Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 6
6 DV. FIMMTUDAGUR19. JULl 1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur AGÚRKUR OG TÓMATAR Nokkuö óvenjuleg búð, Kjötbær við Laugaveg, sem nýlega var opnuð. Fyrir- mynd verslunarinnar var sótt til Þýskalands og minna margar kjötvörurn- ar á þær þýsku. DV-mynd: Arinbjörn. Kjötbær: Nýjar tegundir af pylsum og áleggi Það er svo gáman að fara til Þýskalands og fá sér stórar og bragðmikiar grillaðar pylsur sem heita brotwiirst-, frankfurther-, sossiser- eða berlínarpylsur. Það er þó enn skemmtilegra að nú þarf ekki eins langt að sækja þessar elskur. Þýsku pylsumar eru nú framleiddar hér á landi í nýju versluninni Kjötbæ við Laugaveg 34 a. Þarna hefur verið opnuð sælkera- verslun sem á uppruna sinn að rekja til Þýskalands en þangað voru sóttar ýmsar fyrirmyndir. Þar ber að nefna 15 gerðir af pyls- um og yfir 25 tegundir áleggs. Þeirra á meðal er kjúklingaskinka og kostar um 80 gramma bréf með þessu nýja áleggi um 50 krónur, kílóverð er 633 krónur. Kílóverð af brotwiirstpylsum er 224 krónur og er verðið nokkuð nálægt þessu á öðrum pylsutegundum. Rjúkandi rétti er hægt að fá í há- deginu, einkum er það útivinnandi fólk sem notfærir sér það. Alla virka daga er hægt að fá 3 kjötrétti og 2 fiskrétti, þeir eru á verðbilinu frá kr. 70—190, dýrasti rétturinn er hamborgarhryggur. Kjúkiinga er hægt að fá heita allan daginn og kostar hálfur fugl 100 krónur. Það er áberandi mikið úrval af salöt- um, ódýrast er kartöflusalat á 112 krónur kílóiö en þau dýrustu, laxa- og kjúklingasalöt kosta 316 krónur. Hægt er aö neyta matarins á staön- um ef menn vilja. Eigendur Kjöt- bæjar eru hjónin Hákon Sigurðsson og Katrín Guðjónsdóttir. Gísli Hall- dórssonerverslunarstjóri. -KR agúrkum og tómötum er á bilinu 5—10° C. Fullþroskaðir tómatar geymast í um það bil viku við þetta hitastig. Grænir tómatar hafa 15—16° C kjör- hitastig og geymast í ca 2—3 vikur. Agúrkur geymast við 5—10°C í 1—2 vikur. Geymsluþol í frystihólfi í ísskáp er mislangt eftir því hvort um er að ræða gúrkur eöa tómata. Gúrkur geymast skemur eða í um það bil 1 mánuð, en tómatar geta geymst í 4—6 mánuði. 1 frysti með —18°C er geymsluþolið tölu- vert meira, eða um 3 mánuðir fyrir gúrkur og 1 ár fyrir tómata. Almennt er betra að þíða flest græn- meti hratt meö því að setja það í sjóö- andi vatn. Frystir tómatar eru t.d. .góðir í pottrétti eða sósur og best er að setja þá beint út í. Tómata er best að frysta í frystipoka og kreista loftið úr pokanum eins og hægt er. Einnig má sjóða þá hýöislausa í örfáar mínútur í eigin vökva og frysta þá síðan. Agúrkur er best að sneiöa niður fyrir frystingu og þíöa síðan í edikslegi. Gott er að dagsetja hverja pakkn- ingu fyrir sig, því geymsluþolið er takmarkað og of langur geymslutími rýrir næringargildið. Nýr drykkur f rá Emmess-ísgerðinni Gunnar Kristinsson matvælafræðingur skrifar búðum árum saman. Hann er seldur í stórum glösum sem eru 14 únsur, og rúma tæplega hálfan lítra. Er sá skammtur á verðbilinu frá 50—60 krón- ur en kostar þó víðast hvar 53 krónur. Emmess íshopp hefur þriggja mánaða geymsluþol í frysti, en drykkurinn þol- ir 5 daga geymslu í kæli. Hann er bestur vel kældur eða nýþiðnaður. Blaðamenn voru skipaðir í „smakk- nefnd” og voru skiptar skoðanir manna á hinum nýja drykk. Sumum fannst hann of bragðmikill, öðrum of bragðlítill, enda neyttu ekki allir sömu bragðtegundar. Almennt fékk íshoppiö góða dóma nema hvaö menn voru einna helst óþolinmóðir að bíða eftir að drykkurinn þiðnaði. Á umbúðum stendur skrifaö að 20—30 mínútur taki að láta drykkinn þiöna og voru margir þeirrar skoðunar að það tæki lengri tíma. Hinir óþolinmóðu borðuðu hluta drykkjarins frosinn og þá með skeið eins og um ís væri að ræða. Þeir