Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Qupperneq 3
3
DV. FIMMTUDAGUR19. JULI1984.
DV birti í fyrradag
athyglisverðar tii-
lögur stjórnskipaðrar
nefndar í eiiefu iið-
um um mörkun
opinberrar stefnu í
áfengismáium. Leit-
að hefur verið álits
nokkurra manna á
efni þeirra, bæði al-
mennt og á einstök-
um atriðum.
Guttormur Einarsson.
Guttormur Einarsson
íÁmunni:
Rödd aftan
úr
forneskju
„Þetta hljómar eins og rödd aftan úr
grárri forneskju, í það minnsta margt
af því sem kemur þama fram,” sagði
Guttormur Einarsson, forstjóri
Ámunnar, í samtali við DV. I tillögum
nefndarinnar um opinbera stefnu í
áfengismálum er lagt til að inn-
flutningur á efnum og tækjum til öl- og
víngerðar verði bannaður.
,,Eg efast ekki um að tilgangur
nef ndarmanna og vilj i þeirra sé, að því
er þeir telja sjálfir, í þjóðarþágu en
mikill hluti af þessum tillögum er alger
tímaskekkja og höfundar þeirra því
líklega uppi á rangrí öld. Islendingar
eru nú sem óðast að tileinka sér alþjóð-
lega vín- og ölmenningu og þegar
opnaðir hafa verið veitingastaðir um
land allt, sem bjóða upp á áfengt öl,
ásamt hefðbundnum vínföngum, mun
slakna á þeirri spennu sem hinn for-
boðni ávöxtur, ölið, hefur skapað hér.
Hugmyndir um bann við innflutningi á
efnum og áhöldum fyrir öl- og víngerð
eru gamall brandari.
Guttormur agði að enn væri í fersku
minni tilraun nokkurra ofstækismanna
til þess að koma bannlögum í gegnum
Alþingi á síðustu starfsdögum þess
1979. „I því dæmalausa lagafrumvarpi
voru ákvæði sem m.a. seldu toll-
þjónustunni í hendur sjálfdæmi að
ákvarða hvað teljast skyldi bruggefni,
þar með talinn hvers konar ávaxtasafi
til drykkjarvöruframleiðslu. Fyrirtæk-
ið Hafplast hefur beitt sér fyrir því
með hartnær tveggja ára rannsókna-
starfi að finna gott bjórblendi fyrir
veitingastaði sem bjóða styrktan bjór
svo að hann bragöist sem líkast full-
brugguðum erlendum bjór. Árangur-
inn er framar öllum vonum og sá
veitingastaður sem notað hefur okkar
uppskrift er Pöbbinn. I dag eru f jórir
aörir veitingastaöir einnig famir aö
nota okkar uppskrift og margir á bið-
lista.
Nú hefur einnig verið dreift á aÞ
mennan markað bjórblendi til nota i
heimahúsum og það er því augljóst að
héðan af veröur ekki aftur snúiö.
Alþingi ber að taka tillit til þessa og
leyfa hér áfengan bjór. Eg get þess til
gamans að Áman eða Hafplast hafa
engin umboö fyrir bjór, enda lit ég svo á
að þegar bjórinn hefur verið leyfður sé
starfi mínu á þessum vettvangi lokið,”
sagðiGuttormurEinarsson. -pá
Guðsteinn Þengilsson læknir:
Aðflutningsbann ekki heppilegasta leiðin
,í:g tel rétt, í sambandi við bjórsöl-
una á KeQavíkurflugvelli að þar verði
fariö aö lögum. Þaö hefur komið fram
álit um þetta og samkvæmt því er
þessi sala ekki lögleg,” sagði Guð-
steinn Þengilsson læknir í samtali við
DV í gær. Lagt er til í tillögum nefndar-
innar um opinbera stefnu í áfengis-
málum að innflutningur á bjór verði
stöðvaður og sölunni á KeQavíkurQug-
velli hætt.
„Hins vegar er ég alfarið á móti því
að seldur verði hér sterkari bjór en nú
er til sölu í hverri búð. Ég hef einhvem
tíma hreyft því að það væm litlar líkur
á að menn fengju þá bragðbetri bjór
heldur er það víman sem sóst er eftir.
Það má því segja að það séu vímuvinir
sem em fylgjandi hinu.
Eg tel að þetta yrði hættulegt því nú
þegar hefur skapast neyðarástand
vegna ásóknar fólks í sterkari vímu-
efni. Það þarf að athuga hvaða úrræði
eru til gegn neyslu á hassi og jafnvel
heróíni, því þetta er barátta upp á líf
og dauða. Eg h't svo á að ekki sé hægt
að taka þessi mál úr samhengi, áfengis-
og fíkniefnaneyslu, þau em í sambandi
hvortviðannað.”
— En nú er títtnefnt í tillögunum að
banna og hefta. Em aukin bönn til
annars en iUs?
„Eg er ekkert andsnúinn frelsi, að
svo miklu leyti að það leiði ekki til frek-
ara ófrelsis. Bann við einhverju getur
leitt til frelsis í æðri skilningi og ótak-
markað frelsi getur leitt tU ófrelsis eða
fjötra en þeir eru andstæða frelsis.”
Guðsteinn kvaðst ekki hlynntur að-
flutningsbanni á áfengi að svo stöddu.
„Mér fyndist að láta ætti reyna á það
að takmarka neysluna með öðru móti.
Það mætti t.d. auka skatta á vínsölu-
hús, en þau borga hlæghega lítið af
þeim. Það virðist vera ein helsta
gróðaUndin í dag að reka vínsöluhús.
Þaö mætti sem sagt grípa tU óbeinna
aðgerða og aöflutningsbann er ekki
heppilegasta leiðin eins og er. En þaö
mætti kannski gripa til þess ef aðrar
takmarkandi aðgerðir, svo sem auknir
skattar á vínverð og veitingahús, duga
ekki. Þá legg ég tU að gerð verði fimm
ára áætlun og eftir þaö efnt til þjóöar-
atkvæðis,” sagöi Guðsteinn ÞengUs-
son.
-pá
Guðsteinn Þengiísson.
NiSSANPATR0l.
í ALVÖRUFERÐALÖG
m
W NISSAN
PATROL
DIESEL
VERÐI
• MEÐ ÖFLUGRI 6 STROKKA DÍSILVEL.
• MEÐ AFLSTÝRI, LÉTTU OG ÖRUGGU.
• 5GÍRA.
• MEÐ 24RA VOLTA RAFKERFI í STARTI.
• MEÐ HÆKKUÐU ÞAKI.
• 7MANNA.
KR
760
000
TÖKUM FLESTA GAMLA BILA UPPI NYJA.
HJA
OKKUR ER:
FJÖLBREYTNIN MEST OG KJÖRIN BEST.
TT
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.