Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Síða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRIL1985.
31
Þriðjudagur
23. april
Sjónvarp
19.25 Hugi frændi á ferð. Breskur
teiknimyndaflokkur. Þýðandi:
Guðni Kolbeinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingarogdagskrá.
20.40 Nýjasta tækni og vísindi. Líf-
fræðistofnun Háskóia ísiands. Að
þessu sinni er allt efni þáttarins
heimafengið sem er nýmæli. Lýst
er margs konar rannsóknum sem
fram fara á vegum Líffræðistofn-
unar Háskólans, svo sem á hita-
þolnum örverum, útbreiðslu jurta,
lyktarskyni laxfiska og vistfræði
fjörunnar svo aö eitthvað sé nefnt.
Vegna eðlis þessara rannsókna er
þátturinn öðrum þræði innlend
náttúrulífsmynd. Umsjón og hand-
rit: Sigurður H. Richter. Dag-
skrárgerð: Baldur Hrafnkell Jóns-
son.
21.25 Derrick. Lokaþáttur — Ognir
næturinnar. Þýskur sakamála-
myndaflokkur. Aðaihlutverk:
Horst Tappert og Fritz Wepper.
Þýðandi: VeturliðiGuðnason.
22.25 Á ferð og flugi. Bein útsending.
Umræðuþáttur um ferðaþjónustu
og ferðalög í sumar, utanlands og
innan. Umsjón: Agnes Bragadótt-
ir, blaöamaður.
23.20 Fréttirídagskrárlok.
Útvarp rás1
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman. Umsjón: Sólveig
Pálsdóttir.
13.30 „Lög við ljóð eftir Halldór Lax-
ness”.
14.00 „Eldraunin” eftir Jón Björns-
son. Helgi Þorláksson les. (21).
14.30 Miðdegistðnleikar, Tveir þætt-
ir úr Serenöðu í d-moll op. 44 eftir
Antonin Dvorák. Kammerblásara-
sveitin í Prag leikur; Martin Tur-
novsky stjórnar.
14.45 Upptaktur. — Guðmundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. a. „Háry
Janos”, hljómsveitarsvíta eftir
Zoitán Kodály. Fílharmóníusveit-
in „Hungarica” leikur; Antal Dor-
ati stjórnar. b. „Rapsódía” fyrir
píanó og hljómsveit eftir Béla Bar-
tók. Fílharmóníusveit Sofíuborgar
leikur; DimiturManolovstjórnar.
17.10 Síðdegisútvarp. —18.00 Fréttir
á ensku. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Kvöldfréttir.Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. SigurðurG. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 A framandi slóðum. Oddný
Thorsteinsson segir frá Thailandi
og leikur þarlenda tónlist. Seinni
hluti. (Aðurútvarpað 1981).
20.30 Mörk láös og lagar — Þættir
um náttúruvernd. Karl Gunnars-
son líffræöingur talar um lif á
grunnsævi.
20.50 „Fossinn og tíminn”. Baidvin
Halldórsson les ljóð eftir Rósu B.
Blöndals.
21.00 tslensk tónlist.
21.30 Utvarpssagan: „Folda” eftir
Thor Vilhjálmsson. Höfundur les.
(18).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöidsins.
22.35 Frá tónleikum tslensku hljóm-
svcitarinnar i Bústaðakirkju 11.
apríl sl. Stjórnendur: Guömundur
Emilsson og Þorkell Sigurbjörns-
son. a. Kvartett í F-dúr K. 368b eft-
ir Wolfgang Amadeus Mozart. b,
„Attskeytla”, oktett eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. c. Kvintett í Es-
dúr op. 16 nr. 2 eftir Ludwig van
Beethoven. Kynnir: Asgeir Sigur-
ppQÍíisnn
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Útvarp rás II
10.00-12.00 Morgunþáttur. Stjóm-
andi: Páil Þorsteinsson.
14.00—15.00 Vagg og velta. Stjóm-
< andi: Gísli Sveinn Loftsson.
15.00—16.00 Með sinu lagi Lög leikin
af íslenskum hljómplötum. Stjóm-
andi: SvavarGests.
16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur. Stjóm-
andi: KristjánSigurjónsson.
17.00-18.00 Frístund. Unglinga-
þáttur. Stjómandi: Eövarö Ing-
ólfsson.
