Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Blaðsíða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNI1984.
Langafi okkar var
bróöir Þórbergs
— sögðu krakkamir sem DV-menn hittu á
þjóðveginum fyrir ofan bæinn Hala í Suðursveit
Klædd stuttbuxum og stutterma-
bol komu bömin valhoppandi eftir
þjóöveginum fyrir ofan bæinn Hala í
Suðursveit þegar DV-menn voru þar
á ferö nýlega í einstakri veðurblíðu.
Fjallasýn var stórkostleg. Fjær
mátti sjá öræfajökul með Hvanna-
dalshnjúk hæstan. Skriðjöklarnir sil-
uðust niður. Fyrir ofan bæinn reis
snarbratt tæplega 800 metra hátt
Steinafjall. Undan ströndinni sáust
Hrollaugseyjar.
Krakkarnir kváöust bara vera í
göngutúr eitthvað út í buskann. Ætl-
uðu kannski að skoða folald eða gam-
althús.
Þama eru reyndar þrír bæir;
Hali, Breiðabólsstaður og Gerði.
Hali er þeirra kunnastur fyrst og
fremst vegna þess að þar fæddist
Þórbergur Þórðarson rithöfundur
árið 1889. Hann lést áriö 1974.
Þegar við spurðum börnin að
nafni var auðheyrt að þau vom skyld
Þórbergi. Þau sögðust heita Júlíana
Þórbergsdóttir, Heiða Björk Þór-
bergsdóttir, Arnór Már F jölnisson og
Helga Hrönn Þorbergsdóttir.
__Amór, níu ára, er frá bænum
Hala. Júlíana, líka níu ára, býr á
Alftanesi í Bessastaðahreppi, Helga
Hrönn, ellefu ára, er frá bænum
Gerði. Heiða Björk, tíu ára, býr á
Akranesi. Þau eru hins vegar öll
skyld.
„Langafi okkar, Steinþór Þórðar-
son, var bróöir Þórbergs,” sagöi
einn úr hópnum. -KMU.
Léttklædd nutu þau góða veðursins. Þau eru frá vinstri: Júiíana, Helga
Hrönn, Heiða Björk og Arnór Már. /bakgrunni rís Öræfajökull.
DV-mynd: GVA.
Formenn samtaka norrænna malmiðnaðarmanna. Talið frá vinstri: Per Lundh
Finnlandi, George Poulsen Danmörku, Guðjón Jónsson íslandi, Sulo Penttila,
fyrrum formaður finnsku samtakanna og fráfarandi formaður norræna sam-
bandsins, Lar Scytöen Noregi og Sven Wehlin Svíþjóð.
Norrænir málmiðnaðarmenn þinga:
Stof na sjóð
Fyrsta ársþing Sambands norrænna
málmiðnaðarmanna stendur nú yfir
hér á landi. Að sögn Guðjóns Jónsson-
ar, formanns Málm- og skipasmiða,
verður rætt um afstöðu sambandsins
til f jölþjóðafyrirtækja, aukið samstarf
við alþjóðasamtök málmiðnaðar-
manna, svo og ýmis sameiginleg mál-
efni norrænna aöildarfélaga. Þá verð-
ur myndaöur sjóður til að efla og að-
stoöa samtök málmiðnaðarmanna í
þróunarlöndum.
Þingið sækja þrjátíu fulltrúar frá
öllum Noröurlöndum. Það hófst síðast-
liðinn þriðjudag í Reykjavík og lýkur á
Akurey ri í dag, f östudag. E A
Togaraafgreiðslan
Iðgð niður:
Atvinnuleysi
við höfnina?
Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavíkur, sem haldinn var fyrir
skömmu, skoraði á hafnaryfirvöld
og borgarstjórn að gera viðeigandi
ráöstafanir áöur en togaraafgreiðsl-
an í Reykjavík veröur lögð niður 1.
júlí. Bent var á aö stærri togarar og
nokkur kaupskip gætu átt í erfiðleik-
um með löndun eftir mánaöamótin.
Það gæti orðið til þess að skipakom-
um fækkaði og að fjöldi reykvískra
hafnarverkamanna yrði atvinnu-
laus.
EA
Nýir Skodar
að verða
uppseldir
Mikil sala hefur verið á Skoda það
sem af er þessu ári og hafa nú selst
helmingi fleiri bílar en allt árið í
fyrra.
Að sögn Haralds Sigurðssonar,
sölustjóra hjá Jöfri hf„ pantaöi fyrir-
tækið helmingi fleiri Skoda en árið
áöur, en hefðu betur þrefaldað pönt-
unina því að nú er svo komið að allir
Skodar eru að verða uppseldir. Ekki
er hægt að fá fleiri bíla af árgerð ’84
vegna þess að verksmiðjumar hafa
ekki undan að framleiða.
