Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Blaðsíða 12
12 DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985. MANNLEG SAMSKIPTI ÁÆTLANIR - BREYTINGAR Þetta er meðal námsefnis á námskeiðum Verkstjórnar- fræðslunnar. Ný námskrá var að koma út. Hringiðtil Verkstjórnarfræðslunnar, Iðntæknistofnun Islands, símar 687000 og 687009, og fáið sendar upplýsingar. SELJUM NÝJA €3 OG NOTAÐA W bíla w Tegund BMW 520 i automatik 1982 BMW518 1981 BMW316 1982 BMW315 1982 BMW 320 automatik 1982 Renault 9 GTL 1982 Renault 9 TC 1982 Renault 11 GTL 1984 Renault 4 Van F6 1979 Renault 4 Van F6 1978 Mazda 929 station 1978 Vantar lítið ekinn BMW 315 eða 3161982. SELJUM NOTAÐA BÍLA LIRVAL ANNARRA BÍLA Á SÖLUSKRÁ. ÝMISS K0NAR SKIPTI HUGSANLEG. Opið laugardag 1—5. KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN KRISTINN GUÐNASON HF. <srí> SUÐURLAND?BRAUT 20. SÍMI 686633.^^ ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI LAUSAR STÖÐUR BARNAHEIMILI Fóstra óskast til afleysinga í vetur á dagheimili fyrir börn á aldrinum3ja—6ára. Einnig vantar starfsmann á dagheimilið. Upplýsingar í síma 19600 — 250 milli kl. 09.00 og 16.00. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækningadeildir I—A og II—A, handlækningadeildir I —B og II —B og barnadeild. Fastar næturvaktir koma til greina. Hjúkrunarfræðingar óskast einnig á gjörgæslu. Boðið er upp á aðlögunarkennslu fyrstu vikurnar. DEILDARRITARI Deildarritari óskast á gjörgæslu. Vinnutími frá kl. 08.00— 13.00 virka daga. SJÚKRALIÐAR Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir við eftirtaldar deildir: lyflækningadeild II—A handlækningadeildir II —B og III —B. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600—300 kl. 11—12og 13—14alla virka daga. AÐSTOÐARMAÐUR SJÚKRAÞJÁLFARA Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara óskast í fullt starf, staðan er laus nú þegar. Uppl. gefur sjúkraþjálfari í síma 19600 -266. STARFSFÓLK Starfsfólk óskast á spítalann við ræstingar. Upplýsingar veitir ræstingarstjóri í síma 19600—259. Reykjavík 5/91985. Kjallarinn á Akureyri Eitt stykki krá ígámi Kjallarinn er tilraun Sjallans á Akureyri til að koma fólki í kráar- stemmningu. Keypt hefur verið frá Bretlandi heilt stykki af krá, þar á meðal langur bar með steindu gleri og svo og svo margir metrar af ekta panil, ýmist alveg upp í loft eða upp á miðja veggi. Innifalið í pakkanum er töluvert af skiltum og auglýsing- um, hinar fjöldaframleiddu forn- minjar, sem lengi hafa verið vinsæl- ar víða um heim. Svona krá koma brezkir fagmenn með í gámi og setja upp á svipstundu. Ég gæti trúað að pílukastið hafi fylgt með. Inngangurinn í Kjallarann er rétt vinstra megin við aðalinngang Sjallans og Mánasalar. Þar er geng- ið til hægri niður í kjallarann, þar sem barborðið blasir við. í skotinu við stigann vinstra megin er lítill salatbar. Þeim megin í salnum eru þrír básar fyrir tólf matargesti. Hægra megin er hins vegar aðalsal- urinn með litlum og þéttskipuðum borðum í sófaborðshæð. Þar enn lengra inn af er litill gangur fyrir pílukastið, en samt oft notaður undir aukið matarpláss. í heild er yfirbragð staðarins álit- legt, fremur en hitt. Þeir, sem fram- leiða svona, kunna sitt fag. Ekki veit ég, hvort kráarstemmning myndast þarna oft við afgreiðslu bjórlíkis. Ég hef bara litið inn á tímum, þegar ekki mátti vænta mikils mannfjölda. Og það var í þeim allt öðru erindagjörðum að komast að, hvort hægt væri að fá eitthvað gott að borða á þessum stað. Þjónusta var fyrsta flokks í öll þrjú skiptin. Sem dæmi um hana má nefna, að ekki þurfti að spyrja gesti við borðið, hver hefði pantað hvað. Þar var ekki hið útbreidda orðalag: „Ert þú steiktur karfi eða soðið heilagfiski?” Segja má, að þessi þjónusta sé mjög í sama stíl og uppi í Mánasal, líklega sameigin- lega sú hin bezta á Akureyri, sem er þó bær, er státar yfirleitt af góðri þjónustu í veitingahúsum. Akureyrskt milliverð Kjallarinn hefur tvenns konar verðlag á veitingum sínum. Fyrst og fremst var þar stuttur seðill tólf rétta, þar af fjögurra aðalrétta. Þessi seðill var eins konar útdráttur úr tvöfalt lengri fastaseðli Mána- salar. Hann var á svipuðu verðlagi og í Laut, ódýrari en í Smiðjunni, Mánasal, Kea og Laxdalshúsi, en mun dýrari en hjá Bautanum. Síðan reynir Kjallarinn til við- bótar að keppa við Bautann á þrennan hátt. I fyrsta lagi með sér- stöku tveggja rétta tilboði dagsins, sem að miðjuverði var eigi að síður hærra en hið mun fjölbreyttara átta rétta tilboð Bautans. í öðru lagi með sérstökum barnamatseðli. Og í þriðja lagi með salatborði, sem ásamt með súpu var ódýrara en hið sama í Bautanum. I tölum er samanburðurinn, að miðjuverð tilboðsins í Bautanum var 712 krónur og 852 krónur í Kjallaranum, hvort tveggja sam- kvæmt reikningsaðferð, sem ég hef áður útskýrt. Samkvæmt henni kostaði 1095 krónur að borða af fastaseðli í Kjallaranum. Súpa og salatbar kostaði hins vegar 200 krónur í Kjallaranum á móti 250 krónum í Bautanum. En þá eru engin hliðaratriði meðtalin, svo sem kaffi eða freisting bjórkollunnar. Salatbarinn er minni og óþægi- legri aðgöngu en barinn í Bautan- um. Verst var, hversu dimmt var þarna í skotinu og erfitt að sjá, hvað var á boðstólum. Ennfremur var hann örlítið minna freistandi. Til Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. nafninu silungasúpa, alveg eins og hún gerði í Mánasal. Meðlæti réttanna var í gamal- kunnum, en ekki þó sérlega ofsoðn- um skorðum, svo sem gulrótum, blómkáli og kartöflum. Ennfremur því, sem mun vera kallað „gamitúr” í faginu. Hollandaise-sósan með heilagfiskinu var ágæt eins og áður- nefnd myntusósa, en minna þótti okkur varið í nautakjötssósuna. Rétt er að minna á, að salatborðið er eins og í Bautanum innifalið í verði allra aðalrétta staðarins. Snyrtileg borð af því tagi gera gest- um kleift að velja sér annað og við- kunnanlegra meðlæti en það, sem kemur úr eldhúsinu. Súpa er hins vegar ekki innifalin hér eins og í Bautanum. Vínlistinn í Kjallaranum er jafn- nauðaómerkilegur og uppi í Mána- sal, hefur til dæmis ekkert fram- dæmis voru sveppir ekki nema í eitt skiptið og sósurnar voru vondar. Hins vegar var yfirleitt ekkert upp á ferskleikann að klaga. Þrenns konar gott brauð var í boði. Engin húrrahróp Matreiðslan var svo sem ekki til að hrópa húrra fyrir. Sérstaklega var yfirleitt lítið varið í tilboð dags- ins og hið eina, sem við prófuðum af barnaseðlinum. Það síðarnefnda var afar seigur og óframbærilegur kjúklingur. Soðið heilagfiski var afar þurrt. Kryddsoðin nautasteik var of mikið pipruð. Og steiktar lambasneiðar voru frekar þurrar og saltar, enda afgreiddar í viðkvæmum, þunnum sneiðum. Við vorum heppnari með djúp- steikta fiskinn, sem var í mun vægari hveitihjúp en oft sést hér á landi. Einnig koníakssteiktar lambalund- ir með ágætri myntusósu. Þær voru raunar af fastaseðlinum, sem og ágætis humarsúpa, er gekk undir bærilegt hvítvín. Enda er sjálfsagt sanngjamt að taka fram, að þetta er bjórkrá. Kaffi var gott, borið fram með konfektmolum. Ef ég væri á ferð um Akureyri og þyrfti að seðja mig fyrir tiltölulega lítinn pening, færi ég heldur í Baut- ann, þar sem verðið er lægra, úrval- ið meira og gæðin ekki lakari. Auðvitað er líka hægt að fá mötu- neytismat í Súlnabergi. Og ég færi ekki út að borða í Kjallaranum til að njóta eftirtektarverðrar matar- gerðarlistar. En hana skortir raun- ar víðar á Akureyri. Að vísu má ekki gleyma, að í bjórkrá er matargerð venjulega hliðargrein. Kjallarinn er svo hepp- inn að fá allan sinn mat úr Mánasal. Þar virðist mér matreiðsla vera eins og gerist og gengur hér á landi, svona upp og ofan. Minni kröfur eru oft gerðar til bjórkráa í þessu efni. Þannig er ýmislegt gott um Kjallar- ann, fyrir utan útlit hans og þjón- ustu, sem áður er getið. Jónas Kristjánsson. Eitt tilboÖ dagsins: 2/0 Síldartríó meögrófu brauÖi iSo Steikturkarfimeuniere w Grafinn lax meö dillsósu })o MímítubuffsteikalaSja/linn )I0 HvitlauksristaÖir sniglar Annað slíkt: 2J0 SoöiÓ heilagfiski meÓ Hollandaise-sósu m Gril/steiktur silungur meÖ rjómasósu )20 KryddsoÓin nautasteik meó kart'óflumús 17° Pönnusteikt rauðspretta meö rósapipar I þriðja skiptið: 2io DjúpsteikturfiskurOrly J4° Koníakssteiktar lambalundir meÖ tómótum og myntusósu ))0 Steiktar lambasneióar meó kryddsósu 6)0 Mínútusteik meÖ ristuöum sveppum og krjddsmjöri Fastaseðillinn: 1)0 Vanilluís meö súkkulaðisósu i)j GratineruÓ lauksúpa 1J2 Djúpsteiktur camembert ijo Silungasúpameösaffran 9# Skjrmeórjómab/andi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.