Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Page 13
DV. FIMMTUDAGUR19, JOLI1984. 13 Þegar Sveinn Bjömsson, nýskipaö- ur forstjóri SVR, rak Magnús Skarphéðinsson vagnstjóra í mars sl. gaf hann enga sérstaka skýringu á embættisfærslu sinni. Uppsagnar- bréfiö var örstutt og kvaö á um einhverja óskilgreinda samstarfs- öröugleika. Sparkað eftir 8 ár Forstjórinn var strax grunaður um að hafa sagt vagnstjóranum upp af annarlegum hvötum og þvi var þess fariö á leit að hann gæfi honum skriflegar skýringar á uppsögninni. Undan þessu færðist Sveinn og ekki nóg með það heldur virti hann lögfræöing Magnúsar ekki viðlits. Sveinn fékk stuöning í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem hrokagikkir valdsins risu upp og sögðu: Það er löglegt að segja upp án skýringa. Krafan um skýringar sýnir „málefnafátækt” vinstri manna. Nú er það svo að Magnús hafði starfað sem vagnstjóri í 8 ár þegar Sveinn gaf honum sparkiö. A þessum tíma höfðu samstarfsmenn hans sýnt honum margvíslegan trúnað, kosið hann í stjórn Starfsmannafélags SVR, í umferðamefnd Reykjavíkur- borgar og stjórn SVR. Síðast en ekki síst var Magnús varatrúnaðarmaður starfsfólks. Menn trúa því almennt ekki að nauðsynlegt hafi verið að reka Magnús fyrir vanhæfnissakir, enda kyndugt að slíkt sé uppgötvað eftir8ára þjónustu. Afbrotaskrá Sveins I nokkra mánuði hefur Sveinn Björnsson færst undan þeirri móröisku skyldu sinni að gefa Magnúsi skriflegar skýringar á uppsögninni. Á meðan hann þráast við hljótum við að líta svo á að vagn- stjórinn hafi eitthvað til síns máls þegar hann segir að sér hafi verið sagt upp vegna gagnrýni sinnar á stjórn SVR. Persónulega er undirritaður ekki í vafa um að gagnrýni vagnstjórans stuðlaöi mjög að óvild forstjórans í hans garð. Mér er t.d kunnugt um að Lúaleg aðför á skrifstofu sinni varðveitti hann sér- staklega blaðagreinar Magnúsar mörg ár aftur í tímann, rétt eins og um afbrotaskrá væri aö ræða. Þá má þess geta að á sínum tíma fór Sveinn þess á leit viö Magnús að hann hætti að gagnrýna stjórn SVR í blöðum. I þessu óþrifamáli hefur borgar- stjórinn, Davíð Oddsson, neytt allra bragöa til að verja forstjóra SVR. Þeir félagar hafa báðir lagst gegn því að Magnús fengi skriflegar skýringar á ástæðum uppsagnarinn- ar. Þótt þessir formsins menn hafi borgarstjórn Reykjavíkur. En þrátt fyrir þennan stuðning, þetta siðferðisþrek, lét Davíö útbúa skýrslu um meint afglöp Magnúsar í starfi. Þessa skýrslu kynnti hann sem trúnaðarmál á borgarráösfundi þann 3. júlí sl. Skýrslan innihélt ávirðingar sem borgarstjóri hafði ekki burði til að sýna Magnúsi sjálfum. Útúrsnúningur Davíðs Lögfræðingur Magnúsar, Skúli GARÐAR SVERRISSON, STARFSMAÐUR ÞINGFLOKKS BANDALAGS JAFNAÐARMANNA. • „Kjarni málsins er sá að Davíð hefur skýrslu undir höndum sem inniheldur alvarlegar ásakanir á hendur Magnúsi Skarp- héðinssyni.” Sveinn Björnsson, forstjóri SVR. lögin með sér hafa þeir almenna mannasiði á móti sér. Smjattað á rógi Á meðan Davíð hjálpar Sveini við að breiða yfir málið hafa framtaks- samir stuðningsmenn tekið að dreifa rógi um hinn burtrekna vagnstjóra. Greinilegt er að borgarfulltrúar hafa fengið sinn skammt af þessum rógburði og er nú svo komiö að sjálfur borgarstjórinn liggur undir ámæli fyrir að hafa smjattað á honum. Nógu niðurlægjandi er að vera rekinn úr starfi þótt menn þurfi ekki líka að vinna gegn rógi, þessari aðferð litla mannsins. Flokksbræður þeirra Sveins og Daviðs hafa hjálpaö þeim við aö flækja þetta mál og gera persónu Magnúsar tortryggilega. Hafa þeir t.d. orðið berir að hreinum lygum í Davíð Oddsson borgarstjóri. Thoroddsen, fór þess bréflega á leit við borgarstjóra þann 4. júlí sl. að hann afhenti skýrsluna sem hann þuldi ofan í borgarráðsmenn deginum áður. Davíð svaraði mála- leitan Skúla með bréfi dagsettu 6. júlí sl.