Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Side 3
DV. LAUGARDAGUR7. SEPTEMBER1985. 3 Skipulag Suðurhlsðanna í Kópavogi á lokastigi: Gerter ráð fyrir um 650 íbúðum á svæðinu M * * Líkan af Suflurhlíðum í Kópavogi. Kópavogslækurinn hægra megin fremst á myndinni en blokkirnar í Engihjallaefsttilhægri. DV-mynd PK Um þessar mundir eru skipulagsmál mjög til umfjöllunar hjá Kópavogs- bæ. Annars vegar er veriö að afgreiöa endanlega aðalskipulag bæjarins, sem tekur til næstu 18 ára, og hins vegar er verið að leggja lokahönd á deiliskipu- lag í Suðurhlíðum en svo kallast óbyggöa svæðið milli Alfhólsvegar í norðri og Kópavogslækjar í suðri. Byggð teygir sig í átt að Vatnsenda Aðalskipulagið skiptist í sjö megin- þætti sem varða þróun Kópavogs til ársins 2003. Veigarmestir eru áætlun um íbúafjölgun og byggðaþörf og þróun í atvinnumálum. Áætlun aðalskipulagsins um íbúa- fjölda reiknar meö að í Kópavogi verði 23.000 íbúar árið 2003. Gert er ráð fyrir nýrri byggð í Suðurhlíðum, Fífu- hvammslandi og seinna á svæðunum vestan Elliðavatns sem eru innan lögsagnarumdæmis bæjarins. Alls á Kópavogur fullbyggður að rúma 42.000 íbúa í fyllingu tímans. Atvinnusvæðum eru áætlaöir 204 hektarar lands sem er nokkru meira en áætla þarf vegna íbúaf jölda Kópavogs. I aðalskipulaginu er bent á stöðu bæj- arins miösvæðis á höfuðborgarsvæð- inu, og gert ráð fyrir að íbúar í ná- grannabyggðunum geti sótt þangaö vinnu. Er það í samræmi við viðleitni til að skapa jafnvægi atvinnusvæða og íbúðabyggöar á suðursvæðum höfuð- borgarbyggðarinnar. Aö sögn Skúla H. Norödahl skipu- lagsarkitekts Kópavogs hefur aðal- skipulagið þegar verið kynnt íbúum bæjarins og er það nú til síðustu með- ferðar hjá bæjarstjóm. Á sjötta hundrað íbúðir í Suðurhlíðum Jafnframt aðalskipulaginu er verið að ljúka við deiliskipulag í Suðurhlíð- um í Kópavogi. Bæjarstjóm fól arkitektunum Geirharði Þorsteinssyni og Gunnari Friðbjörnssyni verkið fyrir um ári síðan og verður skipulagið af- greitt frá bæjarstjórninni seinna í mánuðinum. Suðurhlíðar eru tuttugu og fjögurra hektara land og er gert ráð fyrir 620 til 650 íbúðum þar. Ekki er reiknað með neinum háhýsum á svæð- inu heldur litlum einbýlishúsum, par- og keöjuhúsum, og tveggja til þriggja hæða sambýlishúsum. Töluverð þjón- usta er þegar til staðar, þar af tveir skólar, dagheimili, íþróttahús og gæsluvöllur. „Við höfum trú á því að margir vilji komast yfir lóðir þarna,” sagði Kristján Guðmundsson, bæjarstjóri Kópavogs, í samtali við DV. „Það er langt liðiö síðan hér hefur veriö úthlut- að einbýlishúsalóðum að einhverju marki auk þess sem margir telja þetta eitt álitlegasta byggingarland á höfuð- borgarsvæðinu.” Kristján sagði að fyrstu lóðunum yrði úthlutað á kom- andi hausti en framhaldið færi síðan eftir eftirspurn. -JKH. JC-hreyfingin 25 ára: Tilnefndir „framúr- skarandi menn" „Við ætlum að útnefna 5 einstaklinga sem við teljum aö hafi skarað fram úr á sviðum menningar, lista og athafnalífs á eftirtektarverðan hátt,” sagði Grétar Pálsson, landsforseti JC—Island, en í dag kl. 15 standa samtökin fyrir samkomu í Átt- hagasal Hótel Sögu. Þessi uppá- koma er í tilefni af 25 ára afmæli JC—hreyfingarinnar. Af sama tilefni kom heimsforseti JC hing- að til land í gær og dvelur til morguns. Hann fékk m.a. áheyrn hjá forseta Islands í gær og verður viðstaddur athöfnina á Hótel Sögu. Þeir einstaklingar sem verða útnefndir þar eru á aldrinum 18 til 40 ára, en það eru aldursmörk- in í JC—hreyfingunni. Enginn þeirra er þó félagi, heldur eru þetta einstaklingar úr hinu al- menna þjóðlífi. Að sögn Grétars annaöist sérstök nefnd val á þess- um framúrskarandi einstakling- um og má búast við að útnefning af þessu tæi verði árlegur við- burður hjá þeim í JC. Til athafnarinnar á Hótel Sögu hefur verið boðið f jölda gesta en hún er öllum opin á meðan hús- rúm leyfir. JC—félagar halda síðan upp á 25 ára afmælið með fagnaði á Hótel Sögu í kvöld. -JKH. heldurnústóö^g^aidivið aarsö\u i/js® ari-.nn\, Bre\ðho\t\. -stöðina i ú ^aup á ótal rl!f?mab0avörum,he'mte- lokkum, asvörum, 9ri"v?amab?o%.fl- ÍS,3Æ«w»ri- 3rSn^W,æri- in\& V\b, gerib reytarakaup SSff------....... BarnagaWar • • ■ oUs Stoöin Hjöd**1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.