Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd STALHF Noröménn veiða áframhval Norðmenn munu halda áfram að veiða hval hvort sem Japanir láta undan bandarískum þrýstingi og hætta sínum hvalveiðum eða ekki, sagði norski sjávarútvegsráðherr- annThorListau. Ráðherrann segir að afstaða Norðmanna sé klár: á meðan lif- fræðilega séð sé ekki hættulegt að veiða hval — hvalastofninn sé ekki í hættu — þá muni Norðmenn halda áfram veiöunum. Norðmenn vonast til að þessi sjónarmið mæti skilningi innan Alþjóða hvalveiðiráðsins, segir ráðherrann. Ef Japanir hætta veiö- unum verða það einungis Norö- menn, Sovétmenn og Perúmenn sem veiða hval. Drepa leiðtogana Stjómarherinn í Afganistan hefur drepið mikilvægan leiðtoga skæruliða í fjallahéraði nálægt Kabúl, aö sögn stjórnmálaflokks hans sem hefur aðsetur í Pakistan. Maulvi Shafiullah dó fyrir viku þegar aðsetur hans varð fyrir mikilli eldfiaugaárás. Hann er annar skæruliðaleiðtoginn sem fellur fyrir nýjum aðferöum sem Sovétmenn virðast hafe ákveðið að beita: að leggja alla áherslu á aö drepa leiðtoga skæruliðanna. NATO-karpum vopnakaup Deilur eru innan Atlantshafs- bandalagsins um vopnakaup hinna ýmsu ríkja bandalagsins. Flestir viðurkenna aö kaupin séu gerð á sérlega óhagkvæman hátt. Til dæmis nota NATO-lönd fjóra mis- munandi skriðdreka og 12 mismunandi gagnskriðdrekavopn. Bandaríkjamenn vilja leysa máliö með því að krefjast þess að NATO samþykki vopnakaup hinna ýmsu ríkja. Þetta vilja stóru Evrópuþjóðirnar — Bretland, Frakkland, og Þýskaland — alis ekki og segja það vera rétt hverrar þjóðar að ákveða sjálf hvaða vopn hún vill kaupa. Þessar þjóðir vilja frekar að samvinna sé um einstaka vopn milli NATO-ríkjanna. Það finnst Bandaríkjamönnum ekki nóg. Umsjón: Þórir Guðmundsson og Guðmundur Pétursson að berjast áf ram Swareddahab, hershöföingi í Súdan, tilnefndi i gær 15 manna rikisstjóm sem mun takast á við óteljandi vanda- mál landsins. Forsætisráðherra í hinni nýju stjóm er læknirinn Al-Gazouli Dafaa-Allah. Varaforsætisráðherra er yfirmaður stjórnmálasamtaka frá Suöur-Súdan. Helstu verkefni stjómarinnar verða aö binda enda á uppreisn skæruliða i suðurtiiuta Súdan, þar sem búa kristnir menn og heiðnir sem ekki sætta sig við múslímska trúarlöggjöf. Líbýumenn styðja þessa skæruliða sem enn haida áfram aö berjast undir forystu John Garang. I fyrsta viðtali sínu skoraði Dafaa-Allah forsætis- ráðherra á Garang að koma að samningaborðinu. En útvarpsstöð sveita Garangs sagöi aö skæmliðarnir myndu halda stríðinu áfram. Sem tilslökun hefur Swareddahab hershöfðingi sagst ætla að hætta við áætlanir um aö skipta suðurhlutanum í þrjár sýslur. Sunnanmenn voru mjög á móti þeirri skiptingu. En Swareddahab, sem likiega hefur enn svo til öll völd, hefur ekki lofað að afnema sharía-lögin, hin múslímsku trúarlög sem giida sem .refsilög iandsins, heldur aöeins að endurskoða þau. Var Neves skotinn? Það segir Shirley Williams en sérfræðingar segja það f ráleitt Margir Brasilíumenn telja að Tancredo Neves, hinn kjömi forseti landsins sem lést á sunnudag, hafi verið skotinn stuttu áður en hann átti að taka viö forsetaembættinu i síöasta mánuði. Þetta segir breski stjórnmála- maðurinn Shirley Williams, sem segir einnig að vinur sinn, erlendur maður með mikla reynslu sem sendimaöur í Brasilíu, hafi skrifað