Þarsegirhann m.a.: „Að ósk tiltekins fulltrúa í borgar- stjóm gerði ég borgarráði grein fyrir málinu á fundi 3. þ.m. Gerði ég það munnlega og sem trúnaðarmál. Er það á misskilningi byggt í bréfl yðar, að á fundinum hafi verið lögð fram skýrsla um mállð. Með vísan til framanritaðs verður ekki orðið viö kröfu yðar um afhendingu skýrslu, sem ekki var lögð fram.” Þvílíkt hugrekki! Það er út af fyrir sig rétt að skýrslan var ekki lögð fram í þeim skilningi að henni væri dreift meðal manna. Hins vegar veit borgarstjóri mætavel hvað við er átt og getur því eldd skýlt sér með svona út'úrsnúningum. Kjarni málsins er sá að Davíð hefur skýrslu undir höndum sem inniheldur alvarlegar ásakanir á hendur Magnúsi Skarphéðinssyni. Þessa skýrslu las borgarstjóri upp og kynnti borgar- ráðsmönnum, svona rétt til fróðleiks og upplýsingar um misgjöröir þessa tiltekna borgarstarfsmanns sem hefur engin tök á að bera hönd fyrir höfuö sér. Siðlaus vinnubrögð Meö framangreind máisatvik í huga ættu allir sanngjarnir menn að leggjast á eitt og þröngva borgar- stjóranum til aö afhenda Magnúsi þessa skýrslu, skýrslu sem ætti að vera sannleikanum samkvæm. Það er alvarlegt mál ef okkar ungi og reynslulitli borgarstjóri kemst upp með að láta fólk úti í bæ semja leyni- plögg með alvarlegum aðdróttunum um einstaka borgarbúa. Enn alvarlegra er ef hann kemst upp með að lesa slíkar skýrslur í heyranda hljóöi án þess að einstaklingarnir s jálfir eigi kost á að kanna sannleiks- gildið. Viö búum í Reykjavik en ekki Rússlandi. Það verður Davíð Oddssyni aöskiljast. Garðar Sverrisson. J ■ ÁLVER VID EYJAFJÖRÐ — skynsemin ræður ekki Undanfarið hefur mikið verið rætt um uppsetningu álvers við Eyja- fjörð, eitt gjöfulasta ræktarland Is- lands. Sú áhætta sem þar er tekin hlýtur að leiða menn til umhugsunar um ýmsa aðra vænlegri valkosti. Nú höfum við reynslu af slíku álveri sem viö hljótum að taka mið af. Dökku hliðarnar, mengun, skattsvik og of lágt orkuverö eru hlutir sem við megum ekki horfa f ram hjá. Mengun Lítil hætta virðist stafa af mengun álversins í Straumsvík eftir uppsetn- ingu hreinsibúnaöar sem á að geta hreinsað 97% af úrgangi álversins. Þá vaknar spumingin hvort þessi 3% valdi engum skaöa. Miðað við 130 þúsund tonna álver er hér um gífur- legt magn að ræöa (nokkur þúsund tonn árlega). Menn hljóta því að krefjast ítarlegra og nákvæmra rannsókna því geysilegir hagsmunir eru í veði. Hafa ber í huga að mikil óvissa ríkir um afleiðingar mengunar frá álveri því oft á tíðum er ekki unnt að rannsaka þær til hlít- ar. I þessu sambandi má nefna skaðabótamál sem var höfðað á þeirri forsendu aö flúormengun frá álverinu i Straumsvík hefði átt sök á dauða hæna í hænsnabúi skammt þar frá. Málið tapaðist í undirrétti á þeirri forsendu að slfkt hefði ekki áöur verið sannað. Skattsvik ársins Eg vil minna á að sú upphæð sem um var talað á sínum tíma var um 150 milljónir. Erfiðlega gengur að innheimta féð. Orkumálin Þróunin í orkumálum Islendinga undanfarin ár hefur verið hinum al- menna neytanda í óhag en hjá ál- verinu hefur það svo til staðið í stað -miðað við fast verðlag. Hvort þessi óhagstæða þróun tengist hinu lága orkuverði álversins eða er orsök rangrar stefnu fyrri stjórnvalda skal ég ekkifuliyrða. Síðustu áratugi höfum við