Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Blaðsíða 10
10
DV. FIMMTUDAGUR19. JDLl 1984.
Útlönd Útlönd
Japan:
Heraflinn mið-
ast við þarfir
lýðraeðis-
þjóðanna
— einangrunarstefnunni vikið til hliðar
Útlönd Útlönd Útlönd
Japanir miöa nú herstyrk sinn i ríkari mæli við sameiginlegar þarfir lýðræðisþjóðanna i vestri.
Binangrunarstefnan hefur verið látin víkja.
Japanir hafa í 30 ár státaö af
fullkomnasta her í Asíu. Þeim er þó
illa við aö talað sé um her og vilja
fremur nota oröiö vamarliö. Japanir
hafa reynt aö geta sér orð sem friö-
elskandi þjóð og herafli þeirra sé
einungis ætiaður í vamarskyni. Her-
gögn Japana báru þess vott aö allt
kapp skyldi lagt á þessa ásjónu.
Engan útbúnaö var aö finna sem
ætlaður var til notkunar í öðrum
löndum eins og til dæmis herþotur
meömikiðflugþol.
Hafa færst nær Bandaríkja-
mönnum
Nú virðist sem einhver breyting
hafi orðiö á stefnu Japana i þessum
efnum. Þeir hafa hallaö sér meira aö
Bandarikjamönnum og öömm
vestrænum ríkjum og svo virðist
sem herafli þeirra taki nú meira miö
af væntanlegum átökum við Sovét-
menn. Japanir hafa nýlega fest kaup
á F-15 herþotum frá Bandarikjunum
Vínframieiðsla hefur verið eitt
aðaldeilumáliö innan Efnahags-
bandalags Evrópu á undanförnum
árum. Hafa deiiur þessar oft verið
harðvítugar og engin lausn hefur
fundist.
Neysla á vínum í ríkjum EBE
hefur dregist saman á síðustu ára-
tugum en á sama tíma hefur fram-
leiöslan stóraukist. Reynt hefur
verið að samhæfa framleiðslumagn
aðildarríkjanna til að koma í veg
fyrir offframleiðslu. Þessar tilraunir
hafa gjörsamlega mistekist og er
taliö aö í ár muni umframfram-
leiðslan nema um þremur milljörð-
Nægir það til að fylla 16.000
sundlaugar á stærð við þær sem
notaðar eru til keppni á ólympíu-
leikum.
Þær þjóðir sem harðast hafa deilt
um framleiðslumagnið eru Frakkar
og Italir.
Vonir bundnar við íra
Nú telja Frakkar að lausn kunni
að vera í s jónmáli í deilunni. Eru þær
vonir byggðar á því að Irar hafa
tekið við forystuhlutverkinu innan
EBE af Frökkum. Francois
Mitterrand Frakklandsforseti sat í
forsæti síðustu sex mánuði og Irar
munu sitja viði stjórnvölinn næsta
hálfa áriö. Irar hafa lítilla hagsmuna
aö gæta i víndeilunni og er því taliö
mögulegt að finna lausn undir þeirra
forsæti.
Michel Rocard, landbúnaðarráð-
herra Frakklands, sagði nýlega að
offramleiðsla á léttum vínum væri
stærsta vandamálið sem blasti við
Efnahagsbandalaginu nú og jafn-
framt að vínframleiðslan væri í
hinum mesta ólestri.
Talið er að Frakkar muni leggja
til að settur verði framleiðslukvóti
á ríki bandalagsins til að stemma
stigu við offramleiðslunni. Þetta yrði
hins vegar neyðarúrræði og aöeins til
þess gripið ef núverandi kerfi reynist
ómögulegt í framkvæmd. Nú er
miklum fjármunum variö í út-
flutningsbætur og aðra styrki til vín-
ræktarbænda.
Á fundi sínum í Fontainebleau í
Frakklandi í síðasta mánuði sam-
þykktu leiötogar EBE-ríkjanna tíu
að reyna til þrautar að leita nýrra
leiða til að stemma stigu við offram-
leiðslu á léttum vínum. Munu land-
sem eru taldar þær fullkomnustu
sem framleiddar eru í heiminum nú.
Þessar þotur eru með útbúnað sem
gerir mögulegt að fylla þær af elds-
neyti þótt þær séu á flugi. Fyrir
nokkrum árum hefði ekki komið til
mála aö Japanir festu kaup á slíkum
herþotum því viðhorfiö var að her
landsins hefði ekkert við slíkt að
gera. Hans hlutverk væri aðeins að
verja Japan ef á það yrði ráðist.
Erjur annarra ríkja komu þeim
ekkert við. Fyrir þessa stefnu sættu
Japanir ámæli frá Bandaríkja-
mönnum sem sögðu aö Japanir gætu
ekki einangrað sig meö þessum hætti
og að þeim bæri skylda til að taka
þátt í sameiginlegum vömum lýð-
ræðisþjóöa heimsins. Nú hafa þessar
raddir í Bandaríkjunum aö mestu
þagnaö enda hafa Japanir eins og
áöur er getið færst nær Bandaríkja-
mönnum.
Mega ekki skerast úr leik
Nakasone, forsætisráðherra
Japans, hefur ekki verið feiminn við
að lýsa þeirri skoðun sinni að
Japanir eigi að sinna þessum kröfum
Bandaríkjamanna. Þeir geti ekki
skorist úr leik. Fyrir þessar skoðanir
sínar hefur Nakasone sætt gagnrýni
frá stjórnarandstööunni í Japan.
