Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1985, Blaðsíða 2
2
DV. FIMMTUDAGUR11. JULI1985.
Sá stutti hafði ástæðu til að vera
kátur í gær...
Vaganjan, grannur og spengileg-
ur, kominn í efsta sætið.
Sax er hryggur. Það gengur líka
allt á afturfótunum hjá honum.
DV-myndir JLÁ/Biel.
MiHisvæðamótið:
SLYSALEGT TAP
MARGEIRS
Frá Jóni L. Árnasyni, fréttaritara
DV i Biol:
Sovéski stórmeistarinn Sókolov
haföi heppnina meö sér í skák sinni
við landa sinn, Pólúgaévskí, í 7. um-
ferð millisvæðamótsins í Biel sem
tefld var í gær. Sókolov rataði í mikl-
ar ógöngur eftir fáa leiki, þó svo að
hann hefði hvítt í skákinni, og varð
að skipta upp í endatafl með peði.
Það leit sannarlega ekki gæfulega út
en hann náði að halda jafntefli og
hefur þá enn forystu á mótinu með
5,5 vinninga. Vaganjan komst upp að
hlið hans með sigri gegn Spánverjan-
um Martin en síðan kemur Banda-
ríkjamaðurinn Seirawan með 5
vinninga.
ÍJrsÍit í 7. limferð:
Margeir—Short 0—1
Rodriguez—Quinteros biðskák,
Sókolov—Pólúgaévskí jafnt
Van der Wiel—Torre biðskák
Vaganjan—Martin 1—0
Jansa—Ljuboievié, jafnt
Partos—Seirawan 0—1
Andersson—Lí jafnt
Gutman—Sax 1—0
Margeir gerði afleit mistök í u.þ.b.
jafnri stöðu gegn enska stór-
meistaranum Nigel Short; lék ridd-
ara frá g3 til f5 en eftir svarleik Eng-
lendingsins varð hann að hörfa til
baka og síðan til e2 þar sem hann var
upphaflega. Með þessu kastaði Mar-
geir fjórum leikjum á glæ og Short
náði tökum á stöðunni. Er skákin fór
í bið eftir 40 leiki var hann búinn að
tvöfalda hrókana á 2. línu og Margeir
var í krappri vörn. I framhaldinu
tapaði hann peði og eftir það varð
ekki rönd við reist. Margeir varö að
gefast upp eftir 50 leiki.
Skák Jansa við Ljuboievié vakti at-
hygli. Jansa fómaði peði og lét öllum
illum látum og svo virtist sem frels-
ingi hans á 7. línu yrði Ljuboievié
þungur í skauti. En Ljubo var ekki af
baki dottinn og tókst að töfra af hon-
um peðið með því að gefa báða hróka
sína fyrir drottningu Jansa.
Vinningsmöguleikamir voru þó enn
Jansa megin en í tímahraki sást hon-
um yfir aðra brellu Júgóslavans og
þar með var jafnteflið í höfn. Jansa
hefur komið á óvart með óvenju f jör-
legri taflmennsku en Ljubo verður
að fara að herða sig ef hann ætlar á-
fram.
Sama má segja um Andersson sem
fjarlægist markið meö hverri skák.
Til þess að komast í áskorenda-
keppnina þarf að vinna a.m.k. nokkr-
ar skákir en Andersson er allur í
jafnteflunum. Annars var skák hans
viö Lí sviptivindasöm. I Iokin fóraaði
Lí skiptamun og náði kínversku þrá-
tefli.
Sax er heillum horfinn og tapaði
örugglega eftir að hafa lent í miklu
tímahraki. Skák Vaganjans og Mart-
ins var ævintýraleg. Erfitt að átta
sig á því hvor átti betra tafl. I tíma-
hraki Spánverjans tókst Vaganjan
svo að króa drottningu hans af úti á
jaðri og fanga hana.
Rodriguez frá Kúbu er sennilega
með unniö á móti Quinteros og Torre
kveðst sömuleiðis vera með unnið
tafl. Hann hefur drottningu á móti
hrók og riddara Hollendingsins.
En lítum á skák Sovétmannanna
og sjáum hvemig Sókolov tókst að
bjarga sér út úr erfiðleikunum.
Hvítt: AndreiSókolov.
Svart: Lev Pólúgaévskí.
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 S. Rc3 a6 6. f4 Dc7 7. Rf3
s6.
Efftir 7. — e5 væri komin upp hefð-
bundin staða úr f4-afbrigðinu svo-
nefnda. Pólúgaévskí stýrir taflinu yf-
ir í annan farveg.
