Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Page 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985.
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Alfaskeiöi 76, 1. hæö t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Laufeyjar Einarsdóttur, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbanka islands og Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. apríl 1985 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 109. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Hjallabraut 92, Hafnarfirði, þingl. eign Braga Brynjólfssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjaröarbæjar og Veðdeildar Landsbanka islands á eigninni sjálfri föstudaginn 26. apríl iqoc l,| 1K TO Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 109. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1984 og 3. og 17. tölublaöi þess 1985 á eigninni Vesturbraut 18, Hafnarfiröi, þingl. eign Hjalta Hjaltasonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands, Ólafs Gústafssonar hdl., Hafnarfjaröarbæjar, Tryggingastofnunar ríkisins og Sigríöar Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. april 1985 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 109., 112. og 114. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1983 á eigninni Skál, lóö úr Reykjahvolslandi, Mosfellshreppi, þingl. eign Jóns Steinars Árnasonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. og Landsbanka Islands á eigninni sjálfri föstudaginn 26. apríl 1985 kl. 17.30. Sýslumaöurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 109. tölublaði Lögbirtingablaösins 1984 og 3. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Melholti 6, jarðhæð, Hafnarfiröi, þingl. eign Karls J. Valdimarssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Þóroddssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. april 1985 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17. tölublaði þess 1985 á eigninni Arnarhrauni 21, íb. á 2. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Guöna Sörensen, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- banka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 26. apríl 1985 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Framhaldsaðal- fundur Húseigendafélag Reykjavíkur heldur framhaldsaðalfund föstudaginn 26. apríl nk. að Bergstaðastræti 11 A og hefst hann kl. 18.00. Dagskrá: 1. Lagabreytingar. 2. önnur mál. Stjórnin.
Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í eftirtalin verk: Efnisvinnsla II á Norðurlandi vestra 1985 (27000 m3). Verki skal lokið fyrir 15. ágúst 1985. Miðfjarðarvegur um Vesturá 1985. (1,3 km, 21600 m3). Verki skal lokið fyrir 30. sept. 1985. Sauðárkróksbraut: Borgarsandur-Áshildarholt 1985. (1,5 km, 21400 m3). Verki skal lokið fyrir 30. sept. 1985. Skagavegur: Króksbjarg — Laxá 1985. (9,4 km, 41000 m3). Verki skal lokið fyrir 30. sept. 1985. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykja- vík og Sauðárkróki frá og með 22. apríl 1985. Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 6. maí 1985. Vegamálastjóri.
Neytendur Neytendur Neytendur
Það er út i hött afl nlfitirakurflurinn é brauflinu geti orflifl afl helmingi verflsinel Þegar álagnlng er frjóls
ætti nlflurskurflurinn afl vara ókeypis. DV-mynd KAE.
NIÐURSKURDURINN
ALLT AÐ HELMINGUR
BRA UDVERDSINS
Ætti að vera f rír eftir að álagning brauða var gefin f rjáls
Þaö hafa heyrst ýmsar skýringar á
því hvers vegna tekið er sérstakt gjald
fyrir aö sneiða brauð í bakaríum.
Meðal annars þær aö vélar til niður-
skurðarins séu mjög dýrar og einnig að
þær séu rafmagnsfrekar.
Þessi þjónusta er hins vegar mjög
mismunandi dýr. I jan. sl. könnuöum
við verð á niðurskurði í nokkrum
bakaríum. Þá var ódýrasti niöur-
skurðurinn 3,50 en sá dýrasti 10,60. Það
var á brauðum frá Mjólkursamsöl-
unni. Þetta verð hefur breyst síðan
vegna verðbreytinga á brauðum. Nú er
þessi kostnaður helmingur brauðverðs
frá Mjólkursamsölunni.
Frjáls álagning
— frír niðurskurður
1 rauninni ætti þessi niöurskurður
brauða að vera sjálfsögð þjónusta við
neytendur. Það er fáránlegt að taka
sérstakt gjald fyrir niðurskurðinn.
Ekki sist í því ljósi aö álagning á
brauðum hefur verið gefin frjáls. Og
það einnig á hinum svokölluðu vísitölu-
brauðum.
