Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Qupperneq 7
Neytendur
DV. MIÐVIKUDAGUK18. JULI1984.
Neytendur Neytendur Neytendur
7
NAUTATUNGA M/SPERGLUM
Nautatunga
Léttsöltuö nautatunga
sperglar (aspargus)
Sósa
1 dós sýrður rjómi
3— 4 tesk. sinnep
4— 5 sperglar (stönglar)
agúrkubiti
Verklýsing
1. Sjóðiö tunguna (1—1,5 kg í 2 1/2—
3 klst). Flettið utan af tungunni
meðan hún er heit. Kælið hana.
2. Hrærið saman sýrða rjómanum,
sinnepinu, mörðum spergli og
saxaðri agúrku.
3. Skerið nautatunguna niður í
þunnar sneiðar.
Leggið spergilstöngul á hverja
sneið og rúllið sneiðunum upp.
Leggið einnig nokkra spergil-
stöngla á fat ásamt nautatungu-
rúllunum.
Skreytið fatið auk þess með salat-
blöðum, tómötum og agúrku-
sneiöum.
Með léttsaltaðri nautatungu er
einnig gott að bera fram pipar-
rótarrjóma.
Piparrótarrjómi
1/41 rjómi, þeyttur
1 pk. piparrót (rifin)
og e.t.v. 2 rifin epli
Vinnutími: Suðutími fer eftir þyngd.
Þar fyrir utan er tíminn sem tekur
að skera tunguna, laga sósu og
skreyta fat ca 20 mínútur.
Hráefniskostnaður 410 krónur.
-ÞG
Tungan skorin í þunnar sneiðar, spergilstöngull látinn á hverja sneið og rúUað upp. Fatið skreytt með spergU og öðru
grænmeti, borið fram með spergilsósu. DV-myndir: EÓ.
Tungan soðin og á meðan hún er heit er flett utan af henni.
NISSAN SUNNY
ÓTRÚLEGA SPARNEYTINN OG FRÁBÆRLEGA SKEMMTILEGUR í AKSTRI
AUK ÞESS MEÐ ÖRYGGIFYRIR ÞIG
SEM HNITMIÐUÐ OG HÁÞRÓUÐ TÆKNIEIN GETUR TRYGGT
FRÁ NISSAN - AD SJÁLFSÖGÐU
pað er ekki fyrir tilviljun að á fimtíu árum hafa
Nissan verksmiðjumar orðið þriðji stærsti bi-
freiðaframleiðandi í heimi.
Árangur þennan er að þakka einbeitni Nissan
í að ná fram bestu hugsanlegu hönnun í fram-
leiðslu á bílum. Til þess notuðu þeir nýjustu
aðferðir og háþróaða tækni sem hefur orðið
öðrum til fyrirmyndar um allan heim og eftir-
breytni í útliti, spameytni og endingu.
Nissan hefur ætíð hannað bifreiðar sínar á
þessum háleitu forsendum enda hafa bifreiðar
þeirra getið sér frábæran orðstír.
Sunny, sem er einn af nýrri kynslóð framhjó-
ladrifinna fjölskyldubíla frá Nissan, gefur hug-
takinu “fjölskyldubíll” nýja og víðari merkingu.
Hanner ekki bara rúmgóður eins og hinn hefð-
bundni fjölskyldubíll, heldur er hann einnig
ótrúlega spameytinn, ódýr og sérstaklega en-
dingagóður.
Fyrirmynd fjölskyldubílsins er bíll með sport-
legu útliti sem gaman er að aka. Sunny passar
ekki aðeins inn í þann ramma heldur bjó hann
til enda ósvikin Nissan.
Fullkomnun náö meó NISSAN-tækni.
riNIS5AN
INGVAR HELGASON HE Sýnlngarsalorinn V/Rao&agerði - Reykjavik, Simi 91 -33S60.