Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 12
12 Dv.HMikíÖDKdtititórjíffifiM.vn Stjórnarformaöurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HÁUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÓSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla.áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plótugerð: HILMIR HF., SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverðá mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helgarblað28 kr. Tvíhöfða óvinur útgerðar Til lengdar getur ekki gengið að halda sjávarútvegin- um í núverandi bóndabeygju. Útgerð og fiskvinnsla verða að fá tækifæri til að halda áfram að vera hornsteinn at- vinnulífs þjóðarinnar, því að annan hornstein höfum við ekki, að minnsta kosti ekki í náinni framtíð. Tvo óvini á sjávarútvegurinn. I fyrsta lagi stjórnvöld margra síðustu ára, sem hafa með ýmsum fyrirgreiðsl- um látið flotann vaxa of mikið. Og í öðru lagi riúverandi stjórnvöld, sem halda niðri tekjum sjávarútvegsins til að auðvelda sér baráttuna við verðbólgu. Með ofsetningu skipa á fiskistofnana er verið að búa til eins konar landbúnaðarvanda í sjávarútvegi. Skipunum verður að fækka sem skjótast, svo að jafnvægi náist milli sóknar og stofna og sjávarútvegurinn nái sínu eölilega ástandi sem arðbær atvinnuvegur. Kvótakerfinu hefur ekki tekizt að minnka flotann. Þvert á móti virðist það stuðla að áframhaldandi útgerð sem flestra skipa. Ekki bætir úr skák, að sala kvóta og önnur tilfærsla þeirra hefur sætt skaðlegum hömlum og óréttmætri gagnrýni sem eins konar spilling. Ef kvótakaup fengju að ýta verstu taprekstrar-útgerð- inni úr spilinu, mætti ætla, að róðurinn léttist hjá hinum. Afkoma sjávarútvegsins yrði betri en hún er nú. Og alls ekki má efla vitleysuna með uppbótum og millifærslum eins og ríkisstjórnin hefur verið að gera. Stuðningur við hinn vonlausa hluta sjávarútvegsins hefur svo búið til hina sérkennilegu stöðu, að sumir full- yrða, að lækkað gengi krónunnar hjálpi ekki útgerðinni. Þessi kenning er dæmi um, hversu annarlegt ástandið getur orðið, jafnvel í sjávarútvegi. Útgerðin er sögð svo skuldug í erlendum gjaldeyri og sögð nota svo mikla olíu í erlendum gjaldeyri, að gengis- lækkun hjálpi henni ekki. Þetta gildir auðvitað ekki um venjulega útgerð, heldur eingöngu um útgerð grínist- anna, sem gera út á ríkisstjórn og opinbera sjóði. Þar með er líka komið að hinum þættinum, sem heldur sjávarútveginum niðri. Ríkisstjórnir, sem berjast við verðbólgu, telja sig þurfa að halda gengi krónunnar stöðugu. Það er skynsamlegt upp að vissu marki, en getur líka orðið dýrkeypt, þegar það gengur út í öfgar. í erfiðu varnarstríði gegn verðbólgu kemur oft að því, að ríkisstjórnir neita að viðurkenna, að baráttan hefur ekki borið árangur og atvinnulífið hefur skekkzt. Þá er áfram haldið dauðahaldi í stöðugt gengi til að varðveita þá ímyndun, að baráttan standi enn. Þetta gerist alltaf á kostnað sjávarútvegsins. Atvinnu- grein, sem í eðli sínu er hin arðbærasta, stendur andspæn- is hraðvaxandi skuldasúpu. Ríkisstjórnir reyna af veikum mætti að bjarga málum í horn með millifærslum og uppbótum. Sú heimska er einmitt að gerast núna. Ríkisstjórnir eru hinn tvíhöfða óvinur sjávarútvegsins. Þær draga skóinn niður af útgerðinni með því að auð- velda auralausum grínistum að kaupa