljómleika-
ferö um Þýskaland og síöan ætlar hann
aö koma fram á útihljómleikahátíðum
sem haldnar eru víöa um Evrópu um
sumartímann. Aö því loknu ætlar hann
aftur til Bandaríkjanna því eins og alla
góða kántrítónlistarmenn dreymir
Buffalo Wayne um aö veröa þekktur í
föðurlandi kántrítónlistarinnar.
-SþS.
TEKUR UPP KÁNTRÍ-
TÓNLIST Á ÍSLANDI