Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 29. JÚNl 1984.
9
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Leitað til læknis
og lyfin leyst út
— ríkið greiöir minna en áður
Það er mál manna aö dýrt sé aö
leita læknis og enn meiri kostnaöur
leggst ofan á þegar lyfin eru leyst út.
Stofugjald hjá heimilislækni er 75
krónur en þurfi aö fara til sérfræöings
kostar það 270 krónur minnst. Læknar
sem ekki taka tilvísanir fá greiddar
4—500 krónur fyrir að líta á sj úkling.
Algengt er aö leitaö sé til sérfræö-
ings. Hann skoöar sjúklinginn sem
greiöir 270 krónur fyrir og læknirinn
útvegar sjúklingnum lyfseðil. Þá er
ekki öll sagan sögö. Oft eru þetta stórir
lyfskammtar, tvær túpur af sama
áburði eða stór flaska af meðali. Sjúkl-
• ingurinn leysir þetta út í lyfjaverslun-
inni, er batnað áöur en helmingur lyfs-
ins hefur veriö notaður. Læknirinn vill
fylgjast með sínum sjúklingum og
biður marga að koma aftur að viku liö-
inni eða svo. Sjúklingurinn treýstir
sínum lækni, fer á fund hans að tiltekn-
um tíma liðnum. Læknirinn spyr þá
hvernig „sjúklingnum” líði og segist
viðkomandi vera orðinn miklu betri.
Læknirinn segir það gott vera og bætir
við að það sé lyfjunum að þakka. En
fyrir þetta þarf að greiða aðrar 270
krónur.
Afgangur /yfja
Þá eru það lyfin. Heyrst hefur að
menn eigi ávallt að ljúka við þann
meðalaskammt sem læknir útvegar þó
svo að öll sjúkdómseinkenni séu
horfin.
Tökum dæmi: Bami eru gefnir
dropar við eyrnaverk. Því eru gefnir
dropamir eftir því sem til er ætlast. Að
fáeinum dögum liðnum er barnið allt
annað og sefur orðið vært að nóttu. I
flestum tilfellum em dropamir þá
geymdir og hugsar forráðamaður að
gott sé að geta gripið til þeirra veikist
barnið aftur.
Ekkert gerist og dropamir eldast.
Ari síðar fær barniö aftur í eyrun. Þá
er gripið til þeirra og á glasinu stendur
að innihaldiö eigi að nota fyrir júli ’85.
Stundum stendur þó ekki hve lengi má
geyma meðul. En þegar hinir um-
ræddu dropar vom keyptir var lokið
innsiglað. Ef til vill geymast þeir til ár-
sins 1985 með innsiglinu á en hve lengi
geymast þeir eftir að það var rofið?
Geymsluþo/ eyrnadropa
DV hafði samband við lyfja-
fræðing og kvað hann ekki æskilegt að
geyma eyrna- og augndropa lengur en
3—4 vikur eftir aö dropaglasið hefur
verið opnaö. Ekki er þar meö sagt að
dropamir séu skemmdir eða ónýtir að
þeim tíma liðnum heldur er þama
spurning um bakteríusmitun sem fer í
glasið hver ju sinni þegar opnað er. Þó
fer geymsluþolið að einhverju leyti
eftir því hverrar tegundar droparnir
eru. Dagsetning á lyfjaumbúðum er
miðuð við geymsluþol lyfsins áður en
það hefur verið opnað.
Dýrt að leysa út mikið
iyfjamagn
Þegar lyf samkvæmt lyfseðli em
afgreidd er oft talsvert magn sem
greiða þarf fyrir. Þá er ekki alltaf þörf
á að nota allt lyfiö og finnst sumum þar
peningum vera kastað á glæ þar sem
geymsluþol lyfja er takmarkað.
Aö sögn heimilislæknis er það
heldur algengara að menn biðji um
meiri lyf en þeir fá heldur en að
kvartað sé yfir of miklu magni. Þá
sagði hann ennfremur að sérlyfin væm
í stöðluðum pakkningum og er fast
verð á hverju lyfi. Þannig að ekki
skiptir máli hvort sjúklingurinn fær
750 ml fiösku eða 3 pottflöskur af lyfi,
verðið er hið sama. Síðan er þaö mat
læknis hvort sjúklingur þurfi að klára
úr öllum glösum og túpum, eins og
heimilislæknir komst að orði. Við
afhendingu fúkkalyfja er þó reynt að
hafa ekki stærri skammt en þörf er á.
En samkvæmt nýjum samningum má
ekki gefa meira en 2ja mánaða
skammt út á sjúkrasamlag.
Hlutur sjúklings hefur
hækkað
Hluti sjúklings í lyfjakostnaði
hefur nýlega hækkaö. Áður greiddi
sjúkrasamlagið allan kostnað umfram
100 krónur á erlendum lyfjum. Nú
hefur hluti sjúklings hækkað i 240
krónurfyrir erlendlyf.
Barnið fínnur tH, farið er með það til læknis, gefínn út lyfseðill og öll lyf
leyst út. Fast gjald er fyrir hvert lyf, sama hvað magnið er mikið.
Kostnaður neytandans fyrir innlend Upphæðir þessar heimingast hjá 75%
lyf hækkaði úr 60 krónum í 120 krónur. öryrkjum og ellilíf eyrisþegum.
GINGAVÖRUR
Byggingavöruverslun og ráðgjafarþjónusta
Kleppsmýrarvegi 8 — Sími 81068
EITTHVAÐ FYRIR ALLA HÚSBYGGJENDUR OG HÚSEIGENDUR
ALUMANATION
30!
Fljótandi ál-
klæðning
fyrir pappaþök.
' TIL SPRUIMGUVIÐGERÐA
100%
akrýlmálning
PERMARDOF
Fyrir
pappaþök og
steinrennur
Solignum
Architectural fúavari
Alkalivörn — vatnsvari 40
ANT*MV)IT
i:i;7aij:i
SENDIN AKRYLPLASTMALNING
W-*CKT0P SE*LER!
DURATHANE
Polyurethan-þéttikítti
sem inniheldur grunn fyrir
járn, stein, timbur o.fl.
PERMAPLASTIK
PERMAPRIMER
SÆNSKA
PARKETTIÐ
FRÁ TARKETT
BUCHTAL
keramikflísar,
úti sem inni
Útvegum flestar byggingavörur
með stuttum fyrirvara.
Útborgun allt niður í 20% og lánstími allt
að 6 mánuðum.
Gunnar F.E. Magnússon múrari verður í
versluninni daglega kl. 16—18 og gefur
alla ráðgjöf varðandi notkun RPM-efn-
anna yður að kostnaðarlausu.
Málningarverkfæri
múrverkfæri
og önnur almenn
verkfæri
(RPM)
BYG GINGAVÖRUR
Byggingavöruverslun og ráðgjafarþjónusta
Kleppsmýrarvegi 8 — sími 81068
alla virka daga kl. 9—18.
laugardaga kl. 9—16.
OPIÐ
'ii.nkf.rif » te-Hí*
t HMl M’BM Stllrfl tfr ■« « •««««
•nukrvm «« ir mMM*M mb m 9 tkftwvat*