óþörf og skaðleg skip. Og þær láta sjávarútveginn greiða herkostnaðinn af mistökunum í baráttunni við verðbólgu. Ef sjávarútvegurinn fengi að njóta eðlilegrar stærðar, ekki of mikillar, og ef hann fengi jafnan rétt gjaldeyris- skil fyrir afurðir sínar, ekki of lág skil, — þá sæist fljót- lega, að í eðli sínu er hann hagkvæmasti, arðbærasti og öflugasti atvinnuvegur þjóðarinnar. Jónas Kristjánsson KLÓKINM EÐA UPPGIÖF? Forysta Alþýöusambandsins hefur nú tekið um það ákvörðun að ekki skuli haft samflot í þeim samningaviðræðum sem við blasa i septemberbyrjun. Þessi ákvörðun þarf engum að koma á óvart. Samstaða hefur í raun verið af skornum skammti í undanfarandi samningaviðræðum, enda þótt samflot hafi oftast verið haft í oröi. Engu að síður er fróðlegt að leita nokkuð að orsökum þess að nú er tekin ákvöröun um að ganga til leiks í mörgum fylkingum. Klókindi eða uppgjöf? Flestum finnst eðlilegast aö einhver meginástæða hljóti aö liggja að baki þessarar ákvörðunar. Menn greinir hins vegar á um hvort þar sé heldur um að ræða klókindi eöa uppgjöf. Þeir fyrrnefndu segja að forystan telji auöveldara að höggva skarð í varnarmúr ríkisvalds og at- Kjallari á fimmtudegi MAGNÚS BJARNFREÐSSON „Þeir þora kannski ekki annað en rétta upp höndina á opinberum félagsfundi, en þeir gera það með ólund og myndu nota tækifærið til að vera á móti ef at- kvæðagreiðsla væri leynileg.” vinnurekenda gegn kauphækkunum með því að ráðast að honum úr mörgum áttum heldur en ef rætt er um málin í einum stórum hópi. Aðrir telja að með þessu sé verkalýðsforystan í raun að hlaupast frá öiium stóru orðunum, því auðveldar sé að dylja lítinn árangur með mörgum ólíkum samningum þar sem hver geti talað digurbarka- lega um sinn hlut. Mér finnst að báðir þessir aðilar geti haft rétt fyrir sér að nokkru leyti. En að auki kemur að sennilega er ekkert óeðlilegt við það þótt þessi leið sé reynd núna. Eins og ég gat um áðan hefur samstaöa í raun verið af skomum skammti i undanfarandi samningum, og sívaxandi óánægju hefur gætt hjá ýmsum hópum með samflotiö. Menn þurfa ekki að vera neitt hissa yfir því. Hagsmunir hinna fjölmörgu félaga í Alþýðusambandi lslands eru vissulega ólíkir og enda þótt þeir geti sætt sig við það í nokkurn tíma að ekki sé hróflað mikið viö launahlutföllum að ööm leyti en því að lægstu launum sé þokað upp á við, þá þarf engan að undra þótt þeir telji einhvem tímann nauðsynlegt að hafa frjálsar hendur til þess að semja um hlutina. Vissulega er einnig á þennan hátt unnt að ná fram einhverjum sér- stökum ívilnunum fyrir tiltölulega h'tinn hóp manna, sem vegna þess að ekki er haft samflot, þarf ekki endilega aö hafa örlagarík áhríf á efnahagslífiö í landinu. Aö þessu leyti kunna nokkur klókindi aö vera að baki þessarar ákvörðunar. En hvað vill svo launþeginn? Þannig má meö gildum rökum halda því fram að ákvörðun verkalýðsforystunnar sé fagleg og eðlileg miðaö við núverandi aðstæður og undanfama samninga. Mig gmnar hins vegar að fleira hafi haft áhrif á ákvarðanatökuna. Verkalýðsforkólfar eru nefnilega ekkert of vissir um það að launþegar í landinu séu tilbúnir í harðar aðgerðir, síst í heild. Skoðanakann- anir hafa sýnt þetta og dæmi em meira að segja um að félög hafi fellt í allsherjaratkvæðagreiðslu að segja samningum upp. Flestir verkalýðs- f orkólfanna hafa