Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1984, Side 28
DV. FÖSTUDAGUR 29. JUN! 1!
the smiths
BRESKA BYLGJAN— ÝMSIRFLYTJENDUR:
Nýjabragð og
nýliðar breskir
■ CHRIS DE BURGH - MÁN 0N THE LINE:
POTTÞÉTTUR
FLUTNINGUR
Nýjasta plata Chris de Burg, Man On
The Line, er ein af þeim plötum sem
viö fyrstu heyrn viröist frekar lítið
spunniö í, en þegar þarf aö skrifa um
tónlistina þýöir ekki annaö en aö sýna
þolinmæði og setja hana aftur á og
hvaö skeöur? I staö þess að vera áfram
tilbreytingarlaus fer eitthvaö aö koma
í ljós sem ekki haföi náö heym minni
áður og lögin fara aö taka á sig aöra
mynd.
Nú er ég ekki vel kunnugur fyrri
afrekum Chris de Burgh á tónlistar-
sviðinu, en eftir aö hafa hlustaö á Man
On The Line er ég á þeirri skoðun að
hann sé allrar eftirtektar verður og
sýnist mér hann vera orðinn þróaður
tónlistarmaður, sem veit hvað hann
villog lætur vandvirknina sitja í
fyrirrúmi.
Man On The Line inniheldur tíu lög
sem öll eru eftir Chris de Burgh, bæði
tónlistist og textar. Kennir þar margra
grasa. Þótt platan í heild verði að
teljast léttrokkuð þá eru inni á milli
rólegar ballöður eins og þær gerast
bestar. En rokkið er í fyrirrúmi og má
þar nefna þrjú lög sem mér finnst
nokkuð skara fram úr: The Ecstasy Of
Flight (I love The Night), The Sound
Of A Gun og High On Emotion. Af
rólegri lögunum er eitt, sem ber af,
Moonlight And Vodka. Lagið frábært
og textinn hugleiðingar einstæðings í
Moskvu. Annars tengjast sumir text-
amir nafni plötunnar. Fyrir utan titil-
lagiö, Man On The Line, f jalla nokkrir
textanna um þráðlaus samskipti sem
mynda eina heild, enda heitir siöasta
lag plötunnar Transmission Ends.
'Chris de Burgh er ágætissöngvari.
Röddin mátuiega gróf. Allur flutningur
og hljóðfæraleikur er hinn vandaðasti
og ber vitni vandaðra vinnubragða.
Stundum einum of fullkomin stúdíó-
vinna, ef svo má að orði komast, en
heildarútkoman er hin ágætasta.
-HK.
Bretar hafa um langt skeið lagt
rokkinu til það nýjabragð sem
sumpart gerir þessa tónlist að svo heill-
andi viðfangsefni. Engin þjóð hefur
lagt jafnmikið af mörkum við endur-
nýjun rokksins á liðnum árum og
flestar stefnur og straumar eiga upp-
runa sinn í sama punkti, Bretlandi.
Það er því meira en vel til fundiö að
gefa út plötu með lögum einvörðungu
frá Bretlandi, Stóra—Bretlandi ættum
við öllu heldur aö segja, því Skotar
leggja hér til fjórðung laganna á
plötunni Breska bylgjan.
Otrúlega margar skoskar hljóm-
sveitir hafa ruðst inn á enskt yfirráða-
svæði og hér má heyra í þremur,
Simple Minds, Fiction Factory og
Bluebells. Þær eru valdar á þessa skífu
sökum þess að nýleg lög þeirra hafa
fengiö meðbyr ytra og gildir það sjón-
armið um val flestra laga á plötunua
að manni sýnist. Hér er sumsé ekki
mælikvarði gæðanna lagður einn til
grundvallar heldur líka ferskleiki
laganna og vinsældir í flestum til-
vikum, undantekningar eru lögin með
General Public, Carmel og Psycedelic
Furs sem þrátt fyrir mikiö umtal hlutu
litla náð fyrir augum smáskifu-
kaupenda í Bretlandi. Lögin á Bresku
bylgjunni hafa onnegin verið valin með
tilliti til þess að sýna nokkum þver-
skurð af þeim fjölbreytileika sem
bresk tónlist býður upp á þessa
dagana, hér glittir í flestar þær stefnur
sem ríkja nú á tíð og spanna sviðið frá
einföldu poppi (Wang Chung/Fiction
Factory) yfir í metnaðarfullt rokk
(Psycedelic Furs/ The Smiths). Þá fær
nýjasta tískufyrirbærið breska, popp-
djassinn, ágætt rúm á plötunni eöa tvö
lög, Your Love Is King með
bresk/nígerísku söngkonunni Sade og
More More More með athyglisverðu
tríói, Carmel.
Einlægt má karpa um val á safn-
plötur sem þessar en mér sýnist aö það
hafi tekist ljómandi vel, auðvitaö
saknar maður hljómsveita eins og til
dæmis Prefab Sprout, Aztec Camera,
Matt Bianco og fleiri sem gefa lög sín
út á merkjum í umboði Steina, en al-
mennt held ég að rokkunnendur geti
verið mér sammála um ágæti plöt-
unnar. Hér eru á einum stað nokkrir
helstu nýliðar Breta og fjölbreytt rokk,
— og ótvírætt besta safnplatan sem út
hefur komiö til þessa.
—Gsal
AUGLÝSENDUR
VIIMSAMLEG AST ATHUGIÐ
Vegna siaukinnar eftirspurnar eftir auglýsingarými i DV verðum við að fara ákveðið
fram a það við ykkur að panta og ski/a tii okkar auglýsingum fyrr en nú er.
