Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Blaðsíða 8
8 DV. FÖSTUDAGUR 29. JUNI1984. Fóstraóskast að leikskólanum Lönguhólum, Höfn, Hornafirði, frá 20. ágúst * 1984. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 97-8315. Byggingaverkfræðingur — byggingatæknifræðingur Fasteignamat ríkisins óskar að ráða byggingaverkfræðing eða byggingatæknifræðing til að veita forstöðu umdæmisskrif- stofu FMR í Reykjavíkurumdæmi. Nokkur reynsla í mats- störfum æskileg. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknar- frestur til 10. júlí nk. Umsóknir sendast forstjóra FMR, Borgartúni 21, sem gefur nánari upplýsingar. Fasteignamat ríkisins. ÚTBOÐ Verzlunarmannafélag Reykjavíkur (V.R.) óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við íbúðir aldraðra félagsmanna V.R. að Hvassaleiti 56 og 58. Húsið verður sjö hæðir og kjallari og í því verða 56 íbúðir, sam- tals 7900 m2. Húsinu skal skila fokheldu og fullfrágengnu að utan og skal verkinu vera lokið 1. júlí 1985. Utboðsgögn verða afhent frá og meö þriðjudeginum 3. júlí 1984 á teiknistofu Gylfa Guðjónssonar og Ingimundar Sveinssonar arkitekta, Skólavörðustíg 3, gegn 20.000,- kr. skilatryggingu. Tilboö verða opnuð á skrifstofu V.R., Húsi verzlunarinnar, 8. hæð, miðvikudaginn 18. júlí 1984 kl. 16.00. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. rr Úrval L vid allra hœfi KJÖRINN FERÐAFÉLA Gl, FER VEL í VASAf VEL Neytendur Neytendur Neytendur Nú geta sjúklingar leitað til sórfræðinga án þess að fá tilvísun hjá heimilislækni. Greiðsla fyrir hverja komu til sórfræðings hefur verið hækkuð í270 krónur og getur hún orðið hærri. Frá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur: Talsverðar breytingar á almannatryggingalögum — nýir samningar og hækkanir Vegna breytinga á samningum vill Sjúkrasamlag Reykjavíkur koma eftirfarandi á framfæri til samlags- manna slnna. Þeir sem áður höfðu sér- fræðing sem heimilislækni þurfa nú að veija sér nýjan. Sjúkllngum er nú gert kleift að skipta um heimilislæknl tvisvar á ári, í stað einu sinni áður. Þá getur sjúklingur leitað sérfræðings án þess að hafa áður fengið tilvísun frá heimilislækni, en greiðsla fyrir hverja komu tii hans hefur verið hækkuð í 270 krónur. Samkvæmt hinum nýju samningum breytast elnnig endurgreiðslur sjúkra- samlaga fyrir tannlæknaþjónustu, auk þess eru breyttar reglur um greiðslu sjúkradagpeninga. Þann 1. apríl síðastliðinn tók gildi nýr samningur milli Tryggingastofn- unar ríkisins fyrir hönd sjúkra- samlaga annars vegar og Lækna- félags Reykjavíkurhinsvegarumsér- fræðilæknishjálp utan sjúkrahúsa. Þann 1. maí síðastliðinn tók síðan gildi nýr samningur milli Tryggingastofn- unar rikisins fyrir hönd sjúkrasam- laga annars vegarogLæknafélags Is- lands og Læknafélags Reykjavíkur hins vegar um heimilislæknishjálp. Báðir þessir samningar breyta nokkuð því ástandi sem ríkjandi var fyrir gildistöku þeirra. Lög nr. 43/1984 um ráðstafanir i ríkisfjármálum, peninga- og lánsfjár- málum, hafa að geyma ákvæði er tengjast högum sjúklinga og breyta að nokkru Almannatryggingalögum. Hér á eftir er nánar greint frá þeim breytingum sem haf a átt sér stað. Ve/j'a nýjan heimilislækni Læknum er ekki lengur heimilt afl starfa samkvæmt báðum samn- ingunum. Sérfræðingum, sem áður störfuðu jafnframt sem heimilis- læknar, er slíkt ekki lengur heimilt nema sérstakt samþykki Trygginga- stofnunar rikisins komi til. Þeir sam- lagsmenn, sem áður höfðu sérfræðing sem heimilislækni, þurfa nú að velja sér nýjan lækni eða láta skrá sig á heilsugæslustöð. Þetta gildir ekki um þá lækna sem eru sérfræðingar í heimilislækningum og starfa sem slíkir. Þá var einnig sú breyting gerð að sjúklingum er nú gert kleift að skipta um heimilislækni tvisvar á ári í stað