Þriggja mínútna fréttir sagöar
klukkan: 11.00, 15.00, 16.00 og
17.00.
Utvarp Sjónvarp
Hverau vel heyrir laxlnn — það er afl segja þegar hann er i vatnlnu?
Útvarp kl. 20.30 og sjónvarp kl. 20.40:
Líffræði á „heimavelli”
Líf fræði er áberandi þáttur í dagskrá
útvarps og sjónvarps í kvöld. Þar
verða tveir þættir sem báðir tengjast
líffræði. Báðir eru þeir á svipuðum
tíma og verða því áhugamenn um
þessi mál að hafa bæði útvarpið og
sjónvarpið í gangi og safna þar með að
sér fróðleik úr báðum áttum.
I útvarpinu, rás 1, er þátturinn Mörk
láðs og lagar kl. 20.30. Þar talar Karl
Gunnarsson líffræöingur um líf á
grunnsævi. Er þetta erindi hans í
þáttaröð sem flutt er í útvarpi einu
sinnií viku.
I sjónvarpinu hefst þátturinn
Nýjasta tækni og vísindi kl. 20.40.
Umsjónarmaður hans er Sigurður H.
Richter. I þættinum verður að þessu
sinni fjallað um Líffræðistofnun Há-
skóla Islands.
Þar verður sagt frá margs konar
rannsóknum sem fram fara á vegum
Líffræðistofnunarinnar, er þar t.d.
sagt frá vistfræði fjörunnar, lyktar-
skyni laxfiska, útbreiðslu jurta og
mörgufleira.
-klp-
Sjónvarpkl. 21.25:
DERRICK
SEGIR BLESS!
I kvöld kveðja þýski lögreglumaður-
inn Derrick og Harry samstarfsmaður
hans íslenska sjónvarpsáhorfendur.
Þá verður sýndur síðasti þátturinn af
15 sem sjónvarpið fékk með myndum
um þessa geðþekku lögreglumenn.
I allt hefur íslenska sjónvarpið sýnt
49 þætti um Derrick. Hann sást fyrst á
skjánum hér árið 1982 en þá voru
sýndir 13 þættir. Arið eftir voru þætt-
irnir 21 og í síðustu lotu voru það 15
myndir sem við fengum að sjá um
Derrick.
Þær myndir voru allar gerðar á
árinu 1983, og enn er veriö að gera
þætti um Derrick í Þýskalandi. Því er
ekki loku fyrir það skotið að við fáum
að sjá hann aftur á skjánum, en
hvenær það verður er ekki vitað.
I þessum síðasta þætti ber meira á
Harry en Derrick sjálfum. Þátturinn
heitir Ognir næturinnar. Hann gerist í
Miinchen eins og margir þættirnir. I
borgarhverfi þar lifir fólk við ógn og
skelfingu því þar hafa þrjár ungar
konur veriö myrtar á skömmum tíma.
Derrick sér aö við svo búið má ekki
standa og fer í málið. Er Harry aö
sjálfsögðu meö honum og hann fær til
liös við sig lögreglukonu sem á að
hjálpa honum að finna morðingjann.
-klp-
Útvarp, rás2, kl. 17.00:
AF HVERJU RODNA ÉG?
Sálfræðingurinn fær margar spurningar í þættinum Frístund
Þáttur Eðvarðs Ingólfssonar, Frí-
stuhd, er í útvapinu, rás 2, í dag kl.
17.00. Kemur hann víða við í þessum
þætti sínum eins og í fyrri þáttum. Má
þar m.a. nefna starfskynningu — í
þetta sinn tekur hann fyrir viðskipta-
f ræði — og kynnir söngvarann vinsæla,
DaVidBowie.
I tveim síðustu þáttum hefur Sig-
tryggur Jónsson, sálfræðingur og
starfsmaður við unglingaráðgjöf
ríkisins, svarað bréfum sem unglingar
hafa sent þættinum þarsemþeirbiðja
um svar við ýmsum vandamálum
sínum.