drukku síðan restina með sogröri og fannst þeim íshoppið betra þiönað. -RR Hollráð á þjóðveginum Innan skamms veröa flestar rút- ur landsins skreyttar límmerkjum frá Umferðarráði. Límmerkin eru fems konar: „Aögát fylgi framúr- akstri”, „Ferðumst í friði”, , Jíotum ljósin” og „Brosum — og allt gengur betur” aftan á rútun- um. Með þessu framtaki vilja eigend- ur vagnanna leggja fram dálítinn skerf til aukins umferðaröryggis á vegumlandsins. Til að koma í veg fyrir mörg slys á þjóðvegum landsins, þegar margir eru á ferð, væri ágætt að hafa þessi hollráð i huga. -ÞG. vítamíns. Eftir neyslu breytist karótin- efnið í líkamanum í A-vítamín. Tómat- ar innihalda meira af þessu efni en gúrkur. Jám finnst h'ka, en það nýtist hins vegar líkamanum miklu verr en járn úr dýraríkinu. Það sem gerir að það nýtist þó eitthvað er aö tómatar og gúrkur innihalda töluvert af C-víta- míni (um 11 mg/100 g), en það stuðiar að betri nýtingu jámsins í líkamanum. Þess má geta að þetta magn af C-víta- míni er taliö koma í veg f yrir skyrbjúg. Tómatar og gúrkur innihalda kalk, fosfór og magnesíum, að ógleymdum trefjaefnunum, sem stuðla að betri meltingu. Hitaeiningagildi þessa græn- metis er mjög lágt, því mjög lítið er af orkuefnum í þvi. Tómatar og gúrkur eru, eins og allt grænmeti yfirleitt, tilvalin fyrir fólk á öllum aldri. Þeir sem em veikir í maga, þjást t.d. af magasári, ættu að fara varlega í neysiu þessara græn- metistegunda vegna þess að það ertir magann og viðkomandi fær verki. Þetta er vegna þess að hýðið er trefja- efnaríkt. 1 staö þess þó að foröast þessar tegundir, ætti fólk að skera burt hýðið áður en þeirra er neytt. Geymsla Besta hitastig til geymslu á Á þessum árstíma er mikiö framboö á gúrkum og tómötum. Verðið er viðráðanlegt og full ástæða er til að hvetja fólk til að kaupa þetta græn- meti. Næringargildi Vitað er að bæði gúrkur og tómatar eru aö mestu leyti vatn, eða um 95%. Hins vegar er það mesti misskilningur aö vegna hins mikla vatnsmagns séu engin bætiefni til staðar. Bætiefnin eru svo sannarlega fyrir hendi. I gúrkum og tómötum er töluvert af B-vítamíni og þá sérstaklega fólasín, sem stuölar aö blóðmyndun. Það er aftur ekkert B vítamin, en það stuðlar einnig að blóðmyndun. Þeir sem borða eingöngu grænmetisfæði þurfa að gæta sín sérstaklega á þessu, þvískorturá B vítamíni leiðir til blóðleysis. I báðum þessum grænmetistegund- um er karótin-efni, sem er forveri A- „Tómatar og gúrkur innihalda kalk, fosfór og magnesíum, að ógleymdum tref jaefnunum, sem stuðia að betri melt- ingu.” Tómatarnir á myndinni kallast buf ftómatar og eru þessir ræktaðir að Sólbyrgi í Reykholtsdal. ás. Nýlega kom á markaðinn ísdrykkur (shake) frá Emmessísgerðinni. Mjólkurhristingurinn ber heitið ís- hopp, og er framleiddur úr 6% mjólkurís. Bragðtegundimar eru þrjár, vanillu, jarðarberja og súkku- laði. Isdrykkurinn er seldur í 290 ml glösum, hvert glas rúmar tæplega 1/3 úr htra og kostar hver drykkur um 23 krónur. (Heildsöluverð er krónur 16.20.) Mjólkurhristingur hefur fengist í ís- íshopp nefnist mjólkurhristingurinn sem Emmess-isgerðin hefur sett á markað. Glasið kostar um 23 krónur. DV-mynd Arinbjöm. Unglingar á dráttarvélum Nú er svo komið að bændur setja það undantekningarlítið sem skii- yrði fyrir sveitardvöl unghnga að þeir hafi sótt dráttarvélanámskeið. Shk námskeið eru jafnan haldin á vorin fyrir unghnga á höfuðborgar- svæðinu. Sl. vor voru þátttakendur á dráttarvéianámskeiöi í höfuð- borginni 91 og auk þeirra þreyttu 15 próf í dráttarvélaakstri. Frá Umferðarráði hafa þær fréttir borist að mikih áhugi sé á því meöal aðstandenda námskeiðs- ins að fræðsla af þessu tagi fari fram víöar á landinu. -ÞG -MATUROG HOLLUSTA-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.