Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1984, Síða 35
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 4. DESEMBER1984.
35
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Álviðrædunefndin okkar
hefur verið mikið í sviðsljós-
inu að undanförnu enda stað-
ið í ströngu í samningamál-
um. Sem kunnugt er ciga í
nefndinni sæti Guðmundur G.
Þórarinsson, Jóhannes
Nordal og Gunnar G.
Schram. Og að sjálfsögðu
kaUa gamansamir þá þre-
menningana ævinlega Mills-
bræður!
Skipt um hlut-
verk
Nú er unnið af krafti að
gerð áramótaskaups sjón-
varps enda naumur tími tU
stefnu. Við sögðum frá þcirri
nýjung á dögunum að skaupið
veröur nú að mestu leyti tckið
upp utandyra.
Bubbi Morthens.
Vitaniega munu hafa komið
upp ýmsar smeUnar hug-
myndir varðandi þennan vin-
sælasta sjónvarpsþátt ársins.
Til dæmis hefur stjórnendum
dottið i hug að láta þá frænd-
ur og stórsöngvara Bubba og
Hauk Mortheus hafa hlut-
verkaskipti á skerminum.
Haukur Morthens.
Myndi Bubbi þá syngja þann
ódauðlega söng Hauks „Til
eru fræ...”. Haukur myndi
launa fyrir sig með „Strák-
arnir á Borginní. ..”.
Ekki vitum við hvort þessi
ágæta hugmynd hefur orðið,
cöa verður, aö raunveruleika.
En það væri nógu gaman að
sjá þetta og heyra...
Virkt félag
t kjöUar fréttaflutnings af
félagsskapnum Hildibrönd-
um í Eyjum hefur komið í ljós
að starfandi eru í landinu
mörg smáfélög sem láta ekki
mikið yfir sér.
t Hafnarfirði starfa til að
mynda af krafti Samtök öfga-
sinnaðra Hafnfirðinga. Berst
félagið fyrir aðskilnaði frá ts-
landi vegna seinagangs í
bjórmálinu.
Upphaflega hétu samtökín
Bjórfrelsisfélagið blettur.
Var það stofnað til höfuðs
ungtemplarafélaginu Depli
sem rekið var með reisn í
Firðinum. Samtökin berjast
nú, eins og áður sagði, af al-
efli fyrir aðskiinaði frá is-
landi. Benda meðlimir þeirra
á að Hafnarfjörður sé auðug-
ur af ýmsum náttúrulegum
og ónáttúrulegum auðlindum.
Hafnfirðingar ættu því að
geta vcrið sjálfum sér nógir í
hvivetna. Nefna þeir i þvi
sambandi álverið, höfnina,
bæjarútgerðina, virkjun
(sem að visu hcfur ekki vcrið
starfrækt í tíu ár) og lakkris-
gerð.
Því linnir bráð-
um
Talsverð rimma hefur stað-
iö að undanförnu um lögmæti
auglýsingar á heimilistækinu
Soda Stream. Enn er ekki
ljóst hvort Davíð fær að gcfa
bílinn eöa ekki. Hitt er svo
annað mál að auglýsingin sú
arna fer hroðalega fyrir
brjóstið á mörgum. Fólki
finnst hún beíniínis lciðinleg
eins og hún er fiutt á rás 2.
Þeim hinum sömu til léttis
skal það upplýst hér, að hlé
verður að minnsta kosti gert
á umræddu spilirii næstkom-
andi f immtudag.
Farsæl lending
Konur komust í auknum
mæli til áhrifa á nýafstöðnu
ASÍ-þingi. Þannig sitja í mið-
stjórn nú sjö konur í stað
tveggja áður.
Að sjálfsögðu varð þessi
„kvennainnrás” mörgum
þingfulltrúanum að yrkisefni.
Jökull Guðmundsson var einn
þeirra er köstuðu fram stöku
afþessu tilefni:
Hænufet til heilla var
hoppað, kæru fulltrúar.
Komnar eru konurnar
kátar i faðminn Asmundar.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir_______ Kvikmyndir
Laugarásbíó—Vertigo
★ ★ ★ ★
vER£>u\cxZ
föLb
HITCHCOCK BREGST EKKI
Vertigo.
Leikstjóri: Alfrod Hitchcock.
Handrit: Alec Coppel og Samuel Taylor.
Kvikmyndun: Robert Burks.
Tónlist Bernard Herrmann.
Aðalleikendur: James Stewart, Kim Novak og
Barbara Bel Geddes.
