Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1984, Side 35
DV. FIMMTUDAGUR Í9. JÚLl 1984. 35 Ættarmót á Reykjum á Skeiðum Fólkiö í Brekku. Gamli bærinn á Reykjum sést í bakgrunni. Á laugardag héldu afkomendur Ingigerðar Eiríksdóttur og Þorsteins Þorsteinssonar ættarmót aö Reykjum á Skeiöum. Mótið var haldið í tilefni þess að 150 ár eru nú liðin frá fæðingu Þorsteins. A mótinu voru saman komin milli fimm og sex hundruð manns, að sögn Villhjálms Sigtryggs- sonar skógræktarfræðings sem er einn afkomendanna. Fyrst hittust allir á Reykjum og þar voru gróðursett tvö tré til minningar um hjónin og eirplata sett á stein með nöfnum þeirra. Þá var farið í Árnes og þar var haldin herleg veisla með söng, ræðum og alls konar uppákomum. Afkomendur hjónanna búa flestir á Skeiðum, Biskups- tungum og Reykjavík. Síðast hélt ættin mót 1924, fyrir sex- tíu árum. SGV. Lítið barn skoðar minningarstein sem var komið fyrir í minningu hjónanna sem ættin er út frá. DV-myndir Eiríkur Jónsson Þórður Kristjánsson, starfsmaður Ljósmyndavara, afhendir Gunnari V. Andréssyni, ljósmyndara DV, Fuji- filmumar sem blaðið mun nota á ólympíuleikunum. 1600 ASA filma á leiðinni: HÆGT AÐ TAKA MYNDIR í MYRKRI? - DV tekur þátt íað prufukeyra á ólympíuleikunum „Það má segja að draumur allra ljósmyndara á þessari öld, að taka myndir við kertaljós, sé að rætast. Og gott betur. Með tilkomu 1600 ASA film- unnar má nánast segja að hægt sé að slökkva á kertunum,” sagði Gísli Gestsson, framkvæmdastjóri Ljós- myndavara, umboðs Fuji-color á Is- landi. Framkvæmdanefnd ólympíuleikanna hefur valið Fuji-color til að sjá um ljós- myndahlið keppninnar. Fram- kvæmdanefndin lætur taka gríðarmik- ið af ljós- og kvikmyndum. „Og eftir að hafa kannað hver væri best í stakk bú- inn til þess völdu þeir Fuji-color,” að sögn Gísla Gestssonar. Fuji-color ákvað að kynna 1600 ASA filmuna við þetta tækifæri. Fyrirtækið hefur valið blöö úr ýmsum heimshom- um til að prufukeyra filmuna og varð DV fyrir valinu, eitt íslenskra blaða. Þórir Guðmundsson, fréttamaður DV á ólympíuleikunum, verður því einn fyrstu ljósmyndara í heiminum til að smella af meö 1600 ASA filmu. Fuji-color hefur jafnframt séð um að skapa fréttaljósmyndurum á leikunum frábæra aðstöðu á leikunum til mynd- vinnslu og mun DV njóta góðs af. „1600 ASA filman er sannkölluð bylt- ing í ljósmyndun,” sagði Gísli Gests- son. „Hún er 60% ljós næmari en 1000 ASA filman sem var hingað til sú ljós- næmasta sem til var. Þrátt fyrir það hefur hún siknu komastærð. Þetta er sérstaklega mikil búbót fyrir íþrótta- ljósmyndara sem þurfa að „frysta” augnabhk sem gerast á gífurlegum hraða. Og á Islandi kemur hún sér sér- staklega vel, enda fáir sólardagar.” Fuji-umboðið valdi DV til að vera fulltrúi íslenska blaöa með Fuji-film- ur á ólympíuleikunum. „Enda blaðiö dugmikiö í íþróttaskrifum,” að sögn Gísla. Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari DV, fékk vænan pakka af Fuji-filmum, þ.á.m. 1600 ASA filmur, afhentan á dögunum en jafnframt fékk íslenska ólympíunefndin sams kyns glaðning. ÚTRÚLEGT! ÚTRÚLEGT! TILB0Ð SEM SLÆRIGEGN 22" KOLSTER LITSJÓNVÖRP Á TOMBÓLU VERÐI, Á AÐEINS TILBOÐIÐ STEIMDUR í 10 DAGA. ER KOSTURINN SJOIMVARPSMIDSTÖDIN kr. 23.950, staðgreiösluverð ■ ■ SIÐUMULA 2 - SIMI 39090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.