sér og sagt að sjónvarpsfréttamaður hafi séð skot- árásina sem hafi verið tekin upp á kvikmyndafilmu. „Ekið var með Neves í hvelli upp á sjúkrahús daginn áður en hann átti að sverja embættiseiðinn en hann hafði litið mjög vel út þrátt fyrir mjög erfiða kosningabaráttu,” sagöi Shirley Williams. Williams sagði að fréttamaöurinn, sem sá atburðinn, svört kona, sé nú mjög veik á sjúkrahúsi og hópur öry ggis varöa haf i brennt filmuna. öðrum vottum hafi verið sagt að halda sérsaman. Williams lagði til að rannsókn yrði ■ gerö til aö hreinsa „hið góða nafn Brasilíu”. Bandarískur sérfræðingur, sem kallað var á til aðstoðar við lækningu Nevesar, sagði að yfirlýsingar Shirley Williams væru „algjör vit- leysa, stórskrítnar.” Warren Myron Zapol, frá hinum virta spítala í Boston, Massachussetts General Hospital, sagði að Neves hefði dáið úr ígerð. Læknamir sem önnuðust hann hefðu gert allt sem í þeirra valdi hefði staðiö. Bandaríski læknirinn sagði að ekki hefði verið hægt að bjarga Neves jafnvel þó hann hefði verið sendur til Bandaríkjanna. Skæruliðar hóta Fyrirliggjandi í birgðastöð EIR- PÍPUR Israelar bruna burt— Ubanir beriast áfram Endalausar raðir ísraelskra flutningabíla streymdu út úr Tyre- héraöinu í Suður-Líbanon í gær að sögn fólks sem býr á svæðinu. „Það er verið að flytja gífurlegt magn af útbúnaði burt,” sagði einn íbúinn í síma. „Það lítur út fyrir að þeir muni fara frá Tyre mjög fljót- lega.” Heimildir innan öryggislögreglu segja að sprengja við einn veginn hafi skemmt nokkur farartæki í flutninga- lest Israela. Ekki var getið um mannfall. Heimildarmennimir segja aö á laugardag hafi mikil sprengja sprungið nálægt Qasmiyeh brúnni, þar sem farið er yfir Litani ána til svæða sem Israelsmenn halda. Sjónvarpið í Beirút sagði að sjálfs- morðsbílstjóri á bíl með heilt tonn af sprengiefni hefði ráðist á stöð Israels- manna við brúna. Sjónvarpsstöðin sagði að 120 ísraelskir hermenn hefðu faristíárásinni. Israelsmenn hafa ekki viljað staðfesta árásina. Utvarpsstöð kristinna manna í Líbanon sagði aö landsvæöi sem kristnir menn héldu væru undir stöðugum sprengjuárásum frá svæðum múslima, i Sídon og frá búöum Palestínumanna skammt frá Utvarpið sagði aö kristnir menn hefðu hætt aliri skothríð nákvæmlega á þeim tíma sem leiðtogi þeirra, Samir Geagea, hefði ákveðiö sem upphaf vopnahlés. Sveitir múslima virðast ekki hafa samþykkt vopnarhléð og hafa ekki minnstáþað. Síðan bardagar blossuðu upp á ný í Líbanon hafa 111 manns látið lífið og 500 særst. Um 60.000 múslimar og Palestínumenn hafa orðið að yfirgefa heimili sín. einangraðar með plasthúð. Þær eru sérlega með- færilegar og henta vel til notkunar við margs konar aðstæður, t.d. á sjúkrahúsum. Pípurnar fást í rúll- um. 10-22 mm sverar. Auk þess höfum við óein- angraðar, afglóðaðar eirpípur, 8-10 mm í rúllum og óeinangraðar eirpípur 10-54 mm í stöngum. - Aukin hagkvæmni - minni kostnaður - auðveld vinnsla. Borgartúni 31 sími 27222 Múslimskur skœruliði fluttur í sjúkraborum eftir að hann særðist í borgarastyrjöldinni i Líbanon sam hefur magnast mjög undanfama daga. Karami, sem enn heldur forsætis- ráðherraembættinu þrátt fyrir afsögn sína fyrir skömmu, hefur ekki mætt á ráðherrafundi í heiia viku vegna sundurþykkju innan stjórnarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.