Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Page 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985.
HAMÓNÍKU-
UNNENDURl
Munið vorfagnað félagsins miðviku-
daginn 24. apríl (síðasta vetrardag)
á Hótel Borg.
Þar verða maettir til leiks allir helstu
kapparfélagsins.
Svo fáum við góða gesti, svo sem Valdimar Auðunsson
og co frá hinu nýstofnaða F.H.U. Rangæinga og Hreppa-
manninn Garðar Olgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 20.00.
P.S. Skemmtun fyrir alla sem kunna að meta hina
seiðandi tóna harmóníkunnar.
FJÖLfiRAUTASKÚUNN
BRE1ÐH0UI
ELDRI NEMENDUR,
STOFNFUNDUR
Nemendasambands Fjölbrautaskólans í Breiðholti verður
haldinn miðvikudaginn 24. apríl 1985 í hátíðarsal skólans
kl. 21.00. Allir nemar FB, sem lokið hafa námi af einhverri
braut skólans, eru hvattir til að mæta.
Dagskrð:
— Stofnun nemendasambandsins.
— 10 ára afmæli skólans.
— önnur mðl.
Undirbúningsnafndin.
verður opin
miðvikudag 24. apríl
TIL KL. 22
og fimmtudaginn 25. apríl
KL. 18-22.
og munu þær auglýsingar
birtast í föstudagsb/aði.
— kemur EKKI út sumardaginn fyrsta.
GLEÐILEGT SUMAR
SMÁ-AUGLÝSINGADEILD,
Þverholti 11,
I gærkvöldi
I gærkvöldi
í MINNIHLUTAHÓPL.
Þið fyrirgefið — og ég hef grun um
ykkur sé svo sem sama — þó ég segi
næsta fátt um dagskrá útvarps og
sjónvarps í gærkvöldi. Eg var í þeim
svolitla minnihlutahópi sem hlustaði
á rás númer eitt; mig minnir að
nýleg hlustendakönnun hafi sýnt að
einungis 5—12% leggi við eyrun á
þessum tíma. Það gera 11.750—
28.200 hræður samkvæmt minum
fátæklega prósentureikningi. En
sannleikurinn er sá að dagskráin fór,
eins og það heitir, inn um annað
eyrað og út um hitt; þó man ég að
það brast skyndilega á með Sverð-
dansinum.
Skyldi meirihlutinn — þessi 88—
95% — verða kátur og komast í gott
skap þegar Rolf Johansen byrjar að
senda út með sínum eina starfs-
manni? Eg vísa til fréttar í DV í gær
um að hann og fleiri ætli að starf-
rækja sjónvarpsstöð — fáist leyfi —
sem aöeins sýni skemmtiefni og
auglýsingar. Það liggur í hlutarins
eðli að skemmtiefnið verður
eingöngu erlent og þarf vart að
hnusa lengi út í loftið til að uppgötva
hvaðan vindurinn blæs. Þeir sem
vilja afnám einkareksturs Rikisút-
varpsins hljóta að vera í svolitið
óskemmtilegri aðstöðu. Þeir þræta
fyrir allar ásakanir um peninga-
menn í gróðabralli en fyrst taka
bisnessmenn yfir félag sem stofnað
var um frjálsan útvarpsrekstur og
nú þetta. Það er Uklega ekki seinna
vænna að þeir sýni svo ekki verði um
villst að upp á eitthvað meira verði
boðið.
Hlugi Jökulsson.
Jónas Bjarnason, framkvæmdastjóri FÍB:
Hlusta ekki
í vinnutímanum
Eg fýlgist með ríkisfjölmiðlum
eftir þvi sem tími er til. A morgnana
hlusta ég oftast á morgunútvarpið,
sem mér finnst mjög gott, svo og
fréttir. Mér finnst svo alltaf gaman
að kveikja á síðdegisútvarpinu. Eg
hlusta hins vegar aldrei á daginn í
vinnutímanum. Um helgar reyni ég
að ná þáttunum Hér og nú sem eru
ákaflega þægilegir og léttir. I sjón-
varpi horfi ég á fréttir og svo hef ég
komist upp á lag með að fylgj ast með
þáttunum Lifandi heimur. Fleiri
þætti má tína til, eins og Derrick,
Kastljós og bresk framhaldsleikrit. I
heild finnst mér ríkisútvarpið standa
sig veL Ef eitthvað er þá þætti mér í
lagi að FlB fengi inni í útvarpinu
með þátt t.d. hálfsmánaðarlega, eins
og tíðkast í Bretlandi, þar sem um-
ferð og akstur y rðu í brennidepU.
