Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Side 34
HEIMUR
NEÐAN-
SJÁVAR”
—segja Einar Magnússon og
Þórunn Jónsdóttir,
sportkafarar
,,I undirdjúpunum kynnist maður
alveg nýjum heimi sem ég held að fólk
sem aldrei hefur kafað eigi erfitt með
að ímynda sér.” Það er Einar Magnús-
son, 17 ára gamali verslunarskóla-
nemi og sportkafari, sem mælir þessi
orð um áhugamál sitt, köfun, í spjalli
viðDV.
Köfun er aö þessu sinni á efnisskrá
Dægradvalar og fékk dægradvali þau
Einar og Þórunni Jónsdóttur, 18 vetra
gamla fjölbrautaskólamey, til spjalls.
— Hvernig fenguð þið delluna,
krakkar?
„Eg var níu ára gamall þegar ég
fékkþessa bakteríu,”segirEinar. ,,Ég
var á Ibiza með pabba og mömmu'og
sá krakka sem voru að kafa þar með
snorker (þ.e.a.s. bara grímu og loft-
pípu) og varð ofsalega hrifinn. For-
eldrarnir vildu nú fyrst ekki leyfa mér
að prófa en ég fékk það í gegn og hef
síðan verið með dellu. Eg byrjaði þó
ekki að kafa á Islandi fyrr en ég var
orðinn 14ára.”
„Það er styttra síðan ég byrjaði á
þessu,” segir Þórunn. „Eg fór á nám-
skeið hjá Sportkafarafélaginu eftir ára-
mót í fyrra og komst þar íyrst i
snertingu viö þetta. Fyrst kafaöi ég í
sundlaug en svo kom að þvi að maður
reyndi sig í sjó í skítugri Nauthóls-
víkinni. Eg kafaði fyrst í „alvöru” í
Nauthólsvíkinni og ég verð að segja að
það voru töluverð viöbrigði. Mér
f annst þaö hreinlega ógeöslegt. Sjórinn
þama er skítugur, allt fuilt af drullu og
viðbjóði. Búningurinn var of stór á mig
og mér varð ofsalega kalt. En ég lét
þetta ekki á mig fá og hef haldið áfram
og haft mjög gaman af. Enda er ólíkt
meira spennandi aö kafa í t.d Peninga:
gjánni heldur en í Nauthólsvík.”
— En hvaö fáiði út úr því að kafa?
Hversvegna?
„Eins og ég sagði áðan er þetta
alveg nýr heimur sem maður heim-
sækir. Maður hefur á tilfinningunni aö
maöur sé landkönnuöur að kanna
nýjan heim. Heimsækir staöi sem
kannski enginn lifandi maður hefur
séð... Lífiö þarna niðri er alveg sér-
SPORTKAFARAR
VEITA LEIDSÖGN
Köfunaríþróttin er þessleg að eng- inni.
inn ætti að skunda út í verslun, festa Sportkafarafélagið tekur með
kaup á búningi og kafa svo án nokk- ánægju á móti áhugafólki um köfun.
urrarleiðsagnar. Engin nauösyn er á Stjórnarmeðlimir félagsins eru til-
því, endaerstarfandiSportkafarafé- , búnir aö gefa því upplýsingar og
lag Islands. Félagið heldur annað fylgja nö&i þeirra og simanúmer hér
slagið námskeið fyrir byrjendur í á eftir. Formaður er Georg Birgisson
köfun. Einatt er byrjað rólega, (s. 42323) en aðrir eru Vilhjálmur
kennd undirstööuatriöi og verðandi Hallgrimsson (30657), Páll Guð-
sportkafarar busla í sundlaugum bergsson (25213), Þórunn Jónsdóttir
borgarinnar. Síðanerfariðnánarútí (42901) og Eyjólfur Eyjólfsson
smáatriöin og oft fá byrjendur „eld- (79918).
skírn” sína í sjóköfun í Nauthólsvík- ás
Sigiö i undirdjúpin
DV-myndir: Einar Magnússon og félagar.
stakt. Fiskar synda alveg upp að
manni til dæmis. Þetta er mjög sérstök
tilfinning,” segir Einar.
— Hvað dundið þið ykkur við þama
niðri?
„Það fer nú allt eftir tilgangi ferðar-
innar. Stundum er synt til fiskjar og
kokkaö á eftir. Höfum við þá með
okkur upp rauðmaga, krabba, snigla,
öðuskeljar, hörpudisk og fleira sem viö
rekumst á. Þegar maður er að veiða
fer mikill tími í að synda um og leita aö
góðum miðum. Stundum fer maður
gagngert til að taka myndir enda nóg
af mótívum þarna niðri. Verst að ekki
er hægt að skipta um filmu þarna
niðri! Annars eru neðansjávarmynda-
vélar býsna dýrar. Nú, en kannski er
skemmtilegast að skoða bara neöan-
sjávarlandslagið og hið fjölbreytta og
framandi líf sem þama þrífst. Maður
getur legið í vatninu, kannski ekki
timunum saman en mjög lengi í það
minnsta, og virt fyrir sér það sem fyrir
ber,” segja þau Einar og Þórunn.
— Hverjir em uppáhaldsköfunar-
staðirykkar?
„Það er mikið af skemmtilegum