Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRIL1985. Kjaradómur: Þarf að rannsaka launakjörin meira „Eigi að færa laun ríkisstarfsmanna fyrir dagvinnu til samræmis við launakjör á almennum markaði þarf frekari rannsókna við jafnframt þvi sem hækkun dagvinnulauna hjá ríkis- starfsmönnum, umfram hækkun hjá öðrum, kallar á endurskoðun vinnutil- högunar og greiðslna fyrir fasta yfir- vinnu hjá þeim ríkisstarfsmönnum, sem hennar hafa notið,” segir m.a. í dómi Kjaradóms sem birtur var í gær. Þar kemur fram að dómurinn telur að rannsaka þurfi betur þann mismun sem sagður er vera milli ríkisstarfs- manna og annarra á frjálsum markaði. „Málflutningur hér fyrir dómi hefur leitt í ljós að ekki er einfalt mál að kveða upp úr um það, hver séu sam- bærileg kjör. Svipuðu máli gegnir um samanburð á því, hver séu hliðáæð störf. Þá er heldur ekki gefið, að lög- mál einkarekstrar og opinbers rekstr- ar séu þau sömu,” segir einnig í dómi Kjaradóms. 1 álitá meirihluta dómsin, kemur fram að allt bendi til þess að ríkisstarfsmenn hafi dregist aftur úr öörum hvað laun snertir. Hins vegar Launahækkunin: Kennarar hækkuðu um 17 prósent Samkvæmt bráðabirgöaútreikn- ingum launamáladeildar ríkisins er meðaltalshækkun ríkisstarfsmanna um 14 til 15 prósent. Niðurstöður Kjaradóms voru ekki birtar fyrr en eftir hádegi í gær. I dómnum kemur ekki glöggt fram hversu miklar prósentuhækkanir hafa orðið. Til að reikna út þá stærð verður aö taka tillit til margra þátta. I gær var unnið að þessum útreikn- ingum en ekki var endanlega búið að ganga frá þeim. Samkvæmt fyrirliggjandi útreikn- ingum hækka kennarar í HlK, bæði í grunnskólum og framhaldsskólum, að meðaltali um 17—18 prósent. Fjöldi kennara er um 46 prósent af ölium aöildarfélögum innan BHMR. Ef þessi hópur er tekinn út úr kemur i ljós að meöaltalshækkun annarra félaga innan BHMR er um 12 prósent. Hjúkrunarfræðingar og dýra- læknar hækkuðu um 20 prósent. Lög- fræðingar, arkitektar, matvæla- fræðingar og náttúrufræðingar hækkuðu um 10 prósent. Ef kennarar eru ekki taldir með er hækkun umfram BSRB á bilinu 2—4 prósent. Reiknað er meö að 8 prósent hækkun svari til þess sem BSRB hefur fengið núna. Kennarar eru með hærri umframhækkun en BSRB en samt svipaða og kennarar innan BSRBfenguásínumtíma. APH treystir dómurinn sér ekki til aö dæma út frá þeim gögnum sem liggja fyrir vegna þess að þau séu túlkuð á marga vegu. I dómnum kemur þó fram að í fram- haldi af þessum rannsóknum og fleiri atriöum eigi sóknaraðilinn (BHMR) rétt á nokkurri leiðréttingu launa um- f ram það sem vamaraöili hefur boðið. Fulltrúi ríkisins í dómnum skilar sérálitl 1 því kemur fram að hann leggst gegn þessari hækkun. Hann Kjaradómur afl störfum. Frá vinstri á myndinni eru Pátur Ingólfsson, Jón Rnnsson, Benedikt Blöndal, formaður dómsins, Marianna Jónsdóttir ritari, Ólafur Nilsson og Jón G. Tómasson. varar við því aö verulegar launa- hækkanir umfram aðra launþega geti haft alvarleg áhrif á þjóðarbúiö og komið af staö veröbólgu. Þá skilar einnig fulltrúi BHMR í dómnum sérat- kvæöi og leiðir að því rök að kauphækk- anirnar heföu átt að vera mun meiri. I Kjaradómi áttu sæti Benedikt Blöndal, sem var formaður dómsins, Jón Finnsson, Olafur Nilsson, Jón G. Tómasson og Pétur Ingólfsson. APH Þolinmæðin á þrotum — segir Stefán Ólafsson, formaður launamálaráðs BHMR .JCjaradómur hefur ekki þorað að kveða upp dóm um jöfn dagvinnulaun og hefur því frestaö stóru leiðréttingunni. Viðbrögð okkar eru mikil vonbrigöi. Viö erum búin að leggja fram þreföld gögn um muninn á dagvinnulaunum ríkisstarfsmanna og annarra. Okkur þykir nóg vera rann- sakað og þetta dæmi liggi ljóst fyrir. Félagsmönnum finnst þeir vera búnir aö bíða nógu lengi. Sannast að segja held ég að þolinmæði manna sé á þrotum og að með þessum dómi stefni í upplausnarástand í ríkis- kerfinu,” segir Stefán Olafsson, for- maður launamálaráös BHMR, um niðurstöður Kjaradóms. „Við fáum ekki einu sinni það launa- skrið sem varð hjá ASI í fyrra. Þaö er meðal annars vegna þess að Ásmundur Stefánsson og Vilhjálmur Egilsson sáu ástæðu til þess að birta greinargerð sem hafði þaö markmið eitt að vinna skemmdarverk á okkar málflutningi,” segir Stefán. Stefán segir að með þessum dómi sé öllu slegið á frest og háskólamenn sitji nú uppi með þaö aö vera úr öllum tengslum við alla sambærilega hópa og að það verði ekki þolað. Hann bendir á að með þessum dómi fái háskólamenn ekki þær hækkanir sem er verið að semja um núna við viðmiðunarhópa þeirra, eins og hjá Flugleiðum þar sem samið var um kauphækkanir yfir 35 