virkjað alla skástu virkjanakostina. Tilkoma nýs 130 þúsund tonna álvers þýddi byggingu Fljótsdalsvirkjunar. Hún yröi mun dýrari en Búrfellsvirkjun. Kostnaðarverð raforkunnar yrði því mun hærra. Erlenda samsteypan Alcan hlýtur að miða sínar áætlanir við núgildandi orkuverð. I dag er orkuverðið 9,5 milis en gæti farið upp í 12 mills ef hinir skilyrðisbundnu samningar næðust. Áætlað kostnaðarverð raforkunnar í dag er 20 mills svo mismunurinn er á biiinu 8—10,5 mills á hverja kílóvattstund. Hvemig á að brúa þetta bil? Meö erlendum lánum eða hærra orku- verði á hvem íbúa? Þótt kostnaðar- verð orkunnar sá álitið 20 mills í dag þá getur sú talaö hækkaö mjög auð- veldlega. Nýtt Kröfluævintýri? Rangar fjárfestingar í orkumálum þjóðarinnar eiga stóran þátt í skuldasöfnun sem orðin er um 60% af þjóöartekjum. Með Fljótsdalsvirkj- un er óþörf áhætta tekin miöaö við þá möguleika er bjóðast. Auðvitað má ekki h'ta fram hjá þeirri staðreynd að það er afskap- lega þægileg lausn að planta niður stóriðju hingað og þangað um landið. Shkt veitir atvinnu, skapar þjónustu- og skattatekjur. Eg tei gallana kostunum yfirsterkari og vil fýlgja þeirri stefnu að athuga alla aðra möguleika gaumgæfilega áður en það er orðið um seinan. Fiskirækt Sinnuleysi stjómvaida um fiski- rækt er hreinasta smán. Engin stefna mótuð, engin samvinna tekin upp viö erlendar þjóðir eins og t.d. Norðmenn, engin fyrirgreiðsla lána- sjóöanna, ekkert. Það hefur sýnt sig og sannaö að þetta er arðbær val- kostur og markaður virðist vera ótæmandi. Stjórnvöld í Noregi tóku upp þá stefnu að aflétta skilyrðum fyrir leyfisveitingum á sviði fiskiræktar. Sú stefna hefur borið glæsilegan árangur. Tahð er að ársframleiösian stökkvi úr 2500 lestum í dag upp í 100.000. lestir árið 1990 sem er 4000% aukning á sex árum að söluverðmæti 20 miiljarðar íslenskra króna. Eyjólfur Konráð alþingismaöur sagði í viötali fyrir skömmu að við gætum tvöfaldað þjóðartekjur okkar á 10 árum ef rétt yrði að málum staðið. A síðustu dögum hafa verið ýmsar hræringar í þessum málum sem benda til aukins skilnings á þeim miklu tækifærum sem gefast. Utgerðarfélög, einstakhngar og Sambandið hafa gefið fyrirheit um shkan rekstur. Rannsóknastöö á sviði fiskiræktar er því orðin brýn nauðsyn. Shk stöð myndi vinna ómetanlegt brautryðjendastarf. Norðurland hefur upp á að bjóða töluvert mikla möguieika i fiskirækt vegna jarðhitans. Leggja ber því áherslu á að athuga þá möguleika gaumgæfilega. Aðrir atvinnumöguleikar Aðrir atvinnu- og tekjumöguleikar eru einnig fyrir hendi, svo sem full- vinnsla matvæla, lifefnaiðnaöur, raf- einda- og tölvuiðnaður, ræktun nyt ja- skóga, auknar tekjur af ferðamönn- um. Kjallarinn MAGNÚS ERLINGSSON, NEMANDI VIÐ MENNTA- SKÓLANN VIÐ HAMRAHLfÐ Skógrækt hefur verið stunduð í Eyjafirði í 15 ár og árangurinn sýnir að nytjaskógrækt er raunhæfur möguleiki. Ohkt er nú skemmtilegra að rækta skóg heldur en deyða. Tekjur Islendinga af ferða- mönnum á síðasta ári voru um 1,5 milljarðar en aöeins brot upphæðar- innar rennur til auglýsinga. Undan- farið hefur Suðurland verið auglýst sérstaklega á sviöi ferðamála og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að Norð- lendingar fylgi í kjölfarið. Viö eigum fallegt og ómengað land sem verður ekki metið til fjár. Okkur ber að vernda landið og ég veit að við gerum það ef skynsemin ræður. Magnús Erllngsson. • „Rangar fjárfestingar í orkumálum þjóðarinnar eiga stóran þátt í skuldasöfn- un sem orðin er um 60% af þjóðartekjum.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.