Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Blaðsíða 5
fiRorí.nV or smrunrrrMwn'a' \m DV. FIMMTUDAGUR19. JULl 1984. Stefnumarkandi dómur kveðinn upp í Hæstarétti Hæstiréttur kvaö í síöustu viku upp dóm þar sem mörkuö er stefna i þvi hvaöa vaxtafót beri að leggja til grund- vallar við útreikning á bótum vegna slysa. Um er aö ræöa tímamótadóm; allir sjö dómarar Hæstaréttar dæmdu en slíkt hefur ekki gerst áöur. Dómur- inn mótar lagareglur um það aö reikna eigi með 6% ársávöxtun slysabóta í framtiöinni. Lengst af hafa slikir vextir verið látnir fylgja þeim vöxtiun sem gilt hafa almennt á hverjum tima, en 13% var til skamms tima algengt i málum sem þessu. Þetta er mikil bót fyrir tjónþola frá því sem verið hefur, því að hann fær þeim mun hærri bætur sem prósentan er lægrí. Forsaga máls þessa er sú að kona varö fyrir bíl í Vestmannaeyjum árið 1978 og hlaut af því varanlega örorku. Konunni voru dæmdar skaöabætur í héraðsdómi en Hagtrygging hf. áfrýj- aöi til Hæstaréttar 1981 og fór fram á aö skaðabætumar yröu lækkaöar á þeim forsendum aö konan ætti sjálf nokkra sök á slysinu með vangá sinnL Samkvæmt mati tryggingayfirlæknis er konan 25% öryrki til frambúöar. Hún vinnur nú hálfs dags starf í lægri launaflokki en hún var í fyrir slysið. En þaö nægir þó til þess að tekjutrygg- ing á að falla niður og samkvæmt 2. málsgrein 12. greinar laga um al- mennar tryggingar og reglum Tryggingastofnunar er einungis heimild til aö greiöa henni hálfan örorkulífeyri. I dómi Hæstaréttar segir aö aöila málsins greini ekki á um að höfuðstóls- fjárhæö örorkutjóns konunnar skuli miðuð viö slysadag, en dráttarvextir eigi að greiðast af tjónbótum frá sama degi. Hins vegar var ágreiningur milli þeirra um meö hvaöa vaxtafæti eigi að reikna og hvernig eigi að ööru leyti aö fara með vaxtaþátt þegar fundin er höfuðstólsfjárhæð hins áætlaöa tekju- taps konunnar. Hagtrygging hf. áleit aö reikna bæri meö 13% ársvöxtum og vaxtavöxtum, byggt á f orsendum þeim er tryggingastærðfræðingur gerði um dánarlíkur og líkur á missi starfsorku. Gagnáfrýjandi miðaði hins vegar við að reikna bæri með 5% ársvöxtum. I dómnum segir að mjög mikilli óvissu sé bundið við hvaða vaxtafót sé rétt að miða að þvi er varöi ókominn tíma, enda þyki hvorki unnt að leggja alfarið til grundvallar nafnvexti né raunvexti, eins og ætla megi að þeir séu nú. Þegar litiö sé til allra atvika sem hér skipta máli þyki eðlilegt að miöa við 6% vaxtafót. En því er bætt við að ákvörðun tjóns vegna varan- legrar örorku sé háð svo mörgum vafa- atriðum að nákvæmum útreikningum verði þar ekki við komið heldur verði tjónsfjárhæð að verulegu leyti háð mati sem á margan hátt sé óvisst. Tjón konunnar vegna fyrrnefnds slyss telst samkvæmt dómnum nema 233.698,54 krónum og af þvi ber aðal- áfrýjendum að bæta henni 2/3 hluta eða 155.799,02 krónur að frádegnum 2.000 krónum sem Hagtrygging hf. greiddi henni árið 1979. Aðaláfrýj- endur dæmast því til að greiða konunni 153.799,02 krónur með dómvöxtum svo og máiskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, samtals 60.000 krónur. -pá. 5 Viö höfum selt meira en 500 notaða Örugg viöskipti viö traust og bíla þaö sem af er árinu. Þaö sýnir áreiðanlegt fyrirtæki. best hversu vinsæl þjónusta okkar er. Hjá ACU eru eingöngu til sölu bílar sem fyrirtækið á sjálft. Þú kemur og semur um kjör og færö bílinn afhentan strax, engin tilboö fram og til baka, bara samningar á staönum beint viö eiganda bílsins. Leiöandi fyrirtæki í verslun meö notaöa bíla. MIKIÐ ÚRVAL BÍLA í ÖLLUM VERÐFLOKKUM. EGILL VILHJÁLMSSON HF. Smidjuvegi 4, Kópavogi. FljlAlT Símar 77200 - 77202.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.