Það þarf þó enn að sækja um leyfi til
Verðlagsráðs til hækkunar á heildsölu-
verði vísitölubrauðanna. Þau eru hin
gamalkunnu brauð, franskbrauð, heil-
hveitibrauö, rúgbrauð, maltbrauð og
sigtibrauð. Hins vegar er álagning á
þessibrauöfrjáls.
Ymsar nýjar tegundir brauða undir
margvíslegum nöfnum eru á boðstól-
um í brauðgerðarhúsum landsins og er
það góð þróun. Þau brauð eru ekki háð
verölagseftirliti á neinn hátt og eru
enda á mjög misjöfnu verði. Hæsta
verðið á frjálsu brauði sem ég man í
svip er 65 kr. en algengt verö á nýbök-
uðum kombrauðum er 35—45 kr. Ofan
á það verð bætist svo niðurskurðurinn
ef brauðið er keypt sneitt.
Það var e.t.v. skiljanlegt að greiða
þyrfti sérstaklega fyrir niðurskurð á
brauðum á meðan verð þeirra var
bundið í viðjar verðlagsákvæða. Nú er
rétt um ár síðan álagning brauða var
gefin frjáls samtímis því að álagning á
aðrar matvörur var einnig gefin frjáls.
Það ætti því ekki að þurfa að greiða
sérstaklega fyrir niðurskurð brauða.
-A.Bj.
Á undanfömum árum hafa nýjar tegundir af brauflum séfl dagsins Ijós.
Mikill óróflur hafur varifl fyrir auklnnl brauflnayslu. Gróft og trefjarikt
braufl ar hollt og akkl svo fltandl — af akkl ar notafl alltof miklfl smjör afla
faltt ólagg. DV-mynd KAE.
Raddir neytenda Raddir neytenda
Reynum að
halda bílnum
„Eg nenni ekki að tíunda í hvað
eyðslan hefur fariö hjá mér, en við
leyfum okkur að eiga bifreiö. Trygg-
ingar og annað í sambandi við bíla er
orðið hreint svínarí fyrir almenning að
greiða. Svo er hálaunamönnum greitt
fyrir slíkan munað að manni skilst,”
segir m.a. í bréfi frá G.J. sem búsett er
úti á landi.
Heimilismenn eru tveir og meðal-
talskostnaðurinn á mann mjög lágur,
innan við 2 þús. kr. Liðurinn „annaö”
er aftur á móti nokkuö hár eöa yfir 28
þús. kr.
„Ot að borða leyfum við okkur ekki
að fara, ekki förum viö í siglingar, en
við ætlum að halda bílnum svo við
komumst á milli bæja. .
Eg vonast til að forráðamönnum
þjóðarinnar takist að jaf na muninn.
Bestukveðjur, G.J.”
-A.Bj.
Tekjurnar
aðeins brot
af eyðslunni
„Hæ, hæ!
Eg held ég verði að gera grein fyrir
þessum rosatölum,” segir m.a. í bréfi
frá ungri konu úti á landsbyggðinni.
Hún var meö mjög skikkanlegan
matarkostnaö á mann, en liðurinn
„annað” var skuggalega hár eöa rúm-
lega 202 þúsund kr.
„Við tókum lán, fórum til Reykja-
víkur og keyptum eldhúsinnréttingu og
heimilistæki.
Við höfðum 34.736 kr. í tekjur í mars
svo þið sjáiö að það er ekki nema brot
af eyðslunni. Bæ, bæ.
Herdís.”
A.Bj.
4 þús. á mán.
í tóbak
„Hæ, neytendasíða!
Eg sendi þér minn annan seðil.
Tóbak er ekki í upphæðinni „mat og
hreinlætisvörum”,” segir ma. í bréfi
frá konu sem búsett er úti á lands-
byggðinni. Hún er með meðaltals-
kostnað upp á 3056 kr. í marsmánuði.
Liðurinn „annað” hjá henni var upp á
kr. 36.145,00.
„Mig minnir að ég hafi haft tóbak
inni í þessari tölu í febrúar. Við
reykjum bæði einn pakka á dag svo
þetta er um 4 þús. kr. í hverjum
mánuði.”
Meðaltalið ífebrúar
Vel má vera að tóbakið hafi veriö
inni í febrúartölunum en þá var meöal-
talið kr. 3553 kr. hjá þessari sömu fjöl-
skyldu.
Já, það er fljótt að koma í eyðsluna
þegartóbakiðerannarsvegar. -A.Bj.