prósent. „Eg sé ekki fram á annað en að í framhaldi af þessu verði víötækar uppsagnir hjá kennurum og fólki í öðrum aðildarfélögum,” segir Stefán Ölafsson. APH 2 til 4 prósent umfram aðra hópa — segir Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins „Þessar hækkanir eru verulega meiri en við höfðum vonaö og talið að forsendur hefðu verið fyrir,” sagði Indriöi H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins, um niður- stööurKjaradóms. Indriði sagði að aðalatriðið væri að aðildarfélögin innan BHMR hefðu ekki fengið sambærilegar hækkanir og aðrir fengu í haust, eins og t.d. BSRB. „Þetta eru að hluta til hækkanir sem BHM hafði ekki fengið. Eg reikna með því að þær hakkanir séu um 8—10 prósent sem BSRB og áðrir launþegar höfðu fengiö áður,” segir Indriði. Hann bendir því á að ekki sé svo mikill munur á þessum hækkunum miöaö við aðra eins og ætla mætti í upphafi. Umframhækkunin er um 2—4 prósent hjá flestum aðildarfélögum miðað við BSRB en hækkun kennara meiri. Hins vegar mun hún vera svipuð því sem kennarar innan BSRB hafa fengið í gegnum sér- kjarasamninga og almenna samninga. APH I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Hlustað á útvarpsfréttir Ríkisútvarpið efndi til skoðana- könnunar á dögunum. Niðurstööur hennar liggja nú fyrir eins og kirfi- lega hefur vcriö tíundað i Ríkisút- varpinu. I ljós kemur að rúmlega tveir af bverjum þrem Islendingum opna fyrir útvarpið á degl hverjum. Flestir hlusta á fréttir. Þetta finnst forráðamönnum og fréttastofu Ríkis- útvarpsins meiriháttar tíðindi. Fréttastofan hefur haft það sem aðalfrétt hjá sér í marga daga að upplýsa okkur, sem hlustum á frétt- ir, að við hlustum á fréttir. Ennfrem- ur er okkur sagt frá því af starfs- mönnum Ríkisútvarpsins að fólki hafi í þessari skoðanakönnun þótt starfsmenn Rikisútvarpsins hæfir starfsmenn. Þeir hafa einnig glaðst yfir þessum óvæntu fréttum og hafa sagt okkur f rá því i f réttum. Nú er því þannig háttað hér á landi að aðeins eln útvarpsstöð er leyfð. Ríklsútvarpið hefur einkarétt og ein- okun á öldum ljósvakans. Ef menn vilja fylgjast með fréttum öðru vísi en í gegnum blöð, sem bara koma út einu sinni á dag, neyðast menn tii að kveikja á útvarpinu til að fá fregnir af þvi sem er að gerast hér heima og eriendis. Það kemur þvi engum á óvart nema þeim sem hjá Ríkisút- varpinu starfa að landsmenn hlusti stöku sinnum á útvarpsfréttir. Hlust- endur hafa ekki í önnur hús að venda. Satt að segja kemur manni það spánskt fyrir sjónir að i skoðana- könnun sem þessari skuli ekkl koma í ljós að hver einasti tslendingur, sem kominn er til vits og ára, kveiki á útvarpsfréttum á degi hverjum. Mættu forráöamenn Ríkisútvarpsins hafa áhyggjur af því að einn af hverjum þrem tslendingum nennir ekki að kveikja á fréttunum i stað þess að taka andköf af sjálfsánægju yfir þ vi að á þær sé hlustað. Ef hér ríkti einokun á blaðamark- aðnum væri litill vandi fyrir einokun- arblaðiö að efna tii skoðanakönnunar og finna út að blaölö væri leslð. Eða ef hér fengist bara ein kaffi- tegund sem skoðanakönnun upplýsti að væri drukkin. t Sovétríkjunum er aðeins einn flokkur starfandi, einn frambjóðandi i hverju kjördæmi og ein útvarps- stöð. Ef þeir i Sovét efndu tii skoð- anakönnunar þar sem spurt væri hvort fólkið kysi flokkinn eða fram- bjóðandann, eða hlustaðl á útvarp, þá þarf ekki að efast um að niður- staðan yrðl flokknum, frambjóðand- anum og útvarpsstöðinni jákvæð. Blessað fólkið hefur ekki um annað að velja enda er ekkl spurt um ágæti eða vinsældir, hvorkl hjá Sovétinu eða Ríkisútvarpinu. Fólk hlustar á útvarpsfréttir tll að hlusta á fréttir en ekki Rikisútvarpið. Það vill bara svo til að Ríkisútvarpið situr eitt um hituna og þvi f er sem f er. Þessi skoðanakönnun er sjálfsagt framkvæmd og kynnt til að undir- strika ágæti einokunarlnnar. Fer vel á því að s jálfstæðismaðurinn Markús öm taki á móti fagnaðarlátunum i stofnunlnni þegar það spyrst meðal starfsmannanna að almenningur hlusti á fréttatima til að hlusta á fréttir. Og að þelr séu taldir hæfir. Markús öm og fleiri sjálfstæðis- menn hafa nefnilega talaö um það um árabil að einokun Ríkisútvarps- ins væri af hinu illa meðan annarra flokka menn stjórauðu einokuninni, en nú er hún greinilega af hinu góða þegar frelsispostulinn er tekinn við stjóminni. Og til hvers á líka að vera að heimta frelsi i útvarpsmálum þegar skoðanakannanir benda til þess að almennlngur hlusti á Ríkisút- varpið? Elnokunin er i finu lagl elns og skoðanakönnunin hefur sannað. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.