8. Bd3 Rc6 9. 0—0 bS 10. f5?!
Vafasöm framrás því að nú verður
e5 reiturinn ævinlega á valdi svarts.
Það er ekki hægt að máta Pólú-
gaévskí með höndunum.
10. - Be7 11. a4 b4 12. Re2 0-0
13. Rg3 exf5 14. exfS Bb7 15. Bg5
H616. Bxf6 Bxf617. Dc1 re5
18. Rxe5 Dc5 +
Þar með fær hvítur ekki vott af
mótspili. Ef hins vegar 18. — Bxe5
nær hvítur að grugga taflið með 19. f6
o.s.frv.
19. Khl Dxe520. Rh5
Hvítur er kominn með erfiða stöðu
og hyggst freista gæfunnar í enda-
tafli.
20. - Dxb2 21. Hbl Dxcl 22.
Rxf6+ gxf6 23. Hfxcl a5 24. Kgl
Hfc8 25. c3 Bd5 26. Kf2 Hxc3 27.
Hxc3 bxc3 28. Hb6 Hc8 29. Bc2
Bc6
Hótar 29. — Bxa4. Svo viröist sem
hvítum séu allar bjargir bannaöar en
hann sér vonarglætu í hróksenda-
tafli.
30. Ha6l Bxa4 31. Bxa4 c2 32.
Bxc2 Hxc2+ 33. Kf3 Hc5 34. g4
Hc3+ 35. Kf4 Hc4+ 38. Kg3 a4 37.
Hxd6 a3 38. Hd8+ Kg7 39. Ha8
Hc3 40. Kg2 h5 41. gxh5 Kh6 42.
h4l
Biðleikurinn. Svarti kóngurinn
komst ekki nær og staöan er jafn-
tefli. „öll hróksendatöfl eru jafn-
tefli,” segir máltækið.
42. - Kxh5 43. Ha4
— og hér sömdu þeir um jafntefli.
Staðaneftir7 umferðirerþessi:
I. —2. Vaganjan, Sókolov 5,5
3. Seirawan 5
4. VanderWiel4,5ogbiðskák
5. Jansa 4,5
6. -9. Gutman, Short, Ljuboievié,
Pólúgaévskí 4.
10. Torre3,5ogbiðskák
II. Andersson3,5
12,—13. Margeir Pétursson. Lí 3
14. Rodriguez 2 og biðskák
15. Partos 2
16. Sax 1,5
17. Martin 1
18. Quinteros 0,5 og biðskák.
Á morgun hefur Margeir svart
gegn Seirawan.
JLÁ/-IJ.
| Nnfn/þjöíland Stw a z T 4 H 2 9 10 1L n 13 ii E 16 ]8
Htrtía.Syání AM 243 0' Vt O o o h o - 0
Z V/Kína AM EESS3 0 h 'Jx 77
3 Terre,Tíl.ey'nim SM 2535 i V J 0 4
4- Sbkelav, 5M 2555 J / T / 'k
5 'V.á.WíelfHpUandí SM 2520 J b / 1 'k
? Andtrýon, $víþjóS SM 2590 !l 'Il % 2 'k h 'k
7 MtOatiian.ScvH SM 2625 j 7 1 2 h 1 h
$ Tekk/vakíu 5M 2W 7 h 'k o l 1 '
91 Rndficcias, Kúba SM Z5o5 0 •k h o
10 autman/MmH Am 2485 1 h 0 vT o J 7
if Vartcö, övíss AM 2425 0 'U 2 h % o o
K Mareteír'PéUrsson am 2550 0 % 4. j o 7
)5 5hcrt, ZvaUwdí SM 2575 'k 0 2 / íi, 2 l
Seimwan, tíandar. sh 2570 [k ‘k 'h i 'h j /
u Sax, Vnoverýalandíín 2535 o o ■ Jr o J o
16 QuinUrvs, /hv,tím 5* 2525 o 0 o ■h o 0
17 Hubcievic, dúa- SM 2615 h T •h T ‘k h U
!? 'PóUíVaevitcí, Sovét SH 2600 7 h % 'Jl o T T □ □
Þróunarfélagið í fæðingu:
Hefur rekstur
með haustinu
Nú er unnið að stofnun svokallaðs
Þróunarfélags. Tveir menn, þeir
Gunnlaugur Sigmundsson, forstjóri
Framkvæmdastofnunar, og Baldur
Guðlaugsson lögfræðingur, vinna nú að
því að gera drög að samþykktum
félagsins.
„Við erum að gera drög að sam-
þykktum félagsins sem síðan verða
kynnt fyrir almenningi og væntan-
legum hluthöfum,” segir Gunnlaugur.
Eins og lesendur rekur kannski
minni til samþykkti Alþingi undir lok
þinghaldsins að stofna Þróunarfélag.
Tilgangur þess félags er í stuttu máli
sá að reyna að örva nýsköpun í ís-
lensku atvinnulífi og efla arðsama at-
vinnustarfsemi. Félagið verður hluta-
félag. I samþykkt Alþingis er m.a. rætt
um að bankar og tryggingarfélög geti
gerst hluthafar í Þróunarfélaginu.
— Geta ekki allir gerst hluthafar?
„Við miöum okkar vinnu viö það aö
þetta sé opið öllum sem vilja leggja fé í
þetta fyrirtæki,” segir Gunnlaugur.
Þegar lokið verður við að semja
þessi drög að samþykktum félagsins
verður farið í það verk að smala
saman hluthöfum. Aö því loknu, sem
stendur til að lokið verði í lok septem-
ber, verður haldinn aðalfundur. Þar
veröur stjóm félagsins kosin og í kjöl-
far þess ráðnir starfsmenn. Hvenær
félagið hefur rekstur er ekki enn vitað
en það ætti að geta orðið í október eða
nóvember.
Margir kynnu að spyrja hvort hér sé
á ferðinni nýtt „Milljónafélag”?
„Eg á ekki von á því að Þróunar-
félagið verði það í þeim skilningi sem
ég held að átt sé við. Hins vegar vona
ég að þeir sem hafa peninga afgangs í
þessu þjóðfélagi séu tilbúnir aö taka þá
áhættu sem vissulega felst i því að
fara út í nýsköpun. Menn eru að tala
um að fara út í eitthvað nýtt sem ekki
hefur verið reynt áður. Þetta getur
ekki gerst með tómu lánsfé. Þetta
verður að byggjast á því að menn séu
tilbúnir að setja eigiö fé í ný fyrirtæki.
Á það á eftir að reyna,” segir Gunn-
laugur Sigmundsson. APH
Mikill samdrátturí
sígarettureykingum íár:
Fimm milljónum
færri sígarettur
Tóbakssalan frá ÁTVR fyrstu sex
mánuði ársins var 3,6% minni en á
sama tíma í fyrra og er þetta í fyrsta
sinn síðan 1977 sem tóbakssala hefur
dregist saman ef miöað er við fyrri
helming ársins. Þessi samdráttur er
rakinn til margvíslegra aðgerða'gegn
reykingum, mikillar umfjöllunar í fjöl-
miölum, nýrra laga og takmörkunar
reykinga.
Sala á sigarettum fyrstu sex mánuði
ársins var nær fimm milljónum minni
en á sama tíma í fyrra, eða sem nemur
2,2%. Þetta hefur gerst þótt sígarettur
séu nú hlutfallslega ódýrari en oft áöur
en það út af fyrir sig stuðlar að aukinni
sölu. Nú hafa selst 270 þúsund færri
vindlar en á sama tima í fyrra. Það
þýðir 3,6% minni sölu.
Sala á píputóbaki hefur minnkað um
16,8%, neftóbakssalan um 12% og
hefur aldrei verið minni á öldinni.
Gjald það sem ríkissjóður leggur á
píputóbak og neftóbak hefur hækkað
mun meira en gjald af öðrum
tegundum tóbaks og gæti það skýrt
þessa miklu minnkun í sölunni.
-pá
Fjalakötturinn
í byggingarnef nd
„Það verður að gera einhverjar ráð-
stafanir vegna ástands Fjalakattar-
ins,” sagði Hilmar Guðlaugsson, for-
maður byggingarnefndar Reykja-
vikur, í samtali við DV. Á byggingar-
nefndarfundi í dag verður m.a. rætt
um Fjalaköttinn.
Vakið var máls á ástandi hússins í
DV í síðasta mánuði. Síðan hefur lög-
reglan lýst því yfir að húsið sé púöur-
tunna og hætta stafi af útigangs-
mönnum sem þar dveljast. Fjala-
kötturinn líefur nú um alllangt skeið
verið eitt helsta aðsetur útigangs-
manna í borginni.
Eigandi hússins var byrjaður aö
rífa það en reif aðeins hluta. Leigj-
endur eru að jarðhæð hússins.
„Hér er um tvo kosti að ræða.
Annaðhvort að ganga þannig frá
húsinu að það sé mannhelt eða að fjar-
lægja það,” sagði Hilmar. .eh.