Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985.
5
Ævintýraheimur allsnægtanna
— gengið um sýninguna Heimilið ’85
Enn einu sinni er haldin heimilissýn-
ing í Laugardalshöllinni meö svipuöu
fyrirkomulagi og undanfarin ár. Nú er
það þó ekki tívolí sem heillar börnin
heldur nýstárlegt kvikmyndahús. Þar
aö auki hefur þessi franskt ívaf, —
frönsk fegurö og list er í hávegum höfö.
Annars er allt svipaö og áöur. Ris-
arnir Hi-C og Svali eru í anddyrinu eins
og jafnan áöur og Pepsi lætur sér
nægja svolítið pláss úti í horni þar sem
fólki er gefinn kostur á aö taka pepsí-
áskorun.
Mjólkursamsalan gefur fólki aö
bragða á nýjum grautartegundum
meö ekta rjóma út á. Alþýðan hefur
eöa raöhúsinu, örbylgjuofna sem mat-
reiöa á svipstundu og forkunnarfagra
franska potta sem bæði spara raf-
magn og þola gífurlegar hitabreyting-
ar.
Þarna má fá svissneskt konfekt fyrir
einar litlar 25 kr. molann — einnig fyr-
ir sykursjúka — og japanskt hrís-
gr jóna- og hnetusælgæti.
Þarna má fá saumavélar sem næst-
um því sauma flíkurnar sjálfar og
gallabuxur á fimm ára sem kosta á
annaö þúsund krónur.
Það er boðið að bragöa á fleira en MS
grautum og kjúllettum. Einnig er að
finna síldarrétti, reykta ýsu, nýja
sperðla og spægipylsu úr Garðabæ og
kæfu úr íslensk-frönsku eldhúsi. Þá er
auðvitað boöiö upp á kaffi frá Braga
hinum akureyrska meö tilheyrandi
Holtakexi.
Kannski gleymist eitthvað í upptaln-
ingunni, en margt er að sjá í Laugar-
dalshöllinni á Heimilinu ’85. Þetta er
sannkallaður ævintýraheimur og
minnir helst á ljóðlínur úr kvæðinu
hans Davíðs:
. . . fjaöraveifu fannhvíta og franskan
silkikjól,
eyrnahringi, ennisspöng og alabast-
ursskrín,
hundrað föt úr fílabeini. . . A.Bj.
Falleg stofa með leðurhúsgögnum og söfaborði úr marmara.
DV-mynd KAE
Stílhreinar og ekta franskar tiskusýningadömur i þarlendum tiskufatnaði
gefa sýningunni sörstakt franskt yfirbragð.
Sævargarðar fegurstir
á Seltjarnamesinu
Fegrunar- og náttúruverndar-
nefnd Seltjarnarness hefur, í sam-
vinnu við félög í bænum, veitt viður-
kenningar vegna frágangs garða og
húsa í Seltjarnarnesbæ 1985. Fjórir
aöilar fengu viðurkenningar vegna
lóða sinna og húsa. Það eru eigendur
Sævargarða 2, þau Sigþrúður Steff-
ensen og Ingi R. Jóhannsson, eigend-
ur Sævargarða 15, þau Hjörleif Ein-
arsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson,
eigendur Sólbrautar 13, þau Steinunn
Margrét Tómasdóttir og Aðalsteinn
Karlsson, og eigendur Skála, þau
Guðrún L. Kristjánsdóttir og Stefán
Guðmundsson. Prjónastofan Iðunn
fékk viðurkenningu fyrir útlit og um-
hverfi atvinnuhúsnæðis en fegursta
gata á Seltjarnarnesi 1985 var valin
Sævargarðar.
gaman af því að komast að raun um
hvernig alvörurjómi er á bragðið, ef
hún sækir þá svona sýningar á annað
borð.
Á móti MS eru tveir matvælafram-
leiðendur sem hrópa um ágæti fram-
leiðslu sinnar, annar með kínarúllur og
hinn með kjúllettur. Kínarúllur eru
grænmetisblandað hakk í upprúlluðu
deigi og kjúllettur eru sneiðar úr kjúkl-
ingabringum, „paneraðar” og tilbúnar
til matreiðslu.
Það er glæsibragur yfir sýningunni.
Hún endurspeglar þjóðfélagið í dag.
Allsnægtir og auöur blasa við.
Þarna geta þeir, sem eiga allt í bók-
staflegum skilningi, fengið ábót — svo-
litiö meira.
Þarna gefur að líta alls kyns lúxus-
vörur, eins og massífar eikareldhús-
innréttingar, sófaborð úr marmara,
stóla með nautshúð. Þarna er að finna
eldhúskrana sem hægt er að skipta um
stút á og nota sem pottaskefil, eöa láta
á bursta sem kemst ofan í örmjó
kampavínsglös. Þarna má fá nudd-
potta og sólarljósalampa tU þess að
hafa í heilsuræktarhorninu í einbýUs-
Nytt* Panell»Nýtt
Getum nú boðið franskan lúxus-
panel á mjög góðu verði.
Panellinn er fáanlegur i hnotu, furu og eik.
____Panellinn er fullpússaður og fulllakkaður._
Panellinn fæst i nýju hvítu linunni, kvistlausri
________furu, kalkaður og fulllakkaður.________
Panellinn er frönsk lúxusvara, á góðu verði,
sem ekki hefur verið á íslenska markaðnum
fyrr.
Krókhálsi 4, Rvk. Simi 67lÖm
369.000Kr.
Wýr MAZDA 323 árgerð 1986
er komínn!
Nýtt, glæsílegt útlít — stærrí — rúmbetrí —
aflmeíri — sparneytnari og hljóðlátarí.
Sjón er sögu ríkari, komíð, skoðíð og
reynsluakið þessum frábæra bíl.
Opið virka daga til kl. 6 og laugardaga frá kl.
10—4.
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
• 1300 Hatchback LX 3ja dyra.