Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1985, Side 29
DV. FIMMTUDAGUR11. JOLl 1985.
29'
Peningamarkaður
Innlán með sórkjörum
AlþýAubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri.
Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til
þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára getá losað
innstæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og
eldri meö 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
arnir eru verðtryggðir og meö 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reíkníngar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 9% vöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lifeyri frá líf-
eyrissjóðum eða almannatryggingum.
Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Vextir eru 29% og ársvöxtum 29%.
Sérbók fær strax 27% nafnvexti, 2% bætast
siðan við eftir hverja þrjá mánuði sem inn-
stæða er óhreyfö, upp í 33% eftir níu mánuði.
Arsávöxtun getur orðið 33.5%. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sérvöxtum
eróbundin með31% nafnvöxtumog31% ársá-
vöxtun sé innstæða óhreyfð. Vextir eru færðir
um áramót og þá bomir saman við vexti af
þriggja mánaða verðtryggðum reikningum.
Reynist ávöxtun þar betri er mismuninum
bætt við.
Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skilar hærri á-
vöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju inn-
leggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Iðnaðarbanklnn: A tvo reikninga i bank-
anum fæst IB-bónus. Overðtryggðan 6
mánaða reikning sem ber þannig 31% nafn-
vexti og getur náð 33,4% ársávöxtun. Og verð-
tryggðan 6 mánaða reikning sem ber 3.5%
vexti. Vextir á reikningunum eru bornir
saman mánaðarlega og sú ávöxtun valin sem
reynist betri. Vextir eru færðir misserislega
30. júní og 31. desember.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin meö
31% nafnvöxtum. Vextir eru færðir um ára-
mót. Eftir hvern ársfjórðung eru þeir hins
vegar bornir saman við ávöxtun á 3ja mánaða
verðtryggöum reikningum. Reynist hún betri
gildir hún umræddan ársfjórðung.
Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði
eða lengur:
Samvmnubankinn: Innlegg á Hávaxta-
reikning ber stighækkandi vexti. 22,0% fyrstu
2 mánuðina, 3. mánuðinn 23,5%, 4. mánuðinn
25%, 5. mánuöinn 26,5%, 6. mánuðinn 28%.
Eftir 6 mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 30,5%.
Sé tekið út standa vextir þess tlmabils það
næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er32,8%.
Vextir eru bornir saman við vexti á 3ja og 6
mánaða verðtryggðum sparireikningum. Sé
ávöxtun þar betri er munurinn færður á
Hávaxtareikninginn. Vextir færast misseris-
lega.
Ctvegsbankinn: Vextir á reikningi með
Abót er annaðhvort 3% og full verðtrygging,
eins og á 3ja mánaða verðtryggðum spari-
reikningi eða ná 33% ársávöxtun, án verð-
tryggingar. Samanburður er gerður
mánaðarlega, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22% þann almanaksmánuð.
Verslunarbankinn: Kaskó-reikningurinn er
óbundinn. Um hann gilda fjögur vaxtatimabil
á ári, janúar-mars, apríl-júní, júli-
september, október-desember. I Iok hvers
þeirra fær óhreyfður Kaskó-reikningur vaxta-
uppbót sem miöast við mánaöarlegan út-
reikning á vaxtakjörum bankans og hag-
stæðasta ávöxtun látin gilda. Hún er nú ýmist
á óverðtryggðum 6 mán. reikningum með
29.5% nafnvöxtum og 32.9% ársávöxtun eða á
verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3%
vöxtum.
Sé lagt inn á miöju tímabili og innstæða
látin óhreyfð næsta tímabil á eftir reiknast
uppbót allan spamaðartímann. Við úttekt
fellur vaxtauppbót niður það tímabil og vextir
reiknast þá 22% án verðtryggingar.
Ibúðalánareikningur er óbundinn og með
kaskó-kjörum. Hann tengist rétti til lántöku.
' Sparnaður er 2—5 ár, lánshlutfall 150—200% ,
miðað við sparnað með vöxtum og verðbót-
um. Endurgreiðslutími 3—10 ár. Utlán eru
með hæstu vöxtum bankans á hverjum tíma.
Spamaöur er ekki bundinn viö fastar upp-
hæðir á mánuði. Bankinn ákveður hámarks-
lán eftir hvert sparnaðartímabil. Sú ákvörðun
er endurskoðuð tvisvar á ári.
Sparisjóðir: Trompreikningurinn er óbund-
inn, verðtryggöur reikningur, sem einnig ber
3.0% gmnnvexti. Verðbætur leggjast við
höfuðstól mánaðarlega en grunnvextir tvisv-
ar á ári. A þriggja mánaða fresti er gerður
samanburður við sérstaka Trompvexti.