LOKASKIL
FYR/R
STÆRRIAUGL ÝSINGAR:
Vegna mánudaga:
Vegna þriðjudaga:
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA
\Vegna miðvikudaga:
Vegna fimmtudaga:
Vegna föstudaga:
jVegna Helgarblaðs /71
FYRIR KL. 17 MIÐVIKUDAGA
FYRIR KL. 17 FIMIVITUDAGA
Vegna Helgarblaðs II:
(SEM ER EINA FJORLITABLAÐIÐ)
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA NÆSTU VIKU A UNDAN
AUKALITIR ERU DAGBUNDIMIR
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.30.
A uglýsingadeild
Siðumúla 33 sími27022.
DANSRAS 2:
Skammsýni
ræður kaupum
Nú sem oftast stendur útgáfa á
safnplötum í miklum blóma og sú sem
hér um ræðir, Dansrás 2, hefur notið
talsverðra vinsælda þótt hún sé á
niðurleið. Megi hún ávallt vera á niður-
leið.
Ástæðan fyrir útgáfu á safnplötum
með vinsælum lögum er auövitaö aug-
ljós, skjótfenginn gróöi. En hvers
vegna fæst þessi skjótfengni gróði?
Það er einnig augljóst. Það er ótrúleg
skammsýni sem ræður kaupum á
svona plötum, einhvers konar tíma-
bundið æði. Svo þegar allir eru búnir
að fá leið á lögum safnplötunnar
(meðaltími ca mánuður) er henni hent
inn í skáp og eigandanum dettur ekki
svo mikið sem einu sinni í hug að spila
hana. Sumir spyrja sig kannski
þeirrar spurningar hvers vegna þeir
hafi keypt hana og örfáir velta því
fyrir sér hvort ekki hefði veriö betra að
kaupa einhverja plötu sem iifði. En
flestir eru búnir að gleyma þeim og
gleymdar verða þær og eina ástæðan
fyrir því að þeim er ekki hent er sú að
plötur hafa ávallt þótt merkilegur
varningur. Svo er líka gaman að eiga
sem flestar plötur.
A Dansrás tvö eru sex lög, fimm
leiðinleg, eítt slarkandi sæmilegt. Það
er Cindy Lauper sem á það, hið eitil-
hressa ’Girls just wanna have f un’.
Toni Basil á þama eitt lag og
Mainline (Rockwell) eru líka í hópi
flytjenda. Að öðru leyti er lítið annaö
að segja en það að þó flest lögin hafi
ágæta laglínu þá er teygt úr þeim í
restina með einhverri break vitleysu
þannig aö þau verða álíka leiðinleg og
ameríska diskóið var um tíma (Funky
Towno.fl.).
Það græðir enginn á þessum kaup-
um. Þetta er helber vitleysa. SigA.
Sdnu'. Nokkur fréttakora
úr rokkheiminum svo allir
séu vel með á nótunum. ..
Hin dæmalaust föngulega
söngkona Culture Club,
Helen Terry, sópaöi til sín
aðdáendum í henni Ameríku
þegar hún var í hljómleika-
ferö með strákunum þar
vestra á dögunum. Hún
hefur af augljósum ástæöum
sett stefnuna í bakvarðar-
stöðu hjá Gogga og félögum.
Helen er nú að leggja
síðustu hönd á sólóplötu og
þar hafa þeir verið liölétt-
ingar hjá henni Boy George
og Roy Hay. .. Maður
kemur í manns stað og
peningur í stað penings segir
einhvers staðar og John
Carruthers úr Cloek DVA
hefur tekið við gítarnum hjá
Siouxie og Banshees eftir
brotthvarf Robert Smiths.. .
j
J
Enn hyggur Lionel Richie á
hjartabræðslu: Hello ekki
fyrr dottið upp úr heila-
hvolfunum báðum en önnur
\ ljúflingsballaða svífur um
loftin blá og gegnir nafninu
Stuck On You. .. Hlustendur
rásarinnar vita að út er
komin ný hljómplata frá
Mike Oldfield, Discovery. og
á nýju smáskífunni þenur
Maggie Reilly raddböndin á
nýjan leik fyrir Gamla-Akur
en lagið heitir To France og
segir sögu af hinni gömlu
drottningu Skota, Blóð-
Maríu sem kölluð var. ..
Nafn er komið á plötu
söngyara Queen, F’reddie
Mercury, sem hann hefur
verið að hljóðrita í Múnch-
en. Hún heitir einfaldlega
Solo... Eddy Grant hefur
bara lifað á forari frægð
síðustu mánuðina (og
auðvitað seðlabúntunum) en
nú kveður hann sér hljóðs
með 7ndu breiðskífunni,
Going For Broke og lagið
’Til I Can’t Love No More
æfti að heyrast brátt. ., Ein
skrmgilegasta hljómsveit
Breta er Indians in Moscow.
Nýtt lag þeirrar sveitar
segir frá furðulegu en sönnu
fyrirbæri: sumsé kynskipt-
ingu hænsnfugla(!) þar sem
haniun er látínn verpa
eggjum. Lagið heitir Jack
Peter And His Sex-Change
Chicken... Fyrsti vínsælda-
listinn yfir söluhæstu leiser-
plöturnar var birtur um dag-
inn; þar var fágæt skífa á
toppnum sem fáir hafa heyrt
nefnda, eitthvað sem heitír
Thriller með Michael Jack-
son. Ekki spyrja mig. ..