Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Síða 1
 DAGBLAÐIЗVÍSIR 92. TBL. - 75. og 11. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985. Draumur landf lótta Pólverjans rætist: Leggur af stað til Kanada ídag Pólverjinn Rundsztuk Jerzy sem ákvefl efl verfla eftir hér é landi þegar hann kom með pólsku knatt- spymulifli hingafl til landsins. DV-mynd KAE. íslendingar og eiturlyf í Kaupmannahöf n: Kvistur SK „Hasssala er líka vinna” „Hassala er líka vinna,” sagöi ungur Islendingur þar sem hann stóö með svartan hassmola og litla vigt í Kristjaníu í síðustu viku. DV var í Kaupmannahöfn aö skoöa eiturlyf og Islendinga sem þar eru bú- settir. I Kristjaniu búa 10 Islendingar og vinna þeir flestir fyrir sér með því að selja hass. I heróinhverfinu í og um- hverfis Istedgötu eru aftur á móti engir landar um þessar mundir. Aö sögn dönsku lögreglunnar voru 5 íslenskir heróínneytendur þar fyrir hálfu ööru ári en þeir viröast hafa gufaö upp. — sjábls.2 _] EIR. Heróinistar húka ó hominu sínu i Istedgötu í Kaupmannahöfn. Það er verifl afl bifla eftir nsssta „fixi". DV-mynd EIR. á Skaga- firðiínótt Kvistur SK 58, fimm tonna plast- bátur, sökk í gærkvöldi á Skaga- firði. Þrir menn voru á bátnum og björguöust þeir allir eftir að hafa veriö í gúmbjörgunarbáti í klukku- stund. Það var kl. 23.15 er báturinn Friðrik Sigurðsson frá Olafsfirði heyrði kall frá Kvisti á RAS 12 þar sem beöið var um aðstoð — bátur- inn væri að sökkva úti við Ingveld- arstaðahólma viö Reykjaströnd, 15 sjómílur frá Sauðárkróki. Bátar frá Sauðárkróki og Hofsósi fóru til leitar og einnig ms. Lagarfoss sem lýsti upp svæöið. Einnig fóru menn frá björgunarsveit SVFI á Sauðár- króki á f jörur viö Skagaströnd. Það var Blátindur SK 88 sem kom skip- verjum á Kvisti tU bjargar ki. 00.15 í nótt eftir að ms. Lagarfoss hafði fundiðbátinn. -SOS „Þegar ég kom hingað tók ég loka- skrefið. Eg var reyndar meö eitthvaö slíkt í huga áður en ég fór frá Pól- landi,” segir Rundsztuk Jerzy, Pól- verjinn sem hefur dvaliö hér á landi í hálfgerðum felum frá því í október á síðasta ári. Hann var einn af áhang- endum pólska knattspymuliðsins, Wisla Kraká, sem kom hingað til lands tU að spila við Vestmannaeyinga. Rundsztuk ákvað að verða eftir og reyna að komast tU Kanada. Nú er sá draumur að rætast því í dag leggur hann af stað til Kanada. Hann er 29 ára og stundaði nám við tækniskóla áður en hann fór frá heimalandi sínu. En hvers vegna Kanada? „Mig langar að fara til bróður míns sem býr þar. Kanada er ríkt land og áhugavert. Fólk sem býr þar Ufir eðli- legu lífi og við góð lífskjör,” segir Rundzstuk. ' Hann segir að hann hafi talið víst að sér yrði ekki leyft að fara frá Póllandi sem útflytjandi. Það sé heldur ekki einfalt mál að fara beint frá PóUandi og erfitt aö sækja um innflutningsleyfi þaöan. „Það eru að miklu leyti póUtískar ástæöur fyrir því að ég fer frá heima- landi mínu. En ekki siður efnahagsleg- ar,” segir hann. Hann vUl Utið tala um ástandið í Póllandi en segir aö það sé ekki gott að búa þar núna. Þann tíma sem hann hefur verið hér hefur hann dvaUð hjá fjórum pólskum fjölskyldum og unnið ígripavinnu hjá Pólverjum búsettum hér. Hann segist vera mjög ánægður með dvöUna hér. „Mig langar til að þakka útlendinga- eftirUtinu fyrir fljóta og vinsamlega hjálp. Einnig öllum Pólverjum og fuU- trúa kanadíska sendiráðsins hér á landi,” segir Rundsztuk og lætur hug- ann reika tU Kanada. APH Búifl er afl draga flakifl af Berviklnni, sem sökk fyrir utan Rif, A land. Hér é myndinni sést þegar jarflýta dregur afturhluta Bervfkur upp í fjöru. Flakifi verfiur brennt. DV-mynd Ægir Þórflarson. Steingrímur Hermannsson á beinni línu DV í kvöld bein lína til forsætisráðherra kl. 19.30-21.30 Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, verður á beinni Unu DV í kvöld. Beina Unan hefst kl 19.30 og stendur tU kl. 21.30. Síminn er 686611. Miðstjórnarfundi Framsóknar- flokksins lauk á sunnudag en þar var Steingrímur endurkjörinn formaður flokksins. Málefni flokksins og rikis- stjómar Steingríms eru því í brenni- depli. Tveir flokksformenn hafa nýlega verið á beinni Unu DV, Jón Baldvin Hannibalsson og Þorsteinn Pálsson. I báðum tilvikum „logaði” Unan til formannanna. Ekki er að efa að svo verður einnig í kvöld. Þvi eru les- endur beðnir að vera mjög stutt- orðir, bera fram eina spurningu — í mesta lagi tvær stuttar — svo að sem flestir komist að. Endurtekið skal að beina Unan er í kvöld — þriðjudagskvöld — hefst kl. 19.30 og stendur tUkl. 21.30. -JH. Steingrfmur Hermannsson for- ssatisréflherra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.