Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Síða 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985.
^ Kóngsins
Nýjatorg
Kristjanía
Tívolí
Eitur í
Höfri/- ~~RtriKW
Rjómais, 40 krónur.
Presturínn í
Kaupmannahöfn:
Þakkar
kuldun-
um litla
vitleysu
„Það hefur veriö óvenjulega lítið
um að ég hafi þurft aö vera að skipta
mér af Islendingum vegna fíkniefna-
vandræða að undanfömu,” sagði
séra Ágúst Sigurðsson, prestur í
Kaupmannahöfn, í samtali við DV.
Að sögn Kaupmannahafnar-
prestsins er alltaf eitthvaö um þaö að
hann sé beðinn um að grennslast
fyrir um Islendinga sem aðstand-
endur heima á Islandi hafa áhyggjur
af. „Þetta eru yfirleitt krakkar sem
búa i Kristjaníu og hafa lent í ein-
hverri vitleysu. Svo hitti ég slangur
af vandræðamönnum þegar ég er
beöinn um að túlka við réttarhöld
yfir löndum okkar,” sagði séra
Agúst.
-EIR.
Kristjanía
fullaf
íslendingum,
HERÓÍNISTARNIR
ERU GUFAÐIR UPP
Islensku heróínistamir í Kaup-
mannahöfn em gufaðir upp. Danska
lögreglan hefur ekki hugmynd um
hvað hefur orðiö af þeim.
„Fyrir hálfu öðru ári þurftum við
alloft aö hafa afskipti af 5
Islendingum hér á Vesturbrú sem
sannanlega versluðu með og neyttu
heróíns,” sagði Leif Aastrand hjá
dönsku fíkniefnalögreglunni í
samtali við DV. „Þetta fólk er horfið
af götunum og viö höfum ekki
hugmynd um hvert það fór. Ætli þaö
sé ekki í Amsterdam.”
Fjórir karlmenn og ein
kona
Hópur sá er hér um ræðir saman-
stóð af fjórum karlmönnum og einni
stúlku. Þá hefur DV vitneskju um
enn eina íslenska stúlku sem er í
viðjum heróínhelvítisins en hún mun
vera búsett í Lundúnum þar sem hún
bíður þess að sambýlismaður hennar;
losni úr fangelsi. Sá er erlendur
ríkisborgari og hlaut dóm vegna
fíkniefnaviðskipta.
Að sögn Leif Aastrand verður
fíkniefnavandamálið í Kaupmanna-
höfn æ umfangsmeira með hverlu
árinu sem liður. Aldur þeirra er;
neyta kannabisefna lækkar og
heróínsjúklingum fjölgar. Dauði er
daglegt brauð I þessari skugga-
veröld.
Hass, pulsur og hvítt duft
Kaupmannahöfn er full af
eiturlyfjum og aðgangur aö þeim
auöveldur. Að kaupa hass er ekki
meira átak en aö kaupa pulsu og í
melluhverfinu í Istedgötu standa
heróínsjúklingamir og bjóða gestum
og gangandi hvítt duft fyrir ógnar-
verð. Þeir skipta hundruðum og það
er dapurlegt að horfast í augu viö þá.
Augasteinamir eins og títuprjóna-
hausar, húðin þvöl og bólótt og ekki
leggja þeir mikið upp úr klæðaburöL
I þessum félagsskap hafa fjölmargir!
Islendingar verið þó enginn sé þar 1
þessa dagana — vonandi.
Hasssala er lika vinna
I nokkurra kílómetra fjarlægö, í
Krístjaniu, búa aftur á móti 10 Is-
lendingar. Ungt fólk og flestir hafa
ofán af sér og vinna við hasssölu.
„Það er lika vinna,” eins og einn Is-
frá Kaupmannahöfn
lendingurinn sagði í samtali við DV.
Þeir búa mismunandi vel. Þeir sem
hafa verið þarna hvað lengst hafa
komið sér bærilega fyrir en vistar-
verur annarra likjast einna helst
sorphaug.
Það er hægt að hafa bærilegar
tekjur af hasssölu innan girðingar í
Kristjaníu. Grammið kostar um 150
íslenskar krónur og Islendingarnir
sem stunda smásöluna geta grætt 60
krónur á hverju grammi sem þeir
koma út. Þá getur einnig verið
ábatasamt að fara í söluferðir yfir
Eyrarsund til Svíþjóðar.
Hættulegt í Kristjaníu
„Það er hættulegt fyrir okkur aö
fara inn í Kristjaniu,” sagði Leif
Aastrand hjá fíkniefnalögreglunnL
„Þegar við heimsækjum staðinn
gætum við þess vel aö vera fjöl-
mennir og það má kallast gott ef við
sleppum út aftur án þess að hafa
fengið skrámu. I heróínhverfinu í og
umhverfis Istedgötu er aftur á móti
rólegra. Við höfum gætur á heróín-
istunum og þekkjum þá alla,” sagði
Leif Aastrand.
I þeirri deild fíkniefnalögreglunn-
ar sem hefur með eftirlit að gera eru
55 menn og eru þeir allir vopnaðir. A
siöasta ári lögðu þeir hald á 122 kíló
af hassi, 5 kíló af heróíni og 12
milljónir í peningum. Þetta er lítil-
ræði miðað við allt þaö magn sem er í
umferð í Kaupma nnahöf n.
Heróín í endaþarmi
Algengast er að heróínið komið til
Kaupmannahafnar frá Amsterdam
Leif Aastrand hjá ffkniefnalögreglunni I Kaupmannahöfn: — Gleðikonur nö I heróln. Þœr þurfa ekki að
liggja undir karimðnnum é meðan. DV-mynd -EIR.
þar sem verðið er snöggtum lægra.
Heróinsjúklingarnir fara gjarnan
sjálfir í innkaupaferð, fela efnið i
endaþarmi og blanda það þrefalt er
heim er komið. Að sögn Leif
Aastrand færist það mjög i aukana
aö gleðikonur í Kaupmannahöfn fari
í slíkar innkaupaferöir.......þær
þurfa þá ekki að liggja undir karl-
mönnum til að fjármagna heróín-
neyslu sína,” sagði Leif.
„Amatör” drepur átta
Er DV heimsótti aðalstöðvar
dönsku fíkniefnalögreglunnar í síð-
ustu viku var þar allt í hers höndum.
Menn hlupu um ganga, ruku á milli
síma og flokkar ' manna voru
sendir niður í Istedgötu. Upp hafði
komist að allt of sterkt heróín var í
umferð og höfðu þegar 8 manns
látist. „Þetta er einhver andskotans
„amatör” sem hefur sett þetta í um-
ferð. Það fer enginn heilvita maður
aö selja óblandaö heróín. Þó ekki
væri nema peninganna vegna,”
sagði Leif Aastrand. -EIR.
ÓDÝR EITURLYF
Hér fer é eftir verð á eiturlyfjum i Kaupmannahöfn. Innan sviga er verð é íslandi:
Hass 150 krónur (700), heróin 9.000 krónur (7), kókain 3.000 krónur (8.000),
amfetamin 1.800 krónur (4.000).
Þé má geta þess að amfetamín er helmingi ódýrara í Svíþjóð en Kaupmannahöfn.