einu sinni áður. Skal það gert með mánaðar fyrirvara, miðað við fyrsta janúar og fyrsta júlí ár hvert. Heimilt er hvenær árs sem er aö óska eftir flutningi að og frá heilsugæslustöð. Ckki þarf tilvísun til sórfræðings Frá og með gildistöku laga nr. 43/1984 og fram til 1. apríl 1985 er ekki gerð krafa um tilvísun til sérfræðings. Nú getur sjúklingur leitað til hans án þess að hafa áður fengiö tilvísun frá heimilislækni. Greiösla sjúklings fyrir hverja komu til sérfræðings hefur verið hækkuð í 270 krónur, en elli- og örorku- lífeyrisþegar greiða hálft gjald. Fyrir hverja komu til heimilislæknis ber að greiða 75 krónur. Leiti sjúklingur til annars heimilis- læknis en síns eigin er heimilislækni heimilt að krefja hann um fullt gjald samkvæmt gjaldskrá heilsugæslu- lækna að viðbættum 2/3, enda kemur þá engin greiðsla frá samlagi. Sérfræðingar starfa ekki allir sam- kvæmt samningi þeim sem Trygginga- stofnun ríkisins hefur gert við Lækna- félag Reykjavíkur fyrir hönd sjúkra- samlaga. Skulu sérfræðingar hafa á stofum sínum vottorð frá T.R. um að þeir starfi samkvæmt samningunum. Sjúklingar, sem kynnu að leita til ósamningsbundinna sérfræðinga, gera það á eigin kostnaö. Breyttar endurgreiðslureglur fyrir tannlæknaþjónustu Með fyrrnefndum lögum breytast endurgreiðslureglur sjúkrasamlaga fyrir tannlæknaþjónustu. Fyrir börn og unglinga 6 — 15 ára eru nú endur- greidd 100% af kostnaði við tann- lækningar. En ef um er að ræða gull- fyllingar, tannréttingar, krónu- og brúargerðir greiöast 50% kostnaðar. Tannlækningar, sem gerðar voru fyrir 1. júni 1984, eru greiddar 75% af sjúkrasamlagi. Fyrir 16 ára unglinga greiðist 50% kostnaöar við hvers konar þjónustu. Fyrir unglinga, sem eru eldri en 16 ára, er greiddur 50% kostn- aður við tannréttingameðferð sem haf- in hefur verið áður en þeir urðu 16 ára. Um elli- og örorkulifeyrisþega verður óbreytt framkvæmd. Breyttar reglur um greiðslu sjúkradagpeninga Þá hafa einnig verið gerðar nýjar reglur um greiðslu sjúkradagpeninga í þeim tilfellum sem samlagsmaður verður algerlega óvinnufær og launa- tekjur falla niður, sé um þær að ræða. Samkvæmt hinum nýju reglum njóta samlagsmenn nú sjúkradagpeninga frá og meö 15. degi, enda sé við- komandi ðvinnufær í aö minnsta kosti 21 dag. Upphaf biðtíma miðast við þann dag sem óvinnufærni er stað- reynd af lækni. Ef mikið liggur á og ekki næst / lækni Ef slys eða bráða sjúkdóma ber að höndum, eða ef ekki næst í lækni eftir hefðbundnum leiðum, vill Sjúkra- samlag Reykjavíkur benda samlags- mönnum sínum á minnisblað símnot- enda sem er á blaðsiöu 3 í síma- skránni. —RR IHEND/ ÚRVALSEFNl AF ÖLLU TAGI. JÚNÍ-HEFTIÐ Á ÖLLUM HELSTU BLAÐSÖLUSTÖÐUM. Á Visa: Réttur korthafa aukinn Oft hefur verið bent á það hér á þessum vettvangi að ákveðnar reglur vanti hvað varðar hagsmuni handhafa greiðslukorta. Nú hefur Visa Island gert breytingar á reglum um Visa-viðskipti sem tóku gildi 21. júní sl. Þar er komið frekar til móts við korthafa en áður. I fyrri samningum var korthafa skylt að greiða alla fjárhæðina sem fram kom á reikningsyfirliti hans ef kort hafði glatast og tilkynninga- skyldu var ekki fullnægt. Nú er gengin í gildi viö slíkar aðstæður Eftir sem áður er korthafi ábyrgur fynr ollum uttektum sem kort hans hefur verið notað til. Glatíst kortíð kemur sjálfsábyrgð tíl eftír nýju samningunum. sjálfsábyrgð korthafa sem tak- Við fengum þær upplýsingar hjá markast við jafnvirði 100 dollara (í , Eurocard eöa Kreditkortum sf. að ísl. krónum). Hér er verið að minnka slíkur samningur sem Visa hefur nú áhættu þeirra sem glata korti og ekki tekið í gildi hafi gilt hjá Kredit- næst að tilkynna um kortmissinn eða kortum. hvarfiðuppgötvastekkiítækatíð. —ÞG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.