Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Qupperneq 3
DvMfe\fetóÁG,írk IV.'jÖiÍÍÍm'. c
Hjörtur Eiríksson hjá Sambandsverksmið junum
á Akureyri:
Vill álver þó það
eyðileggi
sumarbústaðinn
Bakkagerði heitir lítil jörð sem fyrst
hyrfi undir álverið fræga við Eyjafjörð
ef þaö risi eins og til stendur á Dysnesi
i Amarneshreppi. Þar er nú sumar-
bústaður í eigu Hjartar Eiríkssonar,
verksmiðjustjóra hjá Iðnaðardeild
Sambandsins á Akureyri. Hjörtur er
einn kunnra norðanmanna sem á
dögunum skrifaði undir áskorun til
fólks um að rita á stuðningslista við ál-
ver. Þar með má segja að Hjörtur sé
aö dæma eigin sumarbústað til niöur-
rifs. Hann þyrfti óhjákvæmilega að
víkja fyrir álverinu þar sem Dysnes er
rétt fyrir neðan.
„Að sjálfsögðu yrði það geysilega
erfitt,” svaraði Hjörtur þegar hann
var spuröur hvernig yrði að sjá á eftir
sumarbústaðnum. Hann sagði að
landið heföu þau hjón fengiö leigt 1967.
Þau hefðu eitt sinn verið að aka þama
um og séð gamalt torfhús sem þeim
þótti fallegt. Komið hefði í ljós að
landið var til sölu og hefði hann fengið
6 hektara en meginhlutinn farið undir
jörðina Syðri-Haga sem er ríkisjörð og
Bakkagerði var hjálega úr. Húsið hefði
hann keypti af fyrri eiganda og verið
innrétta sem sumarhús, þegar það
brann 1970. Sumarbústaðurinn sem nú
standi sé 3ja ára gamall.
Ekki vildi Hjörtur gera mikiö úr
skógræktinni kringum sumarbústað-
inn en sagði þó að þar hefði verið plant-
að milli 12 og 13 þúsund trjám. Þau tré
munu líklega eiga erfitt uppdráttar á
athafnasvæðinu kringum álverið, ef til
þess kemur. Stórvirkar vinnuvélar
legðu Bakkageröi undir sig.
„Það bara þýðir ekkert annaö en
taka því,” sagði Hjörtur. „Það verður
aö ske hvort sem menn vilja eða vilja
ekki. Við erum að vísu á sitthvorri
skoöuninni hjónin.”
Er hún á móti álverinu?
„Já,” sagði Hjörtur en ekki vildi frú-
in blanda sér í umræöuna.
JBH/Akureyri.
Sumarbústaður Hjartar Eirikssonar sem verður að víkja ef álver verður byggt á Dysnesi í Amarneshreppi.
Kringum bústaðinn hefur verið plantað 12—13 þúsund trjám. DV-mynd JBH
AFMÆUSTILHOD
Nú er ár liöiö frá því aö FIAT Unol var kynntur hér á landi.
Á þessum tíma hefur Unol selst meira
en nokkur annar einstakur bíll á markaönum.
í tilefni þessa hefur veriö ákveðiö
aö bjóöa Uno! á sérstöku afmælisverði:
Uno! BASIC kr. 218.000,- á götuna!
Búsældarlegt í
Árneshreppi
Strandasýslu
Veðráttan hér leikur við fólkið og
grasspretta hefur verið sæmileg í ár á
móti undanförnum árum er bændur
hafa þurft að kaupa hey vegna lítillar
grassprettu. Fiskurinn er í fyrra lagi á
ferðinni, er nú kominn inn í Reykja-
f jörðinn og er þorskurinn spikfeitur og
fullur af átu. Grásleppuveiði hefur
verið fremur lítil í ár, eitthvað um 100
tunnur af hrognum fengust, en í fyrra
var engin grásleppuveiði að heitið
gæti.
Hér i Arneshreppi var mikill tekju-
missir af því er grásleppuveiðin brást
því mörg heimili gerðu út á grásleppu
ogfannsthúngóðbúbót. Regína.
Hafrannsókn:
JakobJakobs-
son skipaður
forstjóri
Sjávarútvegsráðherra hefur skipað
Jakob Jakobsson fiskifræðing for-
stjóra Hafrannsóknastofnunar til
næstu fimm ára.
Þrir sóttu um stöðuna.þeir Jakob
Jakobsson, dr. Jakob Magnússon fiski-
fræðingur og dr. Svend-Aage Malm-
berg haffræðingur. Stjóm Hafrann-
sóknastofnunar kom saman til fundar
á þriöjudagsmorgun og samþykkti að
mæla með Jakobi Jakobssyni.
Nýskipaður forstjóri og stjóm Haf-
rannsóknastofnunar munu á næstunni
fjalla um þær umsóknir sem borist
hafa um tvær stöður aðstoðarforstjóra.
Um stöðu aðstoöarforstjóra á sviði haf-
rannsókna sóttu: dr. Jakob Magnús-
son, Guðni Þorsteinsson, Hjálmar Vil-
hjálmsson, Olafur Karvel Pálsson, Sig-
fús A. Schopkaa og dr. Svend-Aage
Malmberg, allir starfsmenn stofnunar-
innar. Um stöðu aöstoöarforstjóra á
sviði rekstrar sóttu, Haraldur Jó-
hannsson, Sigurður Lýðsson og Vignir
Thoroddsen. ás.