Nýtur reikningurinn þeirra kjara sem betri
eru. Trompvextimir em nú 30% og gefa
32.25% ársávöxtun.
Rikissjóður: Spariskirtelni, 1. flokkur A
1985, em bundin í 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau
eru verðtryggð og með 7% vöxtum, óbreytan-
legum. Upphæðir em 5.000, 10.000 og 100.000
krónur.
Spariskirteini með vaxtamiðum, 1. flokkur
B 1985, em bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990.
Þau em verðtryggð og með 6,71% vöxtum.
Vextir greiöast misserislega á timabilinu,
fyrst 10. júlí næstkomandi. Upphæðir em 5,10
og 100 þúsund krónur.
Sparlskírteini með hreyfanlegum vöxtum
og vaxtaauka, 1. flokkur C1985, eru bundin til
10. júli 1986, í 18 mánuði. Vextir eru
hreyfanlegir, meðaltal vaxta af 6 mánaða
verðtryggðum reikningum banka með 50% á-
lagi, vaxtaauka. Samtals 4,8% nú. Upphæðir
eru 5,10 og 100 þúsund krónur.
Gengistryggð spariskirteini, 1. flokkur SDR
1985, em bundin tii 10. janúar eða 9. april 1990.
Gengistrygging miðast við SDR-reiknimynt.
Vextir eru 9% og óbreytanlegir. Upphæðir em
5.000,10.000 og 100.000 krónur.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabank-
anum, hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og
verðbréfasölum.
Útlán lífeyrissjóöa
Um 90 lifeyrissjóðir em í landinu. Hver
sjóöur ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána-
upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. Lán em á bilinu 144.000—600.000
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru
verðtryggö og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti.
Biðtími eftir lánum er mjög misjafn, breyti-
legur milli sjóða og hjá hverjum sjóði eftir
aðstæðum.
Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi
skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá
fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir em vextir í eitt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar
á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin
verður þá hærri en nafnvexömir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22%
nafnvöxtum verður innstæðan í lok þess tíma
1.220 krónur og 22% ársávöxtun í því tilviki.
Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuði á 22%
vöxtum reiknast fyrst 11% vextir efUr sex
mánuði. Þáer innstæðan komin í 1.110 krónur
og á þá upphæö reiknast 11% vextir seinni sex
mánuðina. Lokatalan verður þannig 1.232,10
og ársávöxtun 23.2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3.5% á mánuði eða 42% á
ári. DagvexUr reiknast samkvæmt því
0.1166%.
Vísitölur
Lánskjaravísitalan í júli er 1178 stig en var
1144 stig í júní. Miðað er við 100 í júní 1979.
Bygglngarvísitalan 1. júlí 1985 var 216 stig
miðað við 100 í janúar 1983, en 3205 miðað við
eldri grunn. 1. janúar var vísitalan 185 sUg á'
móU 2745 á eldri grunni. Og 1. april var hún
200 stig á móti 2963 á eldri granni.
VEXTIR BflNKfl DG SPflRISJÚÐA (%)_______________________~ 1
INNLÁN MEÐ SERKJÖRUM SJA sérlista lí íf. II li 11 ií 11 ll ?| •5 2 li ií
INNLAN ÓVEflÐTRYGGO
SPARISJðOSBÆKUR Úbundn InnstnAa 22,0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mánaöa uppsögn 25.0 26.6 25.0 23,0 23,0 23.0 23.0 23.0 25.0 23.5
6 mánaAa uppsögn 29.5 31.7 28.0 26.5 29.0 29.0 29.0 29.5 27.0
12 mánaða uppsögn 30.7 33.0 30.0 26.5 30.7
18 mánaóa uppsögn 35.0 38,1 35,0
SPARNAÐUR lANSRÉTTUR Sparað 3-5 mánuði 25.0 23.0 23.0 23.0 25.0 23.5
Sparað 6 mán. og meva 29.0 23.0 23.0 29.0 27,0
INNLANSSKlRHINI Ti 6 mánaða 29.5 31.7 28.0 26.0 29.5 29.0 28.0
tEkkareikningar Avisanareðdángar 17.0 17.0 10.0 8.0 10.0 10.0 10.0 10.0 10.0
Hiaupareáirangar 10.0 10.0 10.0 8.0 10.0 8.0 10.0 10.0 10.0
innlán verðtryggo
SPARIREIKNINGAR 3ja mánaða uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 U) 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mánaða uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.5 3.0 3.0 3.0 3.5 3.0
innlAn gengistryggo
GJALDEYRISREIKNINGAR BandariVjsdolarar 8.5 8.5 7.5 8.0 7.5 7.5 7.5 8.0 8.0
SterVngspund 12.0 9.5 12,0 11.0 11.5 11.5 11.5 12.0 11.5
Vestur þýsV mörk 5.0 4.0 5.0 5.0 4.5 4.5 4.5 5.0 5.0
Danskar krónur 10.0 9.5 8,75 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
OtlAn óverðtryggð
ALMENNIR VlXLAR (lorvextvl 29.5 29.0 28.0 28.0 28.0 29,5 28.0 29.0 29.0
VHJSKIPT AVlXLAH (lorvextv! 31,0 31.0 30.5 30.5 30.5 30,5
ALMENN SKULDABRÉf 32.0 31.5 30.5 .30,5 30.5 32.0 31.0 31.5 32.0
VœSKIPTASKULOABNÍF 34.0 33.0 33,0 33.0 33.5
HLAUPAREIKNINGAR Yfvdrátlur 31.5 30.0 29.0 29.0 29.0 30.0 31.0 31.5 30.0
útlAn verðtryggo
SKULDABRÉF Að 2 1(2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
lengn en 2 1(2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
utlAn til framleiðslu
VEGNA INNANLANDSSOlU 26.25 26,25 26.25 26.25 26.25 26,25 26.25 26.25 26,2
VEGNA UTfLUTNINGS SDR rerknimynt 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75 9.75
Sandkorn
Sandkorn
■ X 4-—— ■ —
Radarstöðvar ains 09
þœr verða f ullbyggðar.