samt forðast það aö sleppa akvaröanatökunni út á meðal hinna almennu launþega. Þegar þannig er í pottinn búið aö menn vita ekki gjörla hug hinna almennu félagsmanna getur veríö miklu skynsamlegra að semja i smsrrí einingum. Þá er auöveldara aö „spila eftir eyranu”, slá af eða heröa róðurinn eftir því hvemig tekst aö æsa fólk upp. En af hverju er þetta hik á launþegunum? Skýringamar eru vafalaust margar. Eg held að meginorsökin sé sú að fólk kann nokkuð vel við hve verðbólgan hefur hjaönað og það trúir þvi ekki að kauphækkanir i krónutölum verði varanlegar. Það er í of mörg ár búið aö horfa upp á launahækkanir brenna á örfáum vikum á verðbólgubálinu. Hafi stjómarand- staðan einhver ráð til þess að koma í veg fyrir það, hefur henni algerlega mistekist að koma fólki í skilning um þaö. Hinn almenni launþegi sér ekkert annaö en gamla skollaleikinn framundan. Þetta hygg ég að sé meginorsökin. I öðm lagi koma svo sýndar- mennskan og gervitaxtarnir í launa- málunum hér til skjalanna. Þá á ég við þann frumskóg sem allir kjara- samningar í landinu em og einnig það launaskrið sem verður án til- hlutunar samningsaðila og hefur meöal annars orðið nú á siðasta ári. Mikill fjöldi hinna svonefndu almennu launþega hefur í raun allt aðrar tekjur en kjarasamningar kveða á um. Eg fullyrði að dæmi séu um það aö félagar í Verkamanna- sambandinu hafi 15 þúsund króna tekjur á viku — að vísu með mikilli vinnu og bónusgreiðslum. Hvers vegna í ósköpunum skyldu þessir menn fara út í langvinnt verkfall til þess að slást fyrir því aö hafa á pappírnum rúmlega þetta í mánaðarkaup? Þeir þora kannski ekki annað en rétta upp höndina á opinbemm félagsfundi, en þeir gera þaö með ólund og myndu nota tækifærið til að vera á móti ef atkvæðagreiðsla væri leynileg. Þegar svona er komið er vígstaðan orðin slæm, jafnvel þótt flokks- og félagsagi haldi opinberlega. Áhrif á vinnubrögð En hvaða áhrif hefur þetta allt á vinnubrögðin í samningunum? Enda þótt menn láti svo að þau séu hverfandi þá vita þeir betur. Ef raunvemlegt samflot verður ekki haft munu samningar dragast vemlega á langinn. Ýmsir telja að margra mánaða samningaþóf blasi við á næsta vetri. Að vísu getur verið að einhver skynsamleg lausn í upphafi samningaþófs höggvi á ýmsa hnúta, en engu að síður er líklegt að samningar verði langir og strangir. Flestir munu vilja bíða í lengstu lög til þess að sjá hvað hinum verður ágengt. Allir verða hræddir um að semja af sér. Á löngum óróleikatíma á vinnumarkaði gefst verkalýðsforkólfum tækifæri til þess að herða sina menn upp og fýlgjast með „púlsinum” í skoðana- mynduninni. Hægt verður að halda margar sýndarræðurnar í Alþingi þar sem hagur verkalýðsins verður borínn fyrir gáfumannabrjóstum atvinnupólitíkusa stjórnarandstöð- unnar. Forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar hafa margoft bent á það und- anfarið að boltinn sé ekki bara hjá þeim og atvinnurekendum. Rikis- stjórnin verði Uka að reka tána í hann. Þetta er rétt. Ríkisstjómin verður að geta lagt fram sannfærandi heildarstefnu fyrir næsta ár ef launþegar eiga að sætta sig við átakalitla kjarasamninga. Sú stefna verður að fela það í sér að fórnum launþega sé að verða lokið, aðrir axli byröar og unnt sé að tryggja kaupmátt í raun. Magnús Bjamfreðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.