Svo mikið af bréfum hefur borist að
Sigtryggur mun halda áfram að mæta í
þáttinn til að grynnka eitthvað á stafl-
anum. Mörg bréfin innihalda að vísu
mjög svipaðar spurningar og þarf
hann því ekki að taka hvert þeirra
fyrir. Flest ungmennin spyrjast fyrir
um kynlíf, svo og hvað þau eigi að gera
í sambandi við samskiptavandamál
heima fyrir, og margt annaö í þeim
dúr. Mörg þeirra vilja líka vita hvers
vegna þau roðni ef einhver talar við
þau, af hverju þau svitni í hópi félaga
en ekki annars staðar og ýmislegt
fleira. Er margt fróðlegt sem kemur
fram í þessum bréfum — og svörum
sálfræðingsins — og á efnið í flestum
tilfellum alveg eins erindi til annarra
en bréfritara.
-klp-
Sjónvarp kl. 22.25:
Áferð
ogflugi
I kvöld verður í sjónvarpinu þáttur í
beinni útsendingu sem fjallar um
f erðalög og ferðaþjónustu í sumar bæði
utanlands og innan. Agnes Braga-
dóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu,
sér um þáttinn og fær hún til sín ýmsa
aðila til að fjalla um þessi mál.
-klp-
Veðrið
Vindur snýst til norðanáttar með
kólnandi veðri um land allt þegar
liöur á daginn, kaldi eða stinnings-
kaldi og slydda norðanlands en
hægari og léttir heldur til syðra.
Veðrið hér
ogþar
Island kl. 6 í morgun: Akureyri
rigning 9, Egilsstaðir skúr á
síðustu klukkustund 7, Höfn létt-
skýjað 3, Keflavíkurflugvöllur
þoka 7, Kirkjubæjarklaustur
, skýjað 7, Raufarhöfn rigning 4,
Reykjavík súld 6, Sauðárkrókur
rigning 7, Vestmannaeyjar þoku-
móða7.
Utlönd kl. 6 í morgun: Bergen
léttskýjað 2, Helsmki skýjaö 0,
Kaupmannahöfn rigning 3, Osló
léttskýjað 2, Stokkhólmur hálf-
skýjað 1, Þórshöfn skýjað3.
Utlönd kl. 18 í gær: Algarve hálf-
skýjað 13, Amsterdam léttskýjað 7,
Aþena léttskýjað 14, Barcelona
(Costa Brava) þokumóða 15, Berlín
léttskýjað 14, Chicagó skýjað 26,
Feneyjar (Rimini og Lignano)
rigning á síöustu klukkustund 14,
Frankfurt skýjað 18, Glasgow skúr
10, Las Palmas (Kanari) skýjað
21, London léttskýjað 10, Los
Angeles skýjað 17, Lúxemborg
skýjað 16, Madrid alskýjað 12,
Malaga (Costa Del Sol) rigning á
síðustu klukkustund 14, Mallorca
(Ibiza) rigning á síðustu klukku-
stund 13, Miami úrkoma í grennd
27, Montreal hálfskýjað 16, New
York mistur 19, Nuuk rigning 1,
París skýjað 16, Róm skýjað 17,
Vín léttskýjað 17, Winnipeg skýjað
16, Valencia (Benidorm) skýjað 16.
Gengið
23. aprfl 1985 kL 09.15.
Eining kL 12.00 Kaup iah Tolgengi
Dolar 41220 41640 40,710
Pund 52,411 52664 50,287
Kan. doliar 30,406 30,495 29,748
Dönskkr. 3,7721 3,7831 3,6397
Norekkr. 4,6774 4.6911 4.5289
Sænskkr. 4,6471 4,6607 4.5171
Fi. maik 6,5047 66236 62902
Fra. franki 4,4430 4,4559 42584
Balg. franki 06726 0.6746 0,6467
Sviss. franki 16,3994 18,4472 15,3507
HoS. gySini 116791 126139 11,5098
V-þýskt mark 136693 13,6088 13.0022
ft. ilra 062124 062130 j 0,02036
Austurr. sch. 16289 1,9345 1,8509
Port. Escudo 02411 02418 02333
Spð. pssoti 02428 02435 0,2344
Japanskt yan 0.16608 0,16656 0,16083
irskt pund 42695 42618 40,608
SDR (sórstök *■
dráttarréttindi)4U136 416341
Sfcntvari vtgns gwiglMkránlngar 221*0.
Bíla sýning
Laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
INGVAR Sýnirtgarsalurir iH HELGASON HF. m/Rauðagerði, aimi 33560