Létt
klæddar
í berjamó
Radarstöðvar hafa gjarn-
an verið á milli tanna
manna viða um land síðasta
ár. Eins og kunnugt er mun
vera ætlunin að reisa nokkr-
ar slíkar út um landsbyggð-
ina. Ein á m.a. að risa á
Langanesinu.
Á Þórshöfn hafa kari-
menn rifjað upp að á árun-
um 1950 til ’60 starfræktu
Ameríkanar radarstöð á
Heiöarfjallinu sem liggur
skammt frá Þórshöfn.
Segja sögur að í þá daga
haf i ungar konur úr þorpinu
sótt mikið i berjamó I
Heiðarfjall og þá gjaman
léttklæddar og léttstígar.
Bæjarbúar fóru fyrst að
veita þessum áhuga stúlkn-
anna á berjunum í Heiðar-
f jalli athygli þegar þær fóru
að sækja í þau á hinum und- i
arlegustu timum. Kom
fyrir að farið væri seint um
nætur, snemma að vori og
jafnveláveturna.
Með þetta i huga tóku
menn, sem mundu þessa
tíma, gjarna afstööu til
málsins, segja sögur. Hins
vegar er því ekki að neita
að nokkur bót þykir að nú
verða aðeins Islendingar
við störf í nýju stööinni svo
að saklausar ferðir í berja-
mó ættu ekki að vera svo
hættulegar.
Á tímum
árekstra
I sjónvarpsfréttum
nýlega voru árekstrar
dagsins taldir upp aö 26 í
Reykjavík. Lögreglan
skildi ekkert í neinu því aö
skilyrði höfðu verið eins og
best hafði verið á kosið.
Sandkorn rakst hins
vegar á þennan brandara í
einu landshomablaðanna.
— Þér sáuð áreksturinn?
Vitniö: „Já.”
— Hve langt stóðuð þér
frá slysstaðnum?
„Fjóra metra og 57 cm.”
— Hvemig vitið þér þetta
svona nákvæmlega?
„Eg fékk lánað málband
hjá lögregluþjóni og mældi
fjarlægðina því að mér datt
í hug að fyrr eða síðar kynni
einhver auli að spyrja mig
umþetta.”
Truflað
bensín?
Það virðist nú vera orðinn
árlegur viðburður aö upp
koma sögusagnir um gang-
truflanir í bílum. Þegar svo
er ástatt beinist athyglin að
rússneska bensíninu sem
við fáum svo mikið af. I
fyrra varð þessi orðrómur
þrálátur og töldu menn að
gangtruflanimar væru
bensíninu að kenna. I kjöl-
farið greip eitt olíufélag-
anna til þess ráðs að setja
bætiefni i bensinið sem átti
að gera allan gang betri.
Það liðu reyndar ekki
margir dagar þar til hin
olíufélögin voru búin að
bæta bensínið sitt líka.
Nú fyrir skömmu kom
svo þessi þrálátí orðrómur
upp aftur og engin skildi
neitt i neinu. Nú velta menn
því fyrir sér hvemig á
þessu standi. Ein sagan
segir að félögin bæti út i
bensinið steinolíu til að
drýgja þaö. Lægri tollar séu
á steinolíu og þetta því gott
ráö til að rétta hallann á
olíufélögunum. Hins vegar
er það svo að þegar stein-
olíu er bætt i bensín sóta
bílar. Fram að þessu hefur
bætiefnið hreinsaö þessa
eiginleika út. Nú hafi hins
vegar verið sullað of miklu
af steinolíu út í bensínið og
bætiefniö dugir ekki til.