Haraldur sagði að Jöfur fengi
enga bíla fyrr en í haust og þá árgerð
'85. Þegar eru byrjaðar að berast
pantanir frá Vestur-Evrópu í Skoda
’85, og verða Skodaverksmiöjurnar
að auka afköst sín tU muna eigi þær
að anna þeirri auknu eftirspum er
skapasthefur.
-pá
Hestaleiga
íLandsveit
Hestaleiga verður rekin á Aust-
vaðsholti í Landsveit í Rangárvall-
arsýslu í sumar.
Leigan verður rekin þannig að
farið verður í fjórar 6 daga ferðir f
Landmannalaugar undir leiðsögn
Jóns Benediktssonar. Fyrsta ferðin
verður farin 8. júlí, sú næsta 22. júlí,
þá 5. ágúst og sú síðasta 19. ágúst.
Gist verður tvær nætur á farfugla-
heimili á Leirubakka, aðrar tvær i
skála í Landmannahelli og eina í
skála í Landmannalaugum. Verður
fólki séð fyrir fæði. Níu manns
komastíhverjaferð. -KÞ
Björgunarþyrlan sem Landhelgisgæslan kaupir:
Með tæki sem sér í myrkri
Islenska ríkiö hefur samið við
franska fyrirtækið Aerospatiale um
kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelg-
isgæsluna. Þyrlan er af gerðinni SA—
365N Dauphin 2. Hún verður afhent eft-
ir eitt ár.
Með þyrlunni eru keypt ýmis viðbót-
artæki, varahlutir og verkfæri. Heild-
arverðið er um eitt hundrað milljónir
króna, þar af er verð þyrlunnar um 70
milljónir króna.
Meðal aukatækja er infrarautt
sjóntæki. Með því geta flugmenn séö í
myrkri og dimmviðri. Tækið aðgreinir
hluti þar sem hitamismunur er brot úr
gráðu. Auðveldar það leit aö mönnum í
sjó og á fjöllum uppi.
Hugsanlegt er að meö þessu tæki
hefði mátt finna bresku flugmennina,
sem brotlentu á Eiríksjökli á dögun-
um, fyrr en raun varð á.
Þar sem afhendingartími þyrlunnar
er eitt ár hefur verið samið við Aero-
spatiale um að þaö leigi Landiielgis-
gæslunni samskonar þyrlu. Leiguþyri-
an er væntanleg til landsins í septem-
berlok næstkomandi. Landheigisgæsl-
an mun greiöa ákveðið flugtímaverð
en Aerospatiale annast viöhald og
greiða tryggingar. Flugvirki mun
koma með þyrlunni frá Frakklandi.
Þjálfun íslenskra flugmanna og
flugvirkja á þyrluna er innifalin í
kaupverði. Þjálfunin mun b'klega fara
framíspetember.
-KMU.
Franska þyrlan Dauphin sem varð
fyrir valinu.
Ökuleikni BFÖ og DV:
Tímamet sett á Egilsstööum
Keppt var í ökuleikni Bindindisfé-
lags ökumanna og DV á Egilsstöðum
sl. föstudagskvöld, 22. júní. Mjög góð
þátttaka var í keppninni eða 17
keppendur. Góður árangur náðist og
voru tveir efstu keppendur í karla-
riðli undir 150 refsistigum og þykir
mjög gott að vera undir þeim mörk-
um. Sett var tímamet í brautinni.
Það var Rafn Gíslason á Willys
jeppa. Hann ók brautina á 71 sek-
úndu. Það vill oft henda að þegar ek-
ið er svo hratt í gegnum planið að
það komi niður á hæfhinni. Það gerð-
ist einnig í þetta sinn og lenti Rafn í
12. sæti. Þetta á þó ekki við um alla
og sannaöist það á sigurvegaranum,
Grétari Reynissyni. Hann ók Dai-
hatsu bQ sínum á 72 sekúndum í gegn-
um brautina og gerði aðeins 3 villur.
Hann fékk samanlagt 117 refsistig.
Það er annar besti árangur á landinu
hingaö til. Annar í karlariðli varð
Bjöm Bjömsson á BMW1800 með 135
refsistig. I þriðja sæti varð Snorri
Benediktsson á Volvo 244 með 176
refsistig.
I kvennariðli sigraöi Guðbjörg Sig-
mundsdóttir á Mazda 929 með 261
refsistig. I ööru sæti varð Rósa Ein-
arsdóttir, einnig á Mazda 929, með
300 refsistig.
Gef endur verölauna á Egilsstöð-
um voru tveir. I karlariðli gaf heild-
verslun Héðins Kjartanssonar á
Egilsstöðum verðlaunin en í kvenna-
riðli var það Kaupfélag Héraðsbúa á
Egilsstöðum.
EG.
■