Þaö er sjaldan sem fyrir augun ber
jafnfullkomna sakamálamynd sem
Vertigo er. Ohætt er að fullyrða aö
hún sé með allra bestu myndum
meistara Hitchcocks og er mikiU
fengur aö henni ásamt öörum mynd-
um Hitchcocks sem Laugarásbíó
sýnir og hefur sýnt undanfarið.
Alfred Hitchcock geröi Vertigo
1956 og þrátt fyrir einróma lof gagn-
rýnenda var aösókn aö henni frekar
treg til að byrja meö. Vertigo hefur
aftur á móti verið sýnd alltaf öðru
hverju víða um heim og er sýningin í
Laugarásbíói alls ekki fyrsta endur-
sýning hennar. Var hún sýnd fyrir
um það bil fimmtán árum í Háskóla-
bíói.
Vertigo fjallar um leynilögreglu-
mann, John Ferguson (James
Stewart), sem verður fyrir því að
lögreglumaður hrapar til bana þegar
hann er að bjarga honum. Eftir það
veröur hann óstjórnlega lofthræddur
og hættir í lögreglunni vegna þess.
Skólafélagi hans hefur samband
við hann og biður hann að elta konu
sína hvert sem hún fari vegna þess
að hann gruni að hún sé að verða geð-
veik. Hún á það til að falla inn í hlut-
verk ungrar konu sem lést á síöustu
öld. Ferguson veitir henni eftirför og
bjargar henni þegar hún hendir sér í
San Francisco flóa. Þau fella hugi
saman en ástin er skammvinn því
Madelaine, en svo heitir konan,
hendir sér fram af klausturturni og
enn er þaö lofthræðslan sem hindrar
Ferguson í að bjarga henni frá sjálfs-
morði.. .
Það borgar sig ekki að fara meira
út í söguþráðinn en þeir sem halda aö
þarna sé sagan búin eiga eftir aö
verða undrandi. Enda væri það ekki
Alfred Hitchcock líkt að koma ekki
áhorfandanum rækilega á óvart.
Það er hreint með ólíkindum hvað
Vertigo hefur elst vel. Kvikmyndun-
in er fullkomin og væri ekki hægt aö
gera betur í dag með fullkomnari
tækni. Vertigo er jafnfersk og hún
var fyrir tuttugu og átta árum og
mættu framleiðendur sakamála-
mynda í dag margt læra af gamla.
manninum við gerð sakamála-
mynda.
Leikararnir eru allir mjög góöir.
James Stewart, sem kannski er helst
til of gamall fyrir hlutverkið, lýsir
vel hinni örvæntingarfullu til-
raun Ferguson til að fá festu í lífinu.
Kim Novak hefur sjálfsagt aldrei
leikið betur. Hún hefur oft verið sök-
uð um aö útlitiö hafi bjargað hennar
ferli. Og ekki vantar það að fögur er
hún. Hún gerir því erfiöa hlutverki
sem hún hefur í myndinni eins góð
skil og hægt er. Barbara Bel Geddes,
sem margir þekkja úr Dallas, er
einnig góö í hlutverki stúlkunnar
sem vonast eftir athygli Ferguson.
Þrátt fyrir góðan leik, kvikmynda-
töku og tónlist í hæsta gæðaflokki er
Vertigo samt afrek Alfred Hitch-
cocks. Handbragð meistarans leynir
sér ekki hvar sem borið er niður og
væri hægt að skrifa langt mál um
hvert smáatriði í myndinni. Full-
komleikinn er alls staðar fyrir hendi.
Hilmar Karlsson.
Kvikmyndir
KarvarietfjAJ]
. i6lafcerdi
28
r
BROTTFÖR 18. DESEMBER.
Eigum aóeins örfá sæti iaus í þessar eftirsóttu ferðir. Hægt að
velja um dvöl í íbúðum eða hótelum á Tenerife, hinní fögru
sólskinsparadís Kanaríeyja, Puerto de la Cruz, eða amerísku
ströndinni.
Notið tækifærið og styttið skammdegisveturinn. Losið ykkur við
kostnaðarsöm jól og vetrarveðrin heima. Úvenjulega margir frí-
dagar um þessi jól og áramót. Sérstök jólahátið fyrir okkar
farþega á aðfangadag með jólatré og gjöfum fyrir börnin og
veglegur áramótafagnaður.
“PVroOGK:*-
-gau
XI.
Íslenskur fararstjóri.
Fjöldi skemmti- og skoðunarferða. Þarna er sjórinn, sólskinið og
skemmtanalifið alveg eins og fólk vill hafa það.
Kvikmyndir