Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Síða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985. Lesendur Lesendur 15 YfirUt*mynd af Laugardalnum og mottunnl. „Gervigrasvöllurinn” íLaugardal: Köllum hann mottuna Gunnar V. Andrésson skrifar: „Fram vann Víking á gervigras- vellinum í Laugardal í gærkvöldi.” Mikið finnst mér þetta leiðiniegt nafn sem fest hefur við hið ónáttúrlega grasteppi í Laugardalnum. Það þyrfti að kalla völlinn einhverju stuttu, hnyttnu nafni. Min tillaga er að orðið mottan verði fyrir valinu. „Gervigrasið” er líka ekkert annað en stór, græn motta. Þetta kæmi líka af staö skemmtilegum orðaleikjum. Þannig hefði tilvitnunin hér að ofan getað hljóðað: ,,lR-ingar héldu sig á mottunni í gærkvöldi þegar Framarar rúlluðu þeim upp”. Menn brygðu sér ekki lengur á völlinn, heldur væri viðkvæðið að líta á mottuna. Auglýsing Samhjálpar: Kennslubókardæmi í ofbeldi Þarftu að selja bíl? SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN. SMÁAUGLÝSINGADEILD - ÞVERHOLT111 - SÍMI27022. Bílar til sölu Höfum opnaö nýja röra- og fittingsdeild. Armitage hreinlætistæki. Reyniö viöskiptin. Byggingavöruverslun Reykjavíkur -A-* JXJm. SÍÐUMÚLA 37 REYKJAVÍK SÍMAR: 83290 - 83360 VERKFÆRI í MIKLU ÚRVALI ÍGMS3ÍHID Jóhannes Þórðarson hringdi: Mig langar að vekja athygli á sjón- varpsauglýsingu frá Samhjálp sem mér finnst vera kennslubókardæmi í ofbeldi. Mér var hugsað til þessarar auglýsingar þegar ég las um tvær hnífaárásir' sem voru gerðar um helgina. Ég tel þessa auglýsingu af- skaplega óæskilega. Öli Ágústsson, forstöðumaður Sam- hjálpar: Á blaðsiöu þrjú í Heilagri ritningu er sagt frá bræðrunum Kain og Abel: ,,Og er þeir voru á akrinum réðst Kain á Abel bróður sinn og drap hann.” Sjónvarpið vakni af blundi Húsvíkingur hringdi: Eg hef lengi ætlað að kveðja mér hljóðs og reyna að ýta við sveita- mennskunni sem viðgengst hjá sjón- varpinu. Mér er spurn; hvenær ætlar þessi stofnun að vakna af þyrnirósar- blundi sinum og veita landsmönnum þjónustu sem er sambærileg við það sem gerist erlendis? Þar sem um einokun Ríkisútvarps á sjónvarpsút- sendingum er að ræða hér á landi þá ber því siðferðileg skylda til að vera ekki eftirbátur annarra. Fyrir það fyrsta finnst mér aö útsendingar ættu að vera á fimmtudögum og að sjón- varpið sýndi frá morgni til kvölds um helgar. Svo ætti að sýna bamaefni á morgnana. Ég veit ekki betri bamapíu en sjónvarpið og það létti manni hús- verkin ef börnin væru róleg fyrir framanskjáinn. Spjall um veðrið Bárður Ásfjallsás skrifar: Enn hefur þjóðin tórt langan vetur og staðiö af sér óveður í efnahagslífi. Framundan em bjartar sumarnætur en mikið hræðist ég veöráttu þjóð- málanna. Stjómin hyggur á nýtt Framkvæmdastofnunarævintýri og kýs að kalla það Þróunarfélag í þetta skipti. Þar fjúka 300 milljónir út í buskann. Mikið vona ég að haustið verði eitthvað mildara. Allar götur síðan hefir ofbeldi fylgt mannkyninu. Hundmð manna, karla og kvenna líða af sálarkreppu, innilokun, öfund og hatri og kunna enga leið út úr því myrkri. Bókin, Reyndu aftur maður, er skrifuð um slíka og fy rir slíka — hún er um leið út úr sálarkreppunni. Eg trúi ekki að sjónvarps- auglýsingin sýni neinum Islendingi neitt sem hann ekki áður haföi marg- oft séð, og oft miklu verra. KJÖTMIÐSTÖÐIN | Laugalæk 2. Simi 686511. Ætlar þú til útlanda í sumar? Ferðablað DV fylgir blaðinu á morgun. í því er sagt frá helstu utanlandsferðum sem í boði eru hjá ferðaskrifstofunum í sumar. Auk þess eru viðtöl við fólk sem hefur ferðast mikið. Má þar nefna viðtal við þrjár ungar stúlkur sem ferðuðust um Asíu í átta mánuði á síðasta ári. Blaðið er 32 síður að stærð og fylgir verð með öllum ferðunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.