Þorgrímur G. Guðjónsson húsasmiöur
lést 11. apríl sl. Hann fæddist i Saurbæ
á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu
18. nóvember 1920. Foreldrar hans
voru Ragnheiður Bjömsdóttir og
Guðjón Guðmundsson. Þorgrímur hóf
nám í húsasmiði og stundaði húsa-
smíöar frá árinu 1941—64, en þá hóf
hann störf hjá heildsölufyrirtækinu
Járn & gler og starfaði þar upp frá því.
Fyrir nokkrum árum gerðist hann
meðeigandi í fyrirtækinu og var for-
stjórí þess síðan. EftirUfandi eigin-
kona hans er Lilja Björnsdóttir. Þeim
hjónunum varð þríggja barna auðið.
Utför Þorgríms verður gerð frá Foss-
vogskirkju i dag kL 13.30.
SKIPPER
405 Trillumælar
Hagstætt verð
og greiðsluskilmálar
2 ára ábyrgð
Friðrik A. Jónsson h.f.
Skipholti 7, Reykjavik,
Simar 14135 — 14340.
Kristin Þorvaldsdóttir hússtjómar-
kennari er látin. Hún fæddist 12. mars
1888 á Flugumýri í Skagafiröi. For-
eldrar hennar voru Þorvaldur Arason
og kona hans Anna Vigdís Steingríms-
dóttir. Krístín lauk kennaraprófi frá
Flensborgarskóla árið 1906.
Matreiðslunám stundaði Krístin við
Statens Lærerhöjskole í Kaupmanna-
höfn og lauk þaöan prófi 1916. Kristín
var gift Helga Guðmundssyni en hann
lést árið 1943. Utför Kristínar verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Oliver Steinn Jóhannesson bókaútgef-
andi lést 15. april sl. Hann fæddist i
Olafsvík 23. maí 1920, sonur hjónanna
Jóhannesar Magnússonar og Guð-
bjargar OUversdóttur. OUver stofnaði
sina eigin bókaverslun árið 1957 og rak
hana ásamt bókaforlagi til dauðadags.
EftirUfandi eiginkona hans er Sigriður
Þórdfs Bergsdóttir. Þeim hjónum varð
þrigg ja bama auöiö. Utför hans verður
gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag kL
13.30.
Emma Ölafsdóttir frá Isafiröi, sem
andaðist 16. apríl, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 24.
aprilkl. 10.30.
Daniel Slgurðsson andaðist á heimili
sínu aðfaranótt 21. apríl.
Valdimar Sigurðsson, Leifsgötu 24
Reykjavík, andaöist á Land-
spítalanum 20. apríl. Jarðarförin aug-
lýst síðar.
Karitas Bergmann Karlsdóttir, Há-
teigi 14 Keflavík, andaðist föstudaginn
19. apríl.
Maria Slgfúsdóttir, Klapparstig 37,
lést 18. apríl sl. á Mallorca.
Steinunn Guðmundsdóttlr frá Norð-
firði, Hverfisgötu 35 Reykjavík, verður
jarðsungin frá HaUgrimskirkju
miðvikudaginn24. aprílkl. 13.
Kristrún Jóhannsdóttir, Skeljagranda
6 Reykjavík, verður jarðsungin frá
Aðventkirkjunni í Reykjavík miðviku-
daginn 24. april kl. 15.
Gabbaði
Mogginn
skipstjóra?
Landhelgisgæsluflugvélin TF-SYN
stóð togarann Klakk frá Vestmanna-
eyjum að veiðum á friðuðu svæði á
Selvogsbanka í gærmorgun. Skipstjór-
anum var vísað til hafnar í Ey jum.
I réttarhaldi, sem hófst klukkan 15 í
gær og var f ramhaldið í morgun, hefur
skipstjórinn haldið því fram að sam-
kvæmt frétt í Morgunblaðinu hafi hann
ekki verið á friðuðu svæði. I frétt
Morgunblaðsins virðist hins vegar
veramisritun.
-KMU.
Spáð fimm
stiga f rosti
Veðurstofan spáir kulda næstu daga.
Akveðin noröanátt verður búin að ná
völdum á hádegi á morgun með um
fimm stiga frosti að jafnaði um land
allt. Eljagangur verður fyrir norðan
og austan. A laugardag verður farið að
draga úr norðanáttinni.
-KMU.
Blómaskreytingar
viö öll tækifæri
(--------------'N
LOFTAST0ÐIR
Sala-Leiga
Leitið upplýsinga:
BREIÐFJÖRÐ
BUKKSMWUA-STEYPUMÓT-VBaCPALLAR
SIGTUNI 7 - 121 REYKJAVIK-SlMI 29022