Stjómarandstaðan segir að þessi
breytta stefna sé þverbrot á þeim
reglum sem ríkt hafa 1 landinu frá
lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Þá hafi verið ákveðið að Japan
skyldi ekki taka þátt í neinum
hernaöarbandalögum og markmiðiö
skyldi aðeins vera það eitt að verja
Japan fyrir utanaðkomandi árás.
Gæði fremur en magn
Nakasone hefur skellt skolla-
eyrum við þessari gagnrýni og segir
hana ábyrgðarlausa. Hann hefur
gefið í skyn að her Japans eigi aö
vera tilbúinn til að berjast við hlið
Bandaríkjahers gegn sameigin-
legum óvini.
Ljóst er að Bandarík jamönnum er
mikill styrkur að sh'ku bandalagi við
Japan. Þrátt fyrir að her landsins
ráði ekki yfir kjarnorkuvopnum
verður hann að teljast mjög full-
kominn, sé miðað við hefðbundin
vopn. Áhersla hefur verið lögð á gæði
fremur en magn.
Aðeins sjö þjóðir í veröldinni eyða
meira fjármagni til hermála en
Japanir. Japansher er svipaður að
stærð og sá breski og fá NATO ríki
búa yfir meiri herstyrk. Það er því
vitaskuld Vesturlöndum mikill
styrkur að vita af þessum banda-
manni í Asíu og sérstaklega þegar til
þess er litið að kommúnisminn hefur
breiðst þar hratt út á undanförnum
árum.
Umsjón:
GunnlaugurSævar
Gunnlaugsson
*
•> ^
Stærsta vandamálið, sem hvílir á Efnahagsbandalagi Evrópu nú, er offramleiðsla á léttum vinum.
Offramleiðsla
á víni sligar
Efnahagsbandalagið
— vonir bundnar við lausn undir f orsæti írlands
búnaöarráöherrar landanna koma
saman til fundar síðar í þessum
mánuöi og verður þetta aðalumræðu-
efniðáþeimfundi.
Hörð mótmæli
Erfitt getur reynst fyrir frönsku
stjórnina að koma á framleiðslu-
kvóta. Franskir vínframleiðendur
sem eru 750.000 munu eiga erfitt með
að fallast á slíkar tillögur. Þeir hafa
hingað til mótmælt öllum siíkum
hugmyndum og af þeim mótmælum
má ráða að erfitt getur reynst fyrir
frönsk stjómvöld að ganga gegn
þeirra vilja. Mótmælin hafa nefni-
lega ekki verið það sem kalia má
friðsamleg. Bændurnir hafa oft gerst
sekir um ofbeldi og þeir hafa ráðist
að flutningabílum sem flytja ítölsk
vín til Frakklands og hellt milljónum
h'tra niöur sem aö sjálfsögöu hafa
eyðilagst.
Frönsku bændumir ásaka einmitt
ItaU fyrir að hafa skapað þann
vanda sem vínframleiðendur eiga
við að etja. Þeir segja að ItaUr fram-
leiði ódýr vín og sterk og séu frönsk
borðvín því alls ekki samkeppnisfær
hvaö þetta snertir. Hins vegar hafi
frönsku vínin algjöra yfirburði yfir
ítölsku vínin hvað gæði snertir. Italir
hafna þessum ásökunum hins vegar
og segja að þeir verðleggi vín sín
meö eöUlegum hætti og aö aðeins sé
um heilbrigða samkeppni aö ræða.
Frakkar framleiða nú um fjóra
miUjarða lítra af borðvínum á ári en
framleiösla Itala er hins vegar rúm-
lega sex miUjaröar Utra.
Minni neysla
Neysla á borðvínum hefur
minnkaö mikið í Frakklandi og á
ItaUu á undanförnum árum og hefur
það aukið enn á vandann því fram-
leiðslan hefur hins vegar aukist.
Fyrir tíu árum neytti hver Itali 113
h'tra af léttum vínum á ári. Nú er
ársneyslan hins vegar komin niöur í
801ítra.
En það er fleira sem hvetur menn
tU að leita lausna í víndeilunni. Arið
1986 munu Spánverjar að öUum
líkindum ganga í Efnahagsbanda-
lagið. Þeir eru miklu stærri vínfram-
leiðendur en Frakkar og Italir.
Tæpar tvær miUjónir hektara lands á
Spáni eru notaöar undir vínekrur.
Nemur þetta um 65 prósentum af því
landsvæði sem ÖU ríki EBE leggja
undir vínrækt. Það er því ljóst að ef
Spánverjar faUa undir styrkjakerfi
EBE mun vandi bandalagsins
verða óbærilegur og hæpið aö ríki
eins og Bretland muni faliast á að
greiða háar fúlgur tU lausnar þeim
vanda því þeir njóta alls ekki góðs af
þvísjálfir.
Miklar fórnir
Spánverjar gera sér fulla grein
fyrir því að þeir verða að minnka
vínframleiðslu sína áöur en þeir
ganga í Efnahagsbandalagið. Þeir
hafa hins vegar lýst því yfir að þeir
muni ekki einir gera sUkar ráð-
stafanir sem kref jast munu mikUla
fórna. Þeir krefjast þess að Frakkar
og Italir geri einnig ráðstafanir tU að
minnka sína framleiðslu.
AUt stendur í jámum eins og er í
þessum deilum. Hvort lausn mun
finnast á næstunni er augljóslega
undir því komið að aUir málsaðilar
gefi nokkuð eftir af sínum kröfum.
Hins vegar eru þessar Suður-
Evrópuþjóðir ekki þekktar fyrir
samningslipurð og þegar þeim
hitnar í hamsi er ekki gott viö þær að
eiga.