Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Qupperneq 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRIL1985.
5
Flugslysið á Grænlandi:
„Hírðust í flakinu
í 30 stiga frosti”
— sagði John Henson, lögreglumaður í Syðri Straumsf irði,
en vélin brotlenti í3000 metra hæð og fannst eftir
9 klukkutíma leit
„Kraftaverk er eina orðiö um þetta.
Það skilur enginn hvemig þeir lifðu
slysið af. Vélin splundraðist er hún
skall á ísnum og síðan hírðust
mennirnir í næstum 9 klukkustundir í
flaki vélarinnar í 25 til 30 stiga frosti.”
Það er John Henson, lögreglumaður
í Syðri Straumfirði á Grænlandi, sem
þannig mælir. DV hafði samband við
hann í gærmorgun vegna brot-
lendingar Fokker-flugvélarinnar frá
Nicaragua á laugardagskvöld á
vesturströnd Grænlands.
Eins og fram kom í gær í DV voru
fimm menn um borð í vélinni. Tveir
þeirra fórust, Jórdani og Filipps-
eyingur. Þrír lifðu af, Indverji,
Bandaríkjamaður og Jórdani.
Það var Indverjinn sem flaug
vélinni, Bandaríkjamaðurinn var sigl-
ingafræðingur. Það er hægt að taka
undir orð John Henson lögreglumanns
um að kraftaverk sé eina orðið.
Flugvélin skall á isnum eftir um
klukkustundarflug frá Syðri
Straumsfirði þar sem hún hafði lent til
að taka eldneyti.
„Hún splundraðist gjörsamlega í
nauðlendingunni,” sagði John. Og
bættivið: „Húnbrotlentiíum3þúsund
metra hæð. Mikill kuldi var þarna, um
25til30stigafrost.”
Hann sagði síðan að mennimir hefðu
hírst í flaki vélarinnar það sem eftir
lifði laugardagskvöldsins og fram á
morgun er þeir f undust.
„Þeir fundust eftir mikla leit um
klukkan 5 á súnnudagsmorgun.” I
leitinni tóku þátt bandarískar
herþyrlur og danska lögreglan.
„Nei, það kviknaöi ekki í vélinni við
brotlendinguna,” sagði John er við
spurðum hann um hvort eldur hefði
komið upp í vélinni er hún skall á
ísnum.
Líöan Indverjans og Bandaríkja-
mannsins mun vera allgóð.
Jórdananum líöur hins vegar verr.
Hann er mikið slasaður.
„Það er fyrirhugað að flytja hann á
sjúkrahús í Danmörku, hann er það
alvarlega meiddur. Og ég reikna meö
að Indverjinn og Bandaríkjamaðurinn
veröi nokkra daga enn á sjúkra-
húsinu.”
Fokker-vélin var af gerðinni 27, lxkt
og Fokker-vélar Flugleiða. Hún var á
leið frá Austurlöndum nær til
Nicaragua.
Hingað kom hún á laugardagskvold frá
Skotlandi. Var á aðra klukkustund á
Reykjavíkurflugflugvelli og hóf sig á
loft skömmu eftir klukkan sautján.
Mennimir höfðu átt í einhverjum
vandræðum vegna aukaeldsneytis-
tanka um borð. Klukkustundu eftir að
vélin flaug frá Reykjavík sendi flug-
maðurinn skeyti um að allt væri í
íþróttamaður Akureyrar:
VAR KUKUSKAP-
UR VIÐ KJÖRIÐ?
stakasta lagi, þeir væru ekki í Fokker-flugvél sömu gerðar og sú sem fórst. Sem kunnugt er nota Flug-
vandræðum. -JGH leiflir þessa gerö flugvéla á innanlandsleiðum.
ÓTRÚLEGT
VERÐ
Þetta fallega bíltæki, meö LW—
MW—FM stereo og kassettu, á
aðeins
KR. 4.700,
Passar í flestar geröir bifreiöa.
10 aðrar geröir af bíltækjum, kraft-
magnarar og mikiö úrval af há-
tölurum. ísetning á staönum.
Armúla 38 (Selmúlamegin) 105 Reykjavík
Símar: 31133 - 83177 -
Pósthólf 8933
Frá Jóni Baldvini Halldórssyni —
fréttamanni DV ó Akureyri: — Kóri
Elíson kraftlyftingakappi skilaði
verðlaunum sem hann fékk fyrir að
verða í öðru sæti í kjöri íþróttamanns
órsins á Akureyri 1984 sem fram fór
fyrir stuttu. Þótti honum afrek sín lítils
metin. Halldór Askelsson, knatt-
spyrnumaður úr Þór, lenti í fyrsta sæti
í kjörinu sem hefur valdið vanga-
veltum og blaðaskrifum á Akureyri.
I mánudagsblaði Dags er grein eftir
Gylfa Kristjánsson, íþróttafrétta-
manns blaðsins, þar sem hann
hreinsar sig af grun um að hafa
ástundaö klíkuskap við kjörið. Hann
var í nefndinni, sem sá um kjörið,
ásamt íþróttafréttamönnum Mbl. og
Þjóðviljans og tveimur fulltrúum
IBA. Gylfi segist hafa sannfrétt aö
Knútur Ottesen, formaður IBA, hafi
lýst yfir því að það hafi verið saman-
tekin ráð hjá nefndarmönnum að kjósa
Halldór. — „Undir því plotti vil ég ekki
sitja,” sagði Gylfi í grein sinni.
Knútur sagðist, í samtali við DV,
aldrei hafa sagt þetta. Aöeins að sér
heföi verið sagt að þrír nefndarmenn,
sem aUir eru Þórsarar, hefðu gefið
HaUdóri fullt hús. Hvort í því fælist
kUkuskapur gæti hann ekki sagt um.
Aðspurður sagði Knútur að úrsUtin
hefðu komið sér á óvart.
I gagnrýni um kjörið hefur ekki
verið dregið úr ágæti HaUdórs. Þeir
sem vildu Kára frekar hafa hins vegar
bent á góöan órangur hans hér á landi
og erlendis á kraftlyftingamótum.
Kári hafi auk þess orðið sigurvegari í
öðrum íþróttum en lyftingum.
-JBH/-SOS
VOLKSWAGEN
GOLF
ÞÝSKUR KOSTAGRIPUR
BILL SEM
HÆFIR ÖLL
Hann heíui sannad kosti sína vid islenskai adstœdui sem;
/ kjörínn íjölskyldubíll
/ duglegui atvinnubíll
/ vinsœll bílaleigubíll
/ skemmtilegui sporíbíll
Verð frá kr. 394.000.-
6 ára rydvarnarábyrgd
50 ára reynsla
í bílainnflutningi og þjónustu
[h|HEKLAHF
Laugavegi 170 -172 Sími 21240