Tekið skal fram að þessi
kenning er ekki seld dýrari
enhún varkeypt.
Skuggaleg
móttöku-
nefnd
Það nýjasta nýtt á Akra-
nesi er að 10 skuggalegir
menn, í brúnum stökkum,
með hjálma á höfði, taka á
móti ferðamönnum sem
, koma með Akraborginni
; þangað.
Frá þessu er greint í
síðasta tölublaði Bæjar-
blaðsins á Akranesi.
Ferðalangur einn lýsir
þessari móttökunefnd og
segir í frétt blaðsins:
„Laust þeirri hugmynd
niður í koll mannsins að
þetta væru byltingarsinnar
á vegum Jóns Baldvins og
hóf hann því í snarheitum
að rifja upp þá litlu dönsku-
kunnáttu er honum hafði á-
skotnast á meöan enn voru
kennararílandinu."
Viö nánari eftirgrennslan
hefur komiö i ljós að þessir
skuggasveinar koma frá
Sementsverksmiðjunni sem
er í nágrenninu. Eiga þeir
þaö til aö labba niður að
höfn til aö lita á komumenn.
En ekki virðast allir vera
jafnánægöir með þá.
Umsjón:
Amar Páll Hauksson.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
LAUGARÁSBÍÓ—THE RIVER
★ ★
Baráttan um brauðið
Laikstjórn: Mark Rydell.
Handrit: Robart Dillon og Julian
Barry. ,
Kvikmyndastjórn: Vilmos Zsigmond.
Aðalleikarar: Mal Gibson, Sissy
Spacek, Scott Glenn.
Hjónakornin Tom (Mel Gibson)
og Mae Garvey (Sissy Spacek) reka
býli í dal í Tennesee þar sem mikil
hætta er á flóðum. A rennur eftir
dalnum og þegar hún flæðir yfir
bakka sína, sem skeöur árlega, þá er
voðinn vís, hætta er á að vatnið eyði-
leggi býli og uppskeru og kippi
þannig stoöum undan atvinnu fólks-
ins. Því er oftast rokið til við að hlaöa
flóögaröa til aö halda straumnum í
skef jum. Þrátt fyrir mjög erfiða lífs-
baráttu og miklar skuldir vill Tom
ekki yfirgefa dalinn þar sem forfeður
hans ræktuðu maísinn fyrir hans
daga.
Gamall vinur konu hans, Tom Wade
(Scott Glenn), reynir þó af öllum
mætti að hrekja bændur úr dalnum
svo að áin geti fengið að flæða yfir
bakka sína og fyrirtæki Wade geti
virkjað vatn árinnar. Þrjóska Toms
reynist þó meiri en svo að hann láti
bæjarstrák eins og Wade komast upp
meö ætlunarverk sitt og ásamt fleiri
bændum tekst honum aö koma í veg
fyrir áform hans. Þó aðeins í bili, því
að einhvem timann kemur að því að
dalabændumir geta ekki hindraö þaö
að vatnsflaumurinn sigrist á flóð-
görðunum.
Myndin er mjög vel gerð, allir leik-
arar standa sig mjög vel og túlka á
sannfærandi hátt það vonleysi sem
einkennir baráttu fólksins fyrir
lífinu. Mel Gibson og Sissy Spacek
túlka mjög vel persónur sínar og
samúð áhorf andans liggur með þeim
fráfyrstumínútu.
Gibson virðist í hlutverki sínu eiga
í erfiðleikum með að horfa til fram-
tíöarinnar, aöeins nútiminn kemst'
að, baráttan við að halda lífi í fjöl-
skyldu sinni. Spacek veit hvemig
dæmið snýr en hún vill þó ekki yfir-
gefa Gibson þrátt fyrir að hún geti
fengið gamla kærastan, Tom Wade,
og hætt þar með að hafa áhyggjur af
brauöstritinu.
Þá er kvikmyndatakan oft á tíðum
mjög næm og virðist til að mynda ná
aö skapa sérstætt andrúmsloft í
mörgum atriðanna.
Helsti galli myndarinnar liggur án
alls efa í handritinu sem hefði þolaö
meiri klippingu. öil röð þeirra miklu
óhappa sem fjölskylda Toms varð
fyrir minnti á sjónvarpsauglýsingu
sem leikin hafur verið of oft. Kannski
var það eina ráðið til aö halda mynd
sem þessari í böndunum en ég held
þó ekki, 122 mínútur voru of langur
1 tími til að sitja kyrr í ekki þægilegri
sætum en eru í stóra sal Laugarás-
bíósins.
Frosti Eiösson.
★ ★ ★ ★ Frábær ★ ★ ★ Góð ★ ★ Miðlungs ★ Léleg O Afleit