Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Page 9
DV. FIMMTUDAGUR19. JULI1984. Útlönd Útlönd Útlönd 9 Utlönd Útlönd REAGAN BERST GEGN AFENGISBÖLINU — beitir þau fylki refsiaðgerðum sem ekki banna sölu áfengis til f ólks undir 21 árs aldri Ronald Reagan hefur nú hafið baráttu gegn áfengisbölinu. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefur undirritaö lög sem kveöa á um lækkun á framlögum stjómarinnar til vegamála til þeirra fylkja Banda- rikjanna sem ekki banna sölu áfengra drykkja til fólks undir 21 árs aldri. 22 af 50 fylkjum Bandarikjanna leggja nú bann viö sölu áfengis til fólks sem er yngra en 21 árs. Sam- kvæmt þessum nýju lögum munu framlög ríkisstjómarinnar til fram- kvæmda við hraðbrautir lækka um 15 prósent. Upphaflega var Reagan á móti slíkri lagasetningu. Hann sagöi þá aö slík lög brytu í bága við reglur um sjálfstæöi fylkjanna og alríkisstjóm- in væri meö þessu að blanda sér í málefni sem henni kæmu ekki við. Fyrir skömmu breytti forsetinn af- stööu sinni og segir nú aö tiö slys vegna ölvunaraksturs í Banda- ríkjunum hafi valdiö því að hann skipti um skoöun. Reagan sagöi þegar hann undirritaöi lögin aö hér væri um áhrifaríka og ódýra leiö að ræða til aö bjarga þúsundum mannslífa og því ættu lögin fyllilega rétt á sér. Spánn: Verkalýðsleið- togi rekinn úr starfi hjá ríkis- fyrirtæki Forráðamenn spánska flugfélagsins Iberia, sem er ríkisrekið, hafa sagt leiötoga verkfallsmanna upp störfum. Flugmenn hjá Ibería hafa veríö í skæmverkföllum frá því 19. júní síðastliðinn og hafa verkföllin leitt til þess aö rúmlega 60 flugferðum á vegum fýrirtækisins hefur veriö aflýst. Flugmaðurinn sem rekinn var heitir Martin Echeverria og er formaöur stéttarfélags spánskra flugmanna (SEPLA). Til athugunar er að reka 40 til 50 flugmenn til viöbótar. Hjá Iberia starfa 853 flugmenn og krefjast þeir styttri vinnutima og aö 34 nýir flugmenn veröi ráðnir til félagsins til að minnka vinnuálagiö. Þessum kröfum hafa forráðamenn flugfélags- ins hafnaö og benda á að fyrirtækið sé rekið meö gíf urlegum halla. Verkfallsmenn segja að kjaradeilan hafi breyst i pólitískt stríö við ríkis- stjóm Spánar. Kýpur: Ferða- frelsi takmarkað Stjórnin á Kýpur hefur skert mjög ferðafrelsi á eyjunni. Blaöamenn veröa aö fá sérstakt leyfi frá stjóm- völdum til aö heimsækja hinn tyrk- neska hluta eyjunnar en áður gátu þeir farið þangað óhindraöir. Talsmaður stjórnarinnar, Andreas Christofides, sagði viö blaðamenn aö einungis þeir sem heföu góðar og gild- ar ástæður til að heimsækja þennan hluta eyjarinnar fengju slíkt leyfi og að stjórn landsins mundi meta það hverju sinni hvort um frambærilegar ástæður væri aö ræða. Tveir blaöamenn voru stöðvaöir í gær og þeim meinaöur aðgangur að tyrkneska hlutanum þegar þeir ætiuöu að taka viðtal við leiðtoga Kýpur- Tyrkja, Rauf Denktash. Blaðamönnum hefur ekki verið bannaður aðgangur að norðurhluta Kýpur frá því nóvember á síðasta ári. Þá var lagt bann á ferðir blaðamanna í tilefni af yfirlýsingu Denktash um að norðurhlutinn væri sjálfstætt ríkL Mótmælagöngur hafa verið skipulagðar i tilefni af tiu ára afmæli innrásar Tyrkja á Kýpur siðar I þessum mánuði. Eins og áður segir er Kýpur nú skipt í tvennt og ráða Tyrkir í norðurhluta eyjarinnar um 37% af landinu. Höfuðborg eyjarinnar, Nicosia, er skipt í tvennt. íf. vets^'1 csonat. atSGuð^nSS W®*®'«"p” ***** ii

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.