Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Blaðsíða 37
DV. MIÐVIKUD'AG'URÍS.'JOLl 1984.
Sviðsljósið
37
Sviðsljósið
Tomas lúgumaður
hjá Hafskip
fylgist með
Kú gengin út
Málsháttur dagsins
Kú eins og eiginmaðurinn tilvonandi og
milljónir annarra sjá hana.
Létt verk og
löðurmannlegt
Þó að þetta líti ógurlega hættulega út
þá er þetta í raun hið ómerkilegasta
sprfld. Gaukurinn, sem þama glennir
upp ginið eins og hann eigi lífiö að
leysa, er franskur fjallgöngugarpur
sem átti leið fram hjá í bátnum sem
sjá má þama fyrir neðan. Fannst hon-
um þaö kjörið að príla smávegis og tók
klifurtúrinn hann nokkra klukkutíma.
Frakkinn heitir Denis Bagnere og er 22 ■
ára hjúkrunarfræðinemi. Eins og áður
sagði er þetta mál allt hið ómerkileg-
asta þvi ef Denis hefði misst takið þá
hefði volgt og mjúkt Miðjarðarhafið
beðið hans fyrir neðan.
Þetta hefði verið allt annaö mál og
betra ef hans hefði beðið ólgandi brim
og oddhvassir klettar sem hefðu getað
brotið öll hans bein og dregið skrokk-
inn niður á sextugt dýpi.
Svoleiðis viðbjóður hefði hins vegar
átt lítið erindi í víðlesið fjölskyldublað
endaer Sviðsljósið vant að virðingu
sinni.
Komi tíl með mér mildur, meðan ég fastna þig,
Hildur.
Þau stórmerku tíðindi voru rétt í þessu að gubbast úr telexvélinni,
og frá ekki ómerkari heimildarbrunnum en AP og NPS, að hin
rómaða nektarleikkona Koo Stark væri í þann mund að ganga í
hnapphelduna. Hún Kú hefur getið sér gott orð fyrir vandaða túlkun í
þeim fjölmörgu klámmyndum sem hún hefur leikið í undanfarin ár.
Stúlkan er orðin 28 ára gömul og hefur undanfarin ár verið að leita
sér að maka eftir að Andrés Bretaprins gaf henni sparkið með þökk
fyrirallt.
Sá sem kemur til með að njóta hæfileika hennar um ókomna tíð
heitir Timothy Jeffries og er hann sex árum yngri en hún og frí-
merkjahöndlari að atvinnu. Heimildir herma aö hann sé vellauðugur
svo ljóst er að það er aðeins meira en sameiginlegur frímerkjaáhugi
sem laðar þau hvort að öðru. Giftingin er fyrirhuguð í næsta mánuði.
Þegar þessi tíðindi voru kunngerð bresku þjóðinni flutti BBC
örstutta tölu um líf hennar og störf. Við það tækifæri var sýndur
örstuttur kafli úr klámmynd sem Kú lék í og urðu sjónvarpsgláparar
þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá stúlkuna fremja þá list sem hún
kann best, en það er að klæða sig úr hverri spjör.
DV-mynd EÓ.
„Hafiði hendur á þessu, "er öskrað rámri röddu